15.03.1943
Neðri deild: 75. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1212 í B-deild Alþingistíðinda. (2141)

139. mál, lendingarbætur á Vattarnesi

Frsm. (Finnur Jónsson):

Herra forseti. — Um þetta mál hefur verið fengin umsögn vitamálastjóra. Hann hefur athugað málið og borið aðstæður um lendingarbætur saman við lendingarbætur þar, sem líkt stendur á.

Þetta er ein af álitlegri útgerðarstöðvum á Austurlandi, og leggur n. til, að frv. verði samþ.