04.04.1935
Neðri deild: 44. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í C-deild Alþingistíðinda. (4076)

110. mál, eignarnám lands handa kaupfélagi Rangæinga

Forseti (JörB):

Það heyrir ekki undir forseta að úrskurða að vísa þessu máli frá upp á sitt eigið eindæmi. En viðvíkjandi því atriði, sem hv. þm. á við, vil ég taka það fram, að þó menn kunni að vera í vafa um einhver ákvæði frv., er því þó vísað til 2. umr. og n., svo að n. geti athugað þau atriði, sem um er að ræða í hvert skipti. Ég vona því, að hv. þm. Snæf. greiði atkv.