Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í september 2001. Útgáfa 126b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um greiðslu vátryggingariðgjalda fiskiskipa
1976 nr. 17 19. mars
1. gr. … 1)
1)L. 24/1986, 13. gr.
2. gr. [Viðskiptabanki útvegsmanns skal skila því fé, sem greiða skal á reikning hvers fiskiskips skv. 2. tölul. 7. gr. laga um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, inn á reikning Landssambands íslenskra útvegsmanna hjá viðkomandi banka til greiðslu iðgjalda af vátryggingu skipsins.] 1)
Landssamband íslenskra útvegsmanna skal mánaðarlega skila andvirði þessu til viðkomandi vátryggingarfélaga, að þeim hluta, sem þarf til greiðslu vátryggingariðgjalds hvers skips, enda liggi fyrir samkomulag milli Landssambands íslenskra útvegsmanna og vátryggingarfélaganna um vátryggingar fiskiskipa, sbr. þó ákvæði laga um bátaábyrgðarfélög, nr. 41/1967, 2) með síðari breytingum, og laga nr. 47/1967, 3) um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, með síðari breytingum.
1)L. 24/1986, 13. gr. 2)Nú l. 18/1976. 3)Nú l. 37/1978.
3. gr. Við árslok skal endurgreiða skipseiganda innistæðu skipsins, er kann að verða umfram greiðslu vátryggingariðgjalda. Þó er heimilt að endurgreiða skipseiganda innistæðu skipsins fyrr, séu vátryggingariðgjöld skipsins að fullu greidd.
4. gr. Vextir af innistæðum á bankareikningum Landssambands íslenskra útvegsmanna skulu renna til greiðslu kostnaðar við innheimtu og skil iðgjaldagreiðslna samkvæmt lögum þessum, að svo miklu leyti, sem þeir hrökkva til.
5. gr. Sjávarútvegsráðuneytið getur sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
6. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi …