11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í C-deild Alþingistíðinda. (4981)

171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Þeirri ímyndun hv. þm. Snæf., að ég vilji helzt losna við þingið, er ástæðulaust að svara. Ég sagði aðeins, að æskilegt væri að losna við að fresta þinghaldi til haustsins. Þetta hljómar svo í eyrum þessa hv. þm., að ég vilji losna við þingið fyrir fullt og fast.

Viðvíkjandi því atriði, hvort ég álíti heppilegt að halda þing á haustin, vil ég taka það fram, að engin afstaða hefir verið tekin til þess í Framsfl., svo að ég get ekkert beinlínis um það sagt að svo stöddu.