30.03.1949
Sameinað þing: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í D-deild Alþingistíðinda. (4452)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég tel mjög hæpið að segja, að umræðurnar hafi dregizt úr hófi fram. Þær stóðu reyndar frá kl. 10 árd. til kl. 10 í gærkvöld, en hér er um að ræða eitt hið mikilverðasta mál er þetta þing hefur haft til meðferðar. Ég tel það ósanngirni, að þessar umræður geti ekki farið fram á sama hátt og í gær. Ég segi því nei.