20.04.1942
Efri deild: 37. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

3. mál, útsvör

Forseti (EÁrna):

Mér hefur borizt skrifl. brtt. frá hv. 2. landsk. (SÁÓ), svo hljóðandi: „Við 2. gr. Á eftir orðunum „og einn þeirra formann nefndarinnar“ komi: og sé hann kosinn til 4 ára.“ — Brtt. er of seint fram komin og auk þess skrifl., og verður því að veita tvenn afbrigði frá þingsköpum, ef hún á að komast hér að.