24.11.1943
Neðri deild: 53. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (1868)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Jón Pálmason:

Ég vil spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forseta, hvað því veldur, að mál, sem ég er flm. að og frsm. nefndarhluta, frv. um breyt. á jarðræktarl., hefur ekki verið tekið á dagskrá. Það hefur verið á dagskrá einu sinni, en tekið þaðan aftur. Ég vil vænta þess, að hæstv. forseti gæfi skýringu á því, hvað þessu veldur.