Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. júlí 2003. Útgáfa 128b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um ársreikninga
1994 nr. 144 29. desember
Tóku gildi 1. janúar 1995. Breytt með l. 37/1995 (tóku gildi 9. mars 1995), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 58/2001 (tóku gildi 13. júní 2001), l. 133/2001 (tóku gildi 1. jan. 2002 nema 1. gr., a-, b- og c-liður 3. gr., b- og c-liður 17. gr., c-liður 19. gr., 34. gr., a-liður 35. gr., b-liður 36. gr., 37. gr., 38. gr., 39. gr., 40. gr., a-liður 41. gr., 42. gr. og 52. gr. sem tók gildi 31. des. 2001 og 44. gr. sem tók gildi 1. jan. 2003; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 56. gr.), l. 25/2002 (tóku gildi 8. apríl 2002; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 10. gr.) og l. 56/2003 (tóku gildi 7. apríl 2003, sjá þó 45. gr.).
I. kafli. Almenn ákvæði.
Gildissvið og skilgreiningar.
1. gr. Lög þessi gilda um hlutafélög og önnur félög með takmarkaðri ábyrgð félagsaðila, samvinnufélög og samvinnusambönd, gagnkvæm vátrygginga- og ábyrgðarfélög og önnur félög með breytilegan höfuðstól og breytilega félagatölu. Enn fremur gilda lögin um sameignarfélög og önnur félög með ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, svo og samlagsfélög, sbr. 2. gr. Lög þessi skulu víkja fyrir ákvæðum um ársreikninga í sérlögum enda geri þau jafnmiklar eða meiri kröfur til ársreikningagerðar en lög þessi.
Í lögum þessum merkir:
1. félag: fyrirtæki skv. 1. mgr. sem semja skal ársreikning eða samstæðureikning samkvæmt lögum þessum;
2. félagsaðili: hluthafa í hlutafélagi og eiganda eignarhluta í öðru félagi sem lög þessi taka til;
3. [ eignarhluti: hlutdeild félagsaðila í hlutafélögum, einkahlutafélögum og eigin fé annarra félaga]; 1)
4. [ hlutdeildarfélag: félag, þó ekki dótturfélag, sem annað félag og dótturfélög þess eiga verulegan eignarhlut í eða hafa myndað varanleg tengsl við í þeim tilgangi að hafa áhrif á rekstur þess; félag er talið eiga verulegan eignarhlut ef það og dótturfélög þess eiga a.m.k. 20% eignarhlut í öðru félagi]; 1)
5. [ móðurfélag: félag sem:
a. á meiri hluta atkvæða í öðru félagi, eða
b. er félagsaðili að öðru félagi og hefur rétt til að tilnefna eða víkja frá meiri hluta stjórnar og framkvæmdastjórn þess, eða
c. er félagsaðili að öðru félagi og hefur rétt til ákvörðunarvalds um rekstur og fjárhagslega stjórn þess á grundvelli samþykkta félagsins eða samninga við það, eða
d. er félagsaðili að öðru félagi og ræður yfir meiri hluta atkvæða í því á grundvelli samnings við aðra hluthafa, eða
e. á eignarhlut í öðru félagi og hefur ákvörðunarvald um rekstur og fjárhagslega stjórn þess]; 1)
6. dótturfélag: félag sem er undir yfirráðum annars félags á þann hátt sem lýst er í 5. tölul.;
7. [ samstæða: móðurfélag og dótturfélög þess]; 1)
8. samstæðureikningur: reikningsskil þar sem reikningar móðurfélags og dótturfélaga þess eru sameinaðir í eitt;
9. [ ársreikningaskrá: skrá sem starfrækt er í því skyni að taka á móti, geyma og birta ársreikninga skilaskyldra félaga.] 2)
[Við útreikning á atkvæðamagni í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum skal:
a. leggja saman atkvæðamagn móðurfélags og dótturfélaga í viðkomandi félagi,
b. draga frá heildaratkvæðamagninu í viðkomandi félagi atkvæðamagn sem er í höndum þess sjálfs eða dótturfélaga þess og
c. draga frá atkvæðamagni móðurfélagsins það atkvæðamagn sem það hefur til tryggingar ef félagið beitir aðeins atkvæðisréttinum í samræmi við fyrirmæli þess sem setti trygginguna, eða ef umráðin eru liður í lánastarfsemi og atkvæðisréttinum er aðeins beitt í þágu þess sem setti trygginguna.] 1)
1)L. 56/2003, 1. gr. 2)L. 58/2001, 1. gr.
2. gr. Lög þessi gilda um sameignarfélög og önnur félög með ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, svo og samlagsfélög, ef félagsaðilar þeirra eru eingöngu félög sem talin eru í 1. málsl. 1. mgr. 1. gr.
Enn fremur gilda lög þessi um sameignarfélög, og önnur félög með ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, svo og samlagsfélög, ef félögin fara fram úr tvennum af eftirfarandi stærðarmörkum tvö ár í röð:
[1. eignir nema 200.000.000 kr.;
2. rekstrartekjur nema 400.000.000 kr.;
3. fjöldi ársverka á reikningsári er 50.] 1)
Ef félag skv. 2. mgr., sem uppfyllt hefur ofangreind skilyrði, gerir það ekki lengur tvö ár í röð er því ekki skylt að fara að ákvæðum laga þessara.
Sameignarfélögum og samlagsfélögum, sem um ræðir í 1. mgr., er ekki skylt að semja ársreikninga ef allar tekjur og gjöld, eignir og skuldir þeirra eru meðtaldar í ársreikningum félagsaðilanna.
1)L. 56/2003, 2. gr.
Gerð ársreikninga.
3. gr. Stjórn og framkvæmdastjóri skulu á hverju reikningsári semja ársreikning og skal hann hafa að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, [sjóðstreymi] 1) og skýringar. Í félögum, sem hafa ekki formlega stjórn, hvílir þessi skylda á öllum félagsaðilum sameiginlega. … 1) Jafnframt skal samin skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. Ársreikningurinn skal mynda eina heild.
Félagsstjórn og framkvæmdastjóri skulu undirrita ársreikninginn og eftir atvikum samstæðureikninginn. Ef stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri telur að ekki skuli samþykkja ársreikninginn eða samstæðureikninginn, eða hann hefur mótbárur fram að færa sem hann telur rétt að félagsaðilar fái vitneskju um, skal hann gera grein fyrir því í áritun sinni.
Ársreikningur með undirritun stjórnenda og áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna skal lagður fram í síðasta lagi viku fyrir aðalfund.
1)L. 56/2003, 3. gr.
4.–7. gr. … 1)
1)L. 56/2003, 4. gr.
8. gr. Reikningsárið skal vera tólf mánuðir. Við upphaf rekstrar eða breytingu á reikningsári getur tímabilið verið skemmra eða lengra, þó aldrei lengra en átján mánuðir. Reikningsári verður því aðeins breytt síðar að sérstakar aðstæður gefi tilefni til. Breytingin skal tilgreind og rökstudd í skýringum.
… 1)
1)L. 56/2003, 5. gr.
9. gr. [Ársreikningar skulu gerðir í samræmi við lög og góða reikningsskilavenju og gefa glögga mynd af afkomu, efnahag og breytingu á handbæru fé.
Ef ákvæði laga nægja ekki til að gefa glögga mynd af afkomu, efnahag og breytingu á handbæru fé skal vikið frá þeim í undantekningartilvikum til þess að reikningurinn gefi glögga mynd í skilningi 1. mgr. Í skýringum með ársreikningi skal greina frá slíkum frávikum ásamt ástæðum fyrir þeim og hvaða áhrif þau hafa á afkomu og efnahag.] 1)
1)L. 56/2003, 6. gr.
10. gr. Efnahagsreikning og rekstrarreikning skal setja upp með kerfisbundnum hætti. Fjármálaráðherra setur reglur um uppsetningu efnahagsreikninga og rekstrarreikninga.
Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur skulu settir upp með hliðstæðum hætti frá ári til árs nema sérstakar aðstæður gefi tilefni til annars. Breytingar skulu tilgreindar og rökstuddar í skýringum.
Víkja [skal] 1) frá ákvæðum laga þessara um uppsetningu efnahagsreiknings eða rekstrarreiknings ef þau leiða til þess að ársreikningur eða samstæðureikningur gefur villandi eða óskýra mynd af rekstrarafkomu eða efnahag félags eða [samstæðu]. 1)
1)L. 56/2003, 7. gr.
11. gr. Í ársreikningum og samstæðureikningum, sem samdir eru samkvæmt ákvæðum laga þessara, skulu fjárhæðir tilgreindar í íslenskum krónum.
[Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. geta félög, sbr. 1. mgr. 1. gr., fengið heimild til að færa bókhaldsbækur í erlendum gjaldmiðli og semja og birta ársreikning í þeim gjaldmiðli. Birti félag ársreikning sinn jafnframt í íslenskum krónum skal í skýringum geta um hvaða aðferðum er beitt við samningu ársreikningsins. Texti ársreiknings hjá félagi sem heimild hefur til færslu bókhalds og gerð ársreikninga í erlendum gjaldmiðli skal vera á íslensku, dönsku eða ensku.] 1)
Ef getið er tölulegra upplýsinga í ársreikningum eða samstæðureikningum í annarri mynt en hinni upphaflegu skal það gert á því gengi sem við átti á reikningsskiladegi. Tilgreina skal það gengi sem við er miðað.
1)L. 25/2002, 4. gr.
[11. gr. A. Ársreikningaskrá veitir heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli. Félög sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða geta sótt um slíka heimild:
1. Félög sem eru með meginstarfsemi sína erlendis eða eru hluti erlendrar [samstæðu] 1) þar sem starfrækslugjaldmiðill er annar en íslensk króna.
2. Félög sem eiga erlend dótturfélög eða hlutdeild í erlendum félögum og meginviðskipti eru við þessi félög.
3. Félög sem hafa meginstarfsemi sína hér á landi en eru með verulegan hluta viðskipta í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum, enda teljist hann vera starfrækslugjaldmiðill samkvæmt góðri reikningsskilavenju.
4. Félög sem hafa verulegan hluta fjárfestinga sinna og skulda þeim tengdra skráðan í erlendum gjaldmiðlum, enda fari þau fram úr þeim stærðarmörkum sem tilgreind eru í [2. mgr. 2. gr.] 1)
Starfrækslugjaldmiðill er sá gjaldmiðill sem meginhluti viðskipta félags eða [samstæðu] 1) fer fram í. Starfrækslugjaldmiðill skal vera skráður hjá Seðlabanka Íslands eða viðskiptabanka félagsins hér á landi.
Ráðherra getur sett reglugerð um nánari skilyrði fyrir veitingu heimildar samkvæmt þessari grein.] 2)
1)L. 56/2003, 8. gr. 2)L. 25/2002, 5. gr.
[11. gr. B. Umsókn um heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli skal berast ársreikningaskrá tveimur mánuðum fyrir upphaf viðkomandi reikningsárs. [Félög sem stofnuð eru á árinu skulu leggja fram umsókn eigi síðar en tveimur mánuðum eftir stofnun þeirra ásamt rökstuðningi um að starfsemi þeirra muni uppfylla ákvæði 11. gr. A.] 1)
Félag sem fengið hefur heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli skv. 2. mgr. 11. gr. skal viðhalda þeirri aðferð í að minnsta kosti fimm ár nema það uppfylli ekki lengur skilyrði 11. gr. A.
Telji félag sig ekki lengur uppfylla skilyrði 11. gr. A ber því að tilkynna ársreikningaskrá um það. Að fenginni heimild ársreikningaskrár skal það færa bókhald sitt og semja ársreikning í íslenskum krónum miðað við næsta reikningsár.
Ársreikningaskrá skal hafa eftirlit með því að félög sem fengið hafa heimild skv. 1. mgr. uppfylli skilyrði 11. gr. A, sbr. 78. gr.
Uppfylli félag ekki skilyrði 11. gr. A skal ársreikningaskrá afturkalla heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli við upphaf næsta reikningsárs. Ársreikningaskrá getur veitt félagi frest í tvö reikningsár telji hún ástandið tímabundið.] 2)
1)L. 56/2003, 9. gr. 2)L. 25/2002, 5. gr.
12. gr. Óheimilt er að fella saman eignir og skuldir eða tekjur og gjöld innan einstakra liða.
II. kafli. Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur.
13. gr. Eignir, sem ætlaðar eru til varanlegrar eignar eða notkunar, teljast fastafjármunir. Eignir, sem eru ekki ætlaðar til varanlegrar eignar eða notkunar, teljast veltufjármunir.
14. gr. Gjöld, sem stofnað er til á reikningsárinu en varða síðari reikningsár, skal færa til eignar í efnahagsreikningi sem fyrirframgreiddan kostnað. Tekjur, sem innheimtar hafa verið á reikningsárinu en varða síðari reikningsár, skal færa til skuldar í efnahagsreikningi sem fyrirframinnheimtar tekjur. Ef þessir liðir nema verulegum fjárhæðum skulu þeir sýndir sérstaklega eða þeirra getið í skýringum í ársreikningi.
Gjöld, sem varða reikningsárið en koma til greiðslu síðar, skal færa til skuldar í efnahagsreikningi. Tekjur, sem varða reikningsárið en innheimtast eftir lok þess, skal færa til eignar í efnahagsreikningi. Ef þessir liðir nema verulegum fjárhæðum skulu þeir sýndir sérstaklega eða þeirra getið í skýringum í ársreikningi.
15. gr. Óefnisleg réttindi skal aðeins telja til eignar ef þeirra er aflað gegn greiðslu. Sama á við um rannsóknar- og þróunarkostnað. Ef þessir liðir nema verulegum fjárhæðum skulu þeir sýndir sérstaklega eða þeirra getið í skýringum í ársreikningi.
16. gr. Færa skal til gjalda og skuldar fjárhæðir sem ætlað er að mæta útgjöldum vegna skýrt skilgreindra skuldbindinga sem varða reikningsárið eða fyrri ár og eru sennilega eða örugglega áfallnar á reikningsskiladegi en óvissar að því er fjárhæð varðar eða hvenær þær falla til greiðslu. [Þær skulu ekki nema hærri fjárhæð en nauðsynlegt er talið.] 1)
[Skuldbindingar skv. 1. mgr. má eigi nota til matsbreytinga á eignum eða jafna á móti eignum.] 1)
1)L. 56/2003, 10. gr.
17. gr. Gerð skal grein fyrir ráðstöfun hagnaðar eða jöfnun taps á reikningsárinu í ársreikningi eða skýringum með honum.
18. gr. Hrein velta samanstendur af tekjum af sölu á vörum og þjónustu í reglulegri starfsemi, að frádregnum afslætti og sköttum sem tengjast sölunni beint.
19. gr. Tekjur og gjöld, sem tengjast ekki reglulegri starfsemi, skal sýna sérstaklega í rekstrarreikningi og greina frá eðli þeirra í skýringum nema um óverulegar fjárhæðir sé að ræða. [Tekjur og gjöld sem varða fyrri reikningsár skulu færast til breytinga á óráðstöfuðu eigin fé í ársbyrjun þegar um er að ræða skekkju eða breytingu á reikningsskilaaðferð. Samanburðarfjárhæðum skal þá breytt til samræmis nema það sé bundið sérstökum vandkvæðum og skal það þá upplýst í skýringum.] 1)
1)L. 56/2003, 11. gr.
III. kafli. Matsreglur.
20. gr. Eftirfarandi almennar reglur eiga við um einstaka liði ársreiknings:
1. Gera skal ráð fyrir að félagið haldi starfsemi sinni áfram.
2. Matsaðferðum skal beitt með hliðstæðum hætti frá ári til árs.
3. Við mat á einstökum liðum skal gætt tilhlýðilegrar varkárni og skal þannig m.a:
a. aðeins tekjufæra hagnað sem áunninn er fyrir lok reikningsárs;
b. taka tillit til allra fyrirsjáanlegra skuldbindinga og tapa sem myndast kunna á reikningsárinu eða vegna fyrri reikningsára, jafnvel þótt slíkt komi fyrst í ljós eftir lok reikningsárs en áður en ársreikningur er saminn og
c. [sýna í reikningsskilum allar matsbreytingar sem taka til skerðingar á verðgildi einstakra eigna, sbr. 24. gr., hvort sem skerðingin er varanleg eða ekki]. 1)
4. Tekjur og gjöld, sem varða reikningsárið, skal færa í ársreikning án tillits til þess hvenær greitt er.
5. Einstaka þætti eigna- og skuldaliða skal meta til verðs hvern fyrir sig.
6. Efnahagsreikningur við upphaf hvers reikningsárs skal samsvara efnahagsreikningi við lok fyrra reikningsárs.
Í undantekningartilvikum má víkja frá ákvæðum 1. mgr. Skal þá geta um frávikin í skýringum í ársreikningi og tilgreina ástæður þeirra, svo og mat á áhrifum þeirra á eignir og skuldir, tekjur og gjöld.
