30.05.1958
Sameinað þing: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í D-deild Alþingistíðinda. (2491)

179. mál, styrkur til flóabátsins Baldurs

Pétur Pétursson:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hv, fjvn. fyrir afgreiðslu þessa máls. Það mun að vísu verða nokkuð erfitt fyrir útgerðarfélag flóabátsins Baldurs að koma því í kring að endurbæta og gera við fyrir þessa upphæð, en allt um það eru vonir til, að verkið takist, og ég vil þakka nefndinni fyrir.