13.04.1973
Sameinað þing: 71. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3479 í B-deild Alþingistíðinda. (3001)
85. mál, veggjald af hraðbrautum
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég lít svo á, að í þessari rökstuddu dagskrá felist, ef hún verður samþ., að taka beri málið upp við endurskoðun á vegáætlun á næsta ári. En þar sem ég tel hins vegar nauðsyn til að ná í tekjurnar strax vegna aukinna verkefna, segi ég nei við till.