Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 2122, 154. löggjafarþing 1076. mál: Evrópska efnahagssvæðið (Uppbyggingarsjóður EES 2021--2028).
Lög nr. 103 5. júlí 2024.

Lög um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (Uppbyggingarsjóður EES 2021–2028).


1. gr.

     Við 1. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: samning milli Evrópusambandsins, Íslands, Liechtensteins og Noregs um fjármagnskerfi EES fyrir tímabilið maí 2021 – apríl 2028.

2. gr.

     Við 2. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
     1. gr. samningsins, sem vísað er til í 12. tölul. 1. gr., skal hafa lagagildi hér á landi.
     Þau ákvæði samningsins, sem vísað er til í 15. mgr., skulu prentuð sem fylgiskjal við tilkynningu utanríkisráðherra með auglýsingu í A-deild Stjórnartíðinda.

3. gr.

     1. gr. samningsins milli Evrópusambandsins, Íslands, Liechtensteins og Noregs um fjármagnskerfi EES fyrir tímabilið maí 2021 – apríl 2028, sem vísað er til í 2. gr. laga þessara, skal prentuð sem fylgiskjal við tilkynningu utanríkisráðherra með auglýsingu í A-deild Stjórnartíðinda, sbr. 4. gr. þessara laga.

4. gr.

     Lög þessi öðlast gildi með birtingu auglýsingar í A-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt á Alþingi 22. júní 2024.