1)L. 56/2003, 12. gr.
21. gr. Ef vikið er frá 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. skal hinni nýju aðferð beitt við allt það reikningsár þegar breytingin var gerð. Í skýringum skal geta um heildaráhrif breytingarinnar á fjárhagsstöðu og afkomu félagsins ef breytingin er veruleg.
22. gr. Fastafjármuni skal eigi meta til eignar við hærra verði en kostnaðarverði, [sbr. þó ákvæði 25. og 35. gr.] 1)
Kostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kaupverði þeirra og þeim kostnaði sem hlýst af öflun og endurbótum á þeim fram til þess tíma að þeir eru teknir í notkun.
Framleiðslukostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kostnaðarverði hráefnis og hjálparefna, svo og vinnuafls að viðbættum kostnaðarauka sem beint eða óbeint leiðir af framleiðslu fjármunanna. … 1)
Til kostnaðarverðs má enn fremur telja fjármagnskostnað af lánsfé sem nýtt er til að fjármagna kaup eða framleiðslu varanlegra rekstrarfjármuna á framleiðslutímanum. Ef fjármagnskostnaður er talinn til kostnaðarverðs skal greint frá því í skýringum.
Eignarleigusamningar skulu í samræmi við samningsákvæði og góða reikningsskilavenju færðir í efnahagsreikning ef þeir nema verulegum fjárhæðum.
1)L. 56/2003, 13. gr.
23. gr. Varanlegir rekstrarfjármunir, sem nýtast takmarkaðan tíma vegna aldurs, úreldingar, slits eða af hliðstæðum ástæðum, skulu afskrifaðir árlega á kerfisbundinn hátt á áætluðum endingartíma þeirra. Ef þessir fjármunir eru endurmetnir samkvæmt ákvæðum 25. gr. ber að [hækka afskriftarstofn þeirra um þá endurmatshækkun]. 1)
1)L. 56/2003, 14. gr.
24. gr. Ef raunvirði fastafjármuna er lægra en bókfært verð þeirra skv. 22. eða 23. gr. og ástæður þess verða ekki taldar skammvinnar ber að færa verð þeirra niður að því marki sem telja verður nauðsynlegt samkvæmt góðri reikningsskilavenju.
Heimilt er að meta áhættufjármuni og langtímakröfur til markaðsverðs á reikningsskiladegi ef það er lægra en bókfært verð. Slíkar eignir skulu sæta niðurfærslu ef þess gerist sérstök þörf, svo sem vegna hættu á að kröfur muni ekki innheimtast eða af öðrum ástæðum. Niðurfærslur samkvæmt þessari grein skulu færðar í rekstrarreikning.
Ef eignir hafa verið færðar niður skv. 1. eða 2. mgr. og ástæður verðlækkunarinnar eiga ekki lengur við ber að færa bókfært verð þeirra til fyrra horfs.
Matsbreytingar skv. 1.–3. mgr. skal færa í rekstrarreikning. Ef þær eru ekki sérgreindar í rekstrarreikningnum skal gera grein fyrir þeim í skýringum, enda sé um verulegar fjárhæðir að ræða.
25. gr. [Ef raunvirði fastafjármuna er talið verulega hærra en kostnaðarverð eða framreiknað kostnaðarverð þeirra af ástæðum sem taldar eru varanlegar er heimilt að hækka bókfært verð þeirra í ársreikningi.
Matsbreytingar skv. 1. mgr. skal færa á sérstakan endurmatsreikning meðal eigin fjár.
[Endurmatsreikning, sem myndaður er skv. 2. mgr., skal leysa upp til jafns við fjárhæð árlegrar afskriftar af mismun á endurmetnu verði og kostnaðarverði. Einnig skal leysa upp endurmatsreikning ef hin endurmetna eign er seld, tekin úr notkun eða fullafskrifuð, svo og ef forsendur fyrir endurmatinu eru ekki lengur fyrir hendi.] 1)
Hreyfingar á endurmatsreikningi á reikningsárinu skal sundurliða í skýringum.
Ef beitt er ákvæðum 1. mgr. skal í skýringum gera nákvæma grein fyrir þeim aðferðum sem viðhafðar eru.] 2)
1)L. 56/2003, 15. gr. 2)L. 133/2001, 51. gr. Breytingin kemur til framkvæmda við álagningu á árinu 2003, sbr. 56. gr. s.l.
26. gr. Veltufjármuni skal ekki færa til eignar við hærra verði en kostnaðarverði eða raunvirði ef það er lægra.
Kostnaðarverð veltufjármuna samanstendur af kaupverði og þeim kostnaði sem tengist beint öflun þeirra. Til kostnaðarverðs má enn fremur telja eðlilegt hlutfall af útgjöldum sem tengjast öfluninni óbeint enda hafi útgjöldin fallið til á sama tímabili og eignanna var aflað eða þær voru framleiddar.
27. gr. [Birgðir skal meta á kostnaðarverði eða dagverði, hvort sem lægra reynist.] 1)
Ef [birgðir] 1) eru metnar við dagverði og það er verulega lægra en kostnaðarverð skal gera grein fyrir því í skýringum.
[Kostnaðarverð birgða tekur til alls kostnaðar við kaup á birgðum eða áfallins kostnaðar við framleiðslu þeirra, sbr. 3. mgr. 22. gr. Auk þess telst til kostnaðarverðs birgða allur kostnaður við að koma þeim á núverandi stað og í það ástand sem þær eru. Dreifingarkostnað má ekki telja til kostnaðarverðs birgða.] 1)
1)L. 56/2003, 16. gr.
28. gr. Skammtímakröfur skulu sæta niðurfærslu ef þess gerist sérstök þörf, svo sem vegna hættu á að þær muni ekki innheimtast eða af öðrum ástæðum. Ákvæði 3. mgr. og 1. málsl. 4. mgr. 24. gr. gilda um þetta eftir því sem við á.
29. gr. Verðbréf, sem eru ekki ætluð til varanlegrar eignar og skráð eru á opinberu verðbréfaþingi, er heimilt að meta við síðasta skráða kaupgengi þrátt fyrir ákvæði 26. gr.
Tilgreina skal í skýringum ef þessu ákvæði er beitt.
30. gr. Kostnað við stofnun félags eða hækkun hlutafjár má ekki færa til eignar.
31. gr. [Ef kostnaður vegna óefnislegra réttinda, rannsókna eða þróunar er ekki gjaldfærður strax skal afskrifa hann með kerfisbundnum hætti á áætluðum nýtingartíma viðkomandi eigna, þó ekki á lengri tíma en 20 árum.
Sé áætlaður nýtingartími lengri en fimm ár skal gera grein fyrir ástæðum þess í skýringum.] 1)
1)L. 56/2003, 17. gr.
32. gr. Afföll og lántökukostnað af seldum eða keyptum verðbréfum má færa í efnahagsreikning og skal þá gerð grein fyrir þeim þar eða í skýringum.
Afföllin skulu færð til gjalda eða til tekna með reglubundnum hætti á lánstímanum.
33. gr. Óverulegar birgðir af rekstrarvörum, hráefnum eða hjálparefnum má eignfæra með fastri fjárhæð enda breytist þær ekki umtalsvert að magni, samsetningu eða verðgildi.
34. gr. Eigin hlutir skulu færðir til lækkunar á heildarhlutafé. Þó er heimilt að færa eigin hluti, sem keyptir hafa verið á síðustu tveimur reikningsárum, til eignar enda hafi þeirra verið aflað í þeim tilgangi að selja þá aftur.
35. gr. [Móðurfélag skal færa eignarhlut sinn í dótturfélagi til eignar samkvæmt hlutdeildaraðferð í samræmi við hlutdeild sína í eigin fé dótturfélagsins. Þó er heimilt að styðjast við kostnaðarverð þegar heimilt er að halda dótturfélögum utan samstæðureiknings, sbr. ákvæði 53. gr. C. Mismunur á upphaflegu kaupverði eignarhlutans annars vegar og hlutdeildar í eigin fé dótturfélagsins á kaupdegi hins vegar skal enn fremur hafa áhrif á bókfært verð fjárfestingar í dótturfélaginu.
Einnig skal beita hlutdeildaraðferð við eignfærslu á eignarhlutum í hlutdeildarfélögum. Þó er heimilt að styðjast við kostnaðarverð að uppfylltum skilyrðum 53. gr. C.
Nú rekur félag starfsemi í sameign með einu eða fleiri félögum og skal þá beita hlutdeildaraðferð vegna samrekstrarins, sbr. þó 53. gr. C.] 1)
1)L. 56/2003, 18. gr.
IV. kafli. Skýringar.
36. gr. Í skýringum í ársreikningi … 1) skal a.m.k. veita upplýsingar um þau atriði sem tilgreind eru í 37.–51. gr., auk þeirra upplýsinga sem krafist er samkvæmt öðrum ákvæðum laga þessara.
1)L. 56/2003, 19. gr.
37. gr. Veita skal upplýsingar um mat á einstökum liðum ársreiknings, þar á meðal þær aðferðir sem beitt er við endurmat og afskriftir fastafjármuna. Ef fjárhæðir í ársreikningi eru byggðar á erlendum gjaldmiðli á reikningsskiladegi skal tilgreina það gengi sem við er miðað.
38. gr. Tilgreina skal nöfn, heimilisföng og félagsform dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Geta skal hlutdeildar í hverju þeirra fyrir sig og eigin fjár þeirra samtals, svo og rekstrarárangurs síðasta reikningsárs. Ekki er nauðsynlegt að veita þessar upplýsingar ef þær hafa óverulega þýðingu eða þær geta valdið félaginu verulegu tjóni enda sé ástæðunnar getið.
Heimilt er að víkja frá ákvæðum 1. mgr. um upplýsingar um eigið fé og rekstrarárangur dóttur- og hlutdeildarfélaga ef:
1. hlutdeildarfélag birtir ekki ársreikning sinn og hlutur félagsins í eigin fé þess er minni en 50%;
2. reikningsskil dótturfélags eru hluti af samstæðureikningi félagsins eða
3. félagið metur eignarhluta sína samkvæmt hlutdeildaraðferð, sbr. 35. gr.
39. gr. Í skýringum skal tilgreina nöfn, heimilisföng og form félaga með ótakmarkaðri ábyrgð sem félagið er aðili að. Ekki þarf að gefa þessar upplýsingar ef þær hafa óverulega þýðingu. Ákvæði 2. mgr. 38. gr. gilda einnig eftir því sem við á.
40. gr. Ef eignarhlutum í félagi er skipt í flokka skal sérgreina þá og tilgreina fjölda hluta og nafnverð þeirra eða bókfært verð ef nafnverð er ekki fyrir hendi. Í hlutafélögum skal ávallt tilgreina fjölda hluta og nafnverð þeirra.
