Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Slysavarnaskóla sjómanna
1991 nr. 33 19. mars
1. gr. Slysavarnafélag Íslands skal starfrækja Slysavarnaskóla sjómanna og fer Slysavarnafélagið með yfirstjórn skólans er starfar á vegum þess og ábyrgð.
Markmið skólans er að auka öryggi sjómanna með fræðslu og þjálfun í meðferð björgunar- og öryggisbúnaðar og almennri fræðslu um slysavarnir á sjó.
2. gr. Slysavarnaskóli sjómanna skal halda námskeið fyrir starfandi og verðandi sjómenn um öryggis- og björgunarmál á helstu útgerðarstöðum landsins og annast öryggis- og slysavarnafræðslu fyrir nemendur í skipstjórnar- og vélstjórnarnámi.
Aðalkennslugreinar skólans eru: Fræðsla um öryggismál, slysavarnir, björgunaraðferðir, skyndihjálp, flutningur sjúkra og slasaðra, meðferð björgunarbúnaðar, slökkvibúnaðar og reykköfunartækja.
3. gr. Samgönguráðherra skipar fimm manna skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna til fjögurra ára í senn. Einn skal tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands, einn af Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og þrír tilnefndir af Slysavarnafélagi Íslands. Ráðherra skipar einn fulltrúa Slysavarnafélags Íslands formann skólanefndar.
Meginhlutverk skólanefndar er að fjalla um málefni Slysavarnaskólans, einkum varðandi tækjakaup og búnað hans, viðhald, framkvæmdir og áframhaldandi uppbyggingu. Skólanefnd gerir, að fenginni umsögn öryggisfræðslunefndar sjómanna, tillögur til stjórnar Slysavarnafélags Íslands um námskeiðahald, námsskrá og lengd námskeiða á vegum skólans.
4. gr. Skólanefnd ræður skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna en um mannaráðningar fer samkvæmt lögum Slysavarnafélags Íslands.
5. gr. Kostnaður við rekstur skólans skal greiddur úr ríkissjóði. Slysavarnafélag Íslands gerir fjárhagsáætlun fyrir skólann og leggur fyrir samgönguráðuneytið til staðfestingar.
6. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða. …