Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a.
Lög um hagfræðiskýrslur
1895 nr. 29 8. nóvember
1. gr. Landsstjórninni ber að annast um, að samdar séu árlega hagfræðiskýrslur um atvinnuvegi landsins, búnað, fiskveiðar og verslun, og skulu þær samdar og útgefnar á kostnað landssjóðs.
2. gr. Um fyrirkomulag á skýrslunum og undirbúning til þeirra ákveður landshöfðingi með reglugerð 1) og annast hann um, að út séu gefin á kostnað landssjóðs nauðsynleg eyðublöð, er stjórnarvöldum þeim, sem hann fyrirskipar, ber að láta útfylla.
1)Rg. 56/1897.
3. gr. Skyldur er hver búandi og hver sá, er nokkurn fénað hefur, til þess að láta hlutaðeigandi stjórnarvöldum árlega í té, þegar þess er krafist, nákvæma skýrslu um það, hve margt nautgripa, sauðfjár, geitfjár og hrossa, á hverjum aldri sem er, hann hefur undir höndum, hvort sem hann sjálfur er eigandi að eða ekki.
Bændur og aðrir þeir, er nokkra jarðrækt stunda, eru á sama hátt skyldir til að láta árlega í té skýrslur, svo nákvæmar, sem kostur er á, um stærð túna þeirra og sáðlands, um jarðabætur, er unnar hafa verið, og jarðargróða, er þeir hafa fengið á árinu, svo sem töðu, úthey, matjurtir, mótekju, hrísrif og skógarhögg.
4. gr. Skipstjórar á þilskipum og formenn á opnum bátum, sem til nokkurs veiðiskapar ganga, skulu skyldir að láta hlutaðeigandi stjórnarvöldum í té skýrslur, svo nákvæmar sem föng eru til, um það, hve mikið hafi aflast á skipum þeim eða bátum, er þeir hafa farið með. Skýrslna þessara má einnig, ef þurfa þykir, krefjast af útgerðarmönnum skipanna eða bátanna.
Svo skulu þeir, sem hafa selveiði, laxveiði, fuglatekju og dúntekju, skyldir að láta hlutaðeigandi stjórnarvöldum í té skýrslu um þessar atvinnugreinar, er þess er krafist.
5. gr. … 1)
1)L. 16/1909, 7. gr.
6. gr. Forstöðumenn sparisjóða og lánsstofnana skulu skyldir til að senda landshöfðingja árleg ágrip af reikningum sínum ásamt skýrslu um eignir og skuldir stofnananna, eftir formi, er hann fyrirskipar.
7. gr. Heimta má, að hlutaðeigendur votti upp á æru og trú, að skýrslur þær, sem um ræðir í 3.–5. gr., séu gefnar eftir bestu vitund.
8. gr. Gefi nokkur vísvitandi rangar skýrslur um nokkurt af þeim atriðum, sem um er spurt samkvæmt 3.–5. gr. í lögum þessum, eða neiti nokkur að staðfesta skýrslu sína með vottorði upp á æru og trú, varðar það sektum … 1) Tregðist nokkur við að láta í té skýrslur, er heimilt er samkvæmt lögum þessum að heimta, má þröngva honum til þess með dagsektum [allt að 1000 kr.] 1) á dag.
1)L. 10/1983, 2. gr.
9. gr. Um aðrar landshagsskýrslur en þær, sem atvinnuvegina snerta, gilda sömu reglur og fylgt hefur verið til þessa.
10. gr. … 1)
1)L. 19/1991, 194. gr.