13.03.1974
Neðri deild: 81. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2824 í B-deild Alþingistíðinda. (2531)

259. mál, skattkerfisbreyting

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég vil bara benda á, að ekki verður annað séð en með þessari brtt. sé lagt til að veita ríkisstj. heimild til þess að breyta hvaða útgjaldalöggjöf, sem er á Alþ. eftir sínu höfði. Það má mikið vera ef það er leyfilegt af Alþ. að gera ráðstöfun eins og þessa, og það hlýtur að vera algert einsdæmi, að slíkt komi til. Ég segi nei.