17.12.1956
Neðri deild: 33. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (420)

76. mál, eignarskattsviðauki

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Um nokkur undanfarin ár hefur eignarskattur verið innheimtur með 50% álagi. Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að svo verði einnig árið 1957. — Eins og fram kemur í nál. fjhn. á þskj. 143, mælir n. einróma með því, að frv. verði samþykkt.