41. gr. Hafi félagið tekið skuldabréfalán er veitir lánardrottnum rétt til að breyta kröfum sínum á hendur félaginu í hluti í því skal tilgreina eftirstöðvar hvers láns, skiptihlutfall og frest þann sem veittur hefur verið til breytingar í hluti.
Hafi skuldabréfalán með rétti til vaxta verið tekið og vaxtakjörin ráðast að nokkru eða öllu leyti af rekstrarárangri félagsins skal tilgreina eftirstöðvar hvers láns og hina umsömdu ávöxtun.
Sams konar upplýsingar skal veita um hlutdeildarskírteini og önnur sambærileg réttindi eftir því sem við á, m.a. um fjölda þeirra.
42. gr. Veita skal upplýsingar um þann hluta skulda sem fellur árlega til greiðslu á næstu fimm árum frá lokum reikningsárs annars vegar og hins vegar vegna þess hluta sem fellur til greiðslu síðar.
Hafi félag sett eignir að veði skal veita upplýsingar um fjárhæð veðsetninganna og bókfært verð veðsettra eigna, sundurliðað eftir eignum. Heildartryggingar í þágu dótturfélaga og annarra félaga innan sömu [samstæðu] 1) skulu tilgreindar sérstaklega.
Veita skal upplýsingar um heildarfjárhæðir lífeyris-, ábyrgðar- og tryggingarskuldbindinga, seld viðskiptabréf og aðrar fjárskuldbindingar sem eru ekki tilfærðar í efnahagsreikningi, að því leyti sem það skiptir máli við mat á fjárhagsstöðu. Hafi félagið gert leigusamninga sem nema verulegum fjárhæðum skulu slíkar skuldbindingar tilgreindar sérstaklega. Skuldbindingar gagnvart móðurfélagi og dótturfélögum þess skal tilgreina sérstaklega.
1)L. 56/2003, 20. gr.
43. gr. Tilgreina skal fjárhæðir lána, svo og veðsetningar, ábyrgðir og tryggingar sem veittar hafa verið félagsaðilum eða stjórnendum félags eða móðurfélags þess vegna tengsla þessara aðila við félögin, sundurliðað ásamt upplýsingum um vexti, greiðslukjör og aðra helstu skilmála.
Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við gagnvart einstaklingum, nátengdum þeim sem þar eru taldir.
44. gr. Upplýsa skal um síðasta opinbert fasteignamat. Sama á við um vátryggingarverðmæti varanlegra rekstrarfjármuna.
45. gr. [Áætlaður hagnaður af samningi um langtímaverkefni skal innleystur hlutfallslega eftir því sem verkefninu miðar. Áætlað tap á samningi um langtímaverkefni skal gjaldfært strax.
Þegar ekki er hægt að áætla hagnað eða tap á samningi um langtímaverkefni af nægilegri nákvæmni skulu tekjur af samningnum aðeins innleystar að því marki sem þær standa undir kostnaði við verkefnið. Kostnaður skal gjaldfærður þegar hann fellur til.] 1)
1)L. 56/2003, 21. gr.
46. gr. Upplýsa skal um skiptingu rekstrartekna eftir starfsþáttum og markaðssvæðum ef þessir þættir og svæði hafa veruleg áhrif í rekstri félagsins.
Ákvæði 1. mgr. á ekki við um félög sem falla undir 1. mgr. 77. gr. Þá má sleppa þessum upplýsingum ef þær geta valdið viðkomandi félagi verulegu tjóni enda sé þess getið í skýringum.
47. gr. Upplýsa skal um heildarfjárhæð skatta vegna rekstrar á árinu og eigna í lok þess.
Upplýsa skal um skattaleg áhrif af óreglulegum rekstrarliðum.
Upplýsa skal um frestaða skattskuldbindingu [eða skattinneign] 1) vegna mismunar á gjaldfærðum sköttum á reikningsárinu og fyrri árum annars vegar og þeim sköttum sem álagðir eru vegna sömu ára hins vegar nema þessar upplýsingar hafi óverulega þýðingu. … 1)
… 1)
Upplýsingar skv. 3. … 1) mgr. skulu bera með sér á hvaða liðum ársreiknings skattkvöðin hvílir.
1)L. 56/2003, 22. gr.
48. gr. Upplýsa skal um fjölda starfsmanna að meðaltali á reikningsári. Þá skulu laun og launatengd gjöld sundurliðuð ef það er ekki gert í rekstrarreikningi.
Veita skal upplýsingar um heildarlaun, þóknanir og ágóðahluta til stjórnenda félags vegna starfa í þágu þess.
Greina skal frá samningum, sem gerðir hafa verið við stjórn, framkvæmdastjóra eða starfsmenn um eftirlaun, og tilgreina heildarfjárhæðir.
49. gr. Eftirfarandi upplýsingar skal veita um eign félags á eigin hlutum:
1. fjölda og nafnverð eigin hluta, svo og hlutfall þeirra af heildarhlutum;
2. fjölda og nafnverð eigin hluta sem hafa verið keyptir eða seldir á reikningsárinu, svo og kaup- og söluverð þeirra og
3. ástæður þess að félagið eignaðist eigin hluti á reikningsárinu.
Sömu upplýsingarnar og taldar eru í 1. mgr. skal veita ef tekið hefur verið veð í eigin hlutum.
Sömu upplýsingar og getið er í 1. og 2. mgr. skal veita um hluti í félagi sem dótturfélag þess hefur eignast eða látið af hendi á reikningsárinu.
