11.10.1951
Neðri deild: 9. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í C-deild Alþingistíðinda. (2627)

24. mál, vegalög

Flm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég hef borið fram á þskj. 24 frv. um breytingu á vegalögum. Efni þess er það, að nokkrir vegakaflar í Vestur-Húnavatnssýslu verði teknir í tölu þjóðvega. Af fram komnum brtt. þykist ég sjá, að hv. þm. líti frv. hýru auga og vilji gera það fullkomnara. Vænti ég þess, að málið fái afgreiðslu nú, þó að svo hafi ekki orðið á tveimur þingum að undanförnu. — Legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og samgmn.