17.12.1948
Neðri deild: 42. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (276)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (BG):

Það var óþarfi fyrir hv. 2. þm. Reykv. að bera fram þessa ósk. Ég ætlaði að taka síðara dagskrármálið fyrir á undan og sjá, hverjar umræður yrðu um það. Að vísu er þó ekki hægt að fresta fundi lengi, því að tíminn er naumur, eins og hv. þm. sagði sjálfur áðan í lok ræðu sinnar.