50. gr. Sundurliða skal breytingar á eigin fé félags á reikningsárinu.
51. gr. [Félag sem er hluti samstæðu skal tilgreina nafn og aðsetur móðurfélags síns og móðurfélags heildarsamstæðunnar.
Enn fremur skal upplýsa um hvar samstæðureikningar erlendra móðurfélaga skv. 1. mgr. liggja frammi.] 1)
1)L. 56/2003, 23. gr.
V. kafli. Skýrsla stjórnar.
52. gr. Í skýrslu stjórnar með ársreikningi skal upplýsa um atriði sem mikilvæg eru við mat á fjárhagslegri stöðu félags og afkomu þess á reikningsárinu og ekki koma fram í efnahagsreikningi eða rekstrarreikningi eða skýringum með þeim nema sérstakar ástæður séu til að ætla að slíkt geti skaðað félagið. Ef veruleg óvissa ríkir um einstaka liði í ársreikningi eða ársreikninginn í heild skal veita upplýsingar um slíkt.
Í skýrslunni skal gera grein fyrir tillögu stjórnar um ráðstöfun hagnaðar eða jöfnun taps á síðasta reikningsári.
Í félögum, sem skráð eru á opinberu verðbréfaþingi, skal enn fremur gera grein fyrir samanburði á raunverulegri afkomu félagsins og rekstraráætlun þess hafi hún verið birt opinberlega, ásamt skýringum á helstu frávikum.
Í hlutafélögum skal upplýsa um fjölda hluthafa í upphafi og lok reikningsárs. Þá skal upplýst um hundraðshluta hlutafjár þeirra hluthafa sem eiga a.m.k. 10% hlutafjár félagsins í lok ársins. Ef atkvæðagildi hluta er mismunandi miðað við fjárhæð þeirra skal gerð grein fyrir atkvæðahlutdeild þeirra hluthafa sem ráða yfir a.m.k. 10% allra atkvæða í félaginu. Við útreikning þennan telst [samstæða] 1) einn aðili.
Í samvinnufélögum, sameignarfélögum og samlagsfélögum skal upplýsa um fjölda félagsaðila í upphafi og lok reikningsárs og fjölda eigenda að B-hluta stofnsjóðs ef stofnsjóður samvinnufélaga er þannig tvískiptur. Ef atkvæðagildi félagsaðila er mismunandi skal það skýrt.
Í skýrslu stjórnar með ársreikningi móðurfélags skal veita upplýsingar um [samstæðuna] 1) í heild.
Í skýrslu stjórnar skal enn fremur fjallað um eftir því sem við á:
1. mikilvæg atvik sem orðið hafa eftir lok reikningsársins;
2. framtíðarhorfur félagsins;
3. rannsóknar- og þróunarstarfsemi og
4. útibú félagsins erlendis ef einhver eru.
1)L. 56/2003, 24. gr.
VI. kafli. Samstæðureikningar.
53. gr. [Skylda til að semja samstæðureikning.
Móðurfélag skal semja samstæðureikning í samræmi við ákvæði þessa kafla fyrir öll dótturfélög sín án tillits til þess hvar þau eru skráð, sbr. þó 53. gr. A – 53. gr. C. Undanþágur skv. 53. gr. A – 53. gr. C gilda ekki þegar eitt félaganna sem fella á undir samstæðuna er félag með verðbréf sín til opinberrar skráningar á verðbréfaþingi í EES-ríki.
Enn fremur skulu félög sem falla ekki undir ákvæði 1. mgr. 1. gr. en eru móðurfélög, sbr. 5. tölul. 2. mgr. 1. gr., semja samstæðureikninga í samræmi við lög þessi.] 1)
1)L. 56/2003, 25. gr.
[53. gr. A. Móðurfélag þarf ekki að semja samstæðureikning ef samstæðan í heild fer ekki fram úr tveimur af eftirfarandi stærðum á reikningsskiladegi, sbr. þó 2. málsl. 1. mgr. 53. gr.:
1. eignir nema 200.000.000 kr.;
2. rekstrartekjur nema 400.000.000 kr.;
3. fjöldi ársverka á reikningsári er 50.
Heimildin til að beita ákvæði 1. mgr. breytist því aðeins að samstæðan hafi farið fram úr eða fari ekki lengur fram úr tveimur af stærðunum þremur tvö reikningsár í röð.] 1)
1)L. 56/2003, 26. gr.
[53. gr. B. Félag sem jafnframt er dótturfélag og starfar á grundvelli laga í EES-ríki og ársreikningur þess er hluti af samstæðureikningi móðurfélags sem lýtur löggjöf EES-ríkis þarf ekki að semja samstæðureikning, sbr. þó 2. málsl. 1. mgr. 53. gr., ef:
1. móðurfélagið á öll hlutabréfin eða hlutina í félaginu sem fær undanþáguna; hlutabréf eða hlutir í því félagi í eigu stjórnarmanna eða stjórnenda samkvæmt ákvæðum í lögum, stofnsamningi eða samþykktum skulu ekki taldir með eða
2. móðurfélagið:
a. á minnst 90% eignarhlut í félaginu sem fær undanþáguna og aðrir hluthafar eða félagsaðilar þess hafa fallist á undanþáguna, eða
b. á minna en 90% eignarhlut í félaginu sem fær undanþáguna, og eigendur minni hluta, sem eiga minnst 10% eignarhlut, hafa ekki krafist innan sex mánaða fyrir lok reikningsárs að samstæðureikningur verði saminn,
3. móðurfélagið sendir ársreikningaskrá ársreikning sinn ásamt samstæðureikningi, og
4. félagið gerir grein fyrir því í skýringum í ársreikningi að með stoð í þessari grein hafi það ekki samið samstæðureikning og skýrir frá nafni og aðsetri móðurfélagsins.
