Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1994, 154. löggjafarþing 934. mál: námsstyrkir (nemendur með alþjóðlega vernd).
Lög nr. 85 3. júlí 2024.

Lög um breytingu á lögum um námsstyrki, nr. 79/2003 (nemendur með alþjóðlega vernd).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
  1. Við 1. tölul. 1. mgr. bætist: eða nemendur sem hafa hlotið alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
  2. Í stað orðanna „láns úr Lánasjóði íslenskra námsmanna“ í 2. mgr. kemur: námslána og/eða styrkja úr Menntasjóði námsmanna.


2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 21. júní 2024.