24.04.1978
Neðri deild: 81. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3846 í B-deild Alþingistíðinda. (3008)

245. mál, verðlag, samkeppnishömlur og óréttmætir viðskiptahættir

Svava Jakobsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég tel að þessi grein um markmið sé í engu samræmi við efni frv. í heild, en meginbreytingin, sem frv. þetta gerir ráð fyrir, er að gefa verslunarálagningu frjálsa og verðlagningu á ýmiss konar þjónustu. Ég tel að fögur orð og fyrirheit í 1. gr. frv. séu blekking ein. Ég segi nei.