20.12.1949
Sameinað þing: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (3515)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég vil taka það fram út af þeim ummælum, sem hv. þm. Str. lét hér falla, að ég tel ekki, að með samþ. þessarar þáltill. sé verið að ákveða eitthvað um framtíð, heldur aðeins að halda óbreyttum launagreiðslum eins og þær hafa verið 1949 í 2–3 mánuði í viðbót. Ég vil sem sagt ekki slá neinu föstu um launagreiðslur 1950, en segi já.