26.01.1976
Sameinað þing: 39. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1601 í B-deild Alþingistíðinda. (1312)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Hinn 9. jan. 7976 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh.Alþ. skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 26. jan. 1976, kl. 14.00.

Gjört í Reykjavík, 9. janúar 1976.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég býð hæstv. forseta Sþ., hv. alþm. og starfsfólk velkomin til þingstarfa á ný, og óska þeim gleðilegs árs og læt í ljós þá ósk, að störfin á þessu þingi verði landi og lýð til farsældar.