Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í október 1996. Útgáfa 120b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um fæðingarorlof
1987 nr. 57 31. mars
1. gr. Fæðingarorlof samkvæmt lögum þessum merkir leyfi frá launuðum störfum vegna meðgöngu og fæðingar [eða frumættleiðingar]. 1)
1)L. 129/1995, 1. gr.
2. gr. Foreldrar, sem gegna launuðum störfum og eiga lögheimili á Íslandi, eiga rétt á fjögurra mánaða fæðingarorlofi samkvæmt lögum þessum. Frá 1. janúar 1989 skal fæðingarorlof vera fimm mánuðir og frá 1. janúar 1990 sex mánuðir.
Skipti foreldrar með sér fæðingarorlofi verður sameiginlegt orlof þeirra aldrei lengra en segir í 1. mgr.
3. gr. Heimilt er konu að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag sem staðfestur skal með læknisvottorði. Beri fæðingu að fyrir áætlaða töku fæðingarorlofs telst fæðingarorlofið hafið á fæðingardegi. [Ef barn, sem ættleiða á, er sótt til útlanda er ættleiðandi móður heimilt að hefja töku fæðingarorlofs við upphaf ferðar, enda hafi viðkomandi yfirvöld eða stofnun staðfest að hún fái barn til ættleiðingar.] 1)
1)L. 129/1995, 2. gr.
4. gr. Vilji móðir hefja störf að nýju áður en lokið er fæðingarorlofi skal hún tilkynna það atvinnurekanda með 21 dags fyrirvara. Faðir, sem ætlar að taka hluta fæðingarorlofs, skal tilkynna það atvinnurekanda með 21 dags fyrirvara og jafnframt hve lengi hann verður frá störfum.
5. gr. … 1) uppeldis- eða fósturforeldrar eiga með sama hætti rétt til þriggja mánaða fæðingarorlofs (fjögurra mánaða frá 1. janúar 1989 og fimm mánaða frá 1. janúar 1990) vegna töku barns að fimm ára aldri þess. Töku fæðingarorlofs samkvæmt grein þessari má hefja er fyrir liggur staðfesting barnaverndarnefndar eða sveitarfélags um fósturráðstöfun … 1) Tilkynna skal atvinnurekanda um töku fæðingarorlofs með 21 dags fyrirvara, nema sérstakar aðstæður geri það ókleift.
1)L. 129/1995, 3. gr.
6. gr. Skylt er, þar sem því verður við komið, að færa barnshafandi konu til í starfi ef það er þess eðlis að heilsu hennar eða fósturs er af því hætta búin, enda verði ekki við komið breytingum á starfsháttum. Slík tilfærsla skal ekki hafa áhrif á launakjör viðkomandi til lækkunar.
7. gr. Óheimilt er að segja barnshafandi konu upp starfi nema gildar ástæður séu fyrir hendi. Sama gildir um foreldri í fæðingarorlofi.
Brjóti atvinnurekandi gegn ákvæði fyrri málsgreinar skal hann greiða bætur. Við ákvörðun bóta skal m.a. taka mið af ráðningartíma starfsmanns hjá viðkomandi atvinnurekanda.
8. gr. Ákvæði laga þessara skerða ekki þann heildarrétt sem verkalýðsfélög kunna að hafa samið um umfram það sem í lögum þessum greinir.
9. gr. Um greiðslur í fæðingarorlofi fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 67/1971, um almannatryggingar, með síðari breytingum. 1)
1)Nú l. 117/1993. Sjá og rg. 546/1987, sbr. 20/1989.
10. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1988.