Ársreikningaskrá getur krafist þess að látnar verði í té sams konar upplýsingar um samstæðureikninga skv. 1. mgr. og hefðu átt að fylgja samstæðureikningi félagsins sjálfs samkvæmt lögum þessum. Ársreikningaskrá getur enn fremur krafist íslenskrar þýðingar á samstæðureikningnum.
Félag getur enn fremur sleppt að semja samstæðureikning ef það er sjálft dótturfélag félags sem heyrir undir lög í ríki sem ekki er EES-ríki og
1. stjórn félagsins hefur ekki innan sex mánaða fyrir lok reikningsárs móttekið kröfu um samningu samstæðureiknings, og
2. móðurfélag þess semur samstæðureikning í samræmi við löggjöf EES-ríkis um samstæðureikninga og endurskoðandi móðurfélagsins endurskoðar samstæðureikninginn.
Félag sem nýtir sér undanþáguheimildir skv. 1.–3. mgr. skal enn fremur:
1. upplýsa í ársreikningum sínum að það hafi, skv. 1.–3. mgr., ekki samið samstæðureikning og tilgreina nafn og aðsetur móðurfélags þess, og
2. senda ársreikningaskrá samstæðureikning móðurfélags þess, ásamt upplýsingum sem ársreikningaskrá krefst skv. 78. gr.] 1)
1)L. 56/2003, 26. gr.
[53. gr. C. Halda má dótturfélagi utan samstæðureiknings, sbr. þó 2. málsl. 1. mgr. 53. gr., ef:
1. það hefur óverulega þýðingu fyrir rekstur eða efnahag samstæðunnar vegna smæðar þess;
2. stjórnun þess er ekki lengur í höndum eigenda þess eða verulegar og varanlegar hömlur koma að miklu leyti í veg fyrir að móðurfélagið nýti rétt sinn yfir eignum dótturfélagsins eða til að stjórna því;
3. ekki er unnt að afla nauðsynlegra upplýsinga tímanlega og án óeðlilegs kostnaðar; eða
4. það hefur ekki áður verið fellt inn í samstæðureikning og móðurfélagið aflaði eignarhlutanna eingöngu í þeim tilgangi að endurselja þá.
Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 1. mgr. skulu félög, sem hvert um sig hafa óverulega þýðingu, innifalin í samstæðureikningi ef þau hafa verulega þýðingu samanlagt.
Ef starfsemi dótturfélags er svo ólík starfsemi móðurfélags að það gæfi villandi mynd af samstæðunni að fella það inn í samstæðureikning skal halda því utan við hann.
Sé dótturfélagi haldið utan samstæðureiknings skv. 1. eða 3. mgr. skal gerð grein fyrir því í skýringum samstæðureikningsins.] 1)
1)L. 56/2003, 26. gr.
[53. gr. D. Ef félag, sem þarf ekki að semja samstæðureikning skv. 53. gr. A – 53. gr. C, semur samt slíkan reikning skal það gert samkvæmt ákvæðum laga þessara um samstæðureikninga að undanskilinni 69. gr.] 1)
1)L. 56/2003, 26. gr.
54. gr. [Gerð samstæðureiknings.
Félög í sömu samstæðu skulu hafa sama reikningsár nema sérstakar aðstæður gefi tilefni til annars.
Ef reikningsári dótturfélags lýkur meira en þremur mánuðum fyrir lok reikningsárs samstæðunnar skal samstæðureikningur saminn á grundvelli sérstakra reikningsskila sem gerð eru samkvæmt ákvæðum þessara laga og miðast við uppgjörsdag samstæðunnar. Ef reikningsári dótturfélags lýkur þremur mánuðum eða skemur fyrir lok reikningsárs samstæðunnar má fella ársreikning dótturfélagsins inn í samstæðureikningsskilin.
Í þeim tilvikum sem reikningsár eru ekki hin sömu skal veita upplýsingar um það í skýringum. Hafi á þeim tíma, sem líður milli loka reikningsárs dótturfélags og móðurfélags, orðið atburðir sem hafa veruleg áhrif á rekstur dótturfélagsins og fjárhagsstöðu skal einnig veita upplýsingar um það.] 1)
1)L. 56/2003, 27. gr.
[54. gr. A. Samstæðureikning skal semja samkvæmt ákvæðum þessa kafla og skal hann hafa að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymi og skýringar.
Samstæðureikningur skal gefa glögga heildarmynd af afkomu, efnahag og breytingu á handbæru fé allra félaga innan samstæðunnar.
Við gerð samstæðureiknings skulu sams konar tekju- og gjaldaliðir og eigna- og skuldaliðir lagðir saman. Gera skal nauðsynlegar leiðréttingar vegna sérstakra þátta sem eiga aðeins við um samstæðureikning.
Í samstæðureikningi skal fella niður fjárfestingu móðurfélags í dótturfélögum á móti hlutfallslegri eign móðurfélagsins í eigin fé þeirra.
Dótturfélag sem keypt er á reikningsárinu má aðeins taka með í samstæðureikning frá þeim tíma sem móðurfélag tekur við stjórn þess.
Dótturfélag sem selt er á reikningsárinu má aðeins taka með í samstæðureikning fram að þeim tíma sem móðurfélag lætur af stjórn þess.] 1)
1)L. 56/2003, 28. gr.
[54 gr. B. Eignarhlutir í dótturfélögum sem heimilt er að halda utan samstæðureiknings skv. 53. gr. C skulu færðir sem sérstakur liður í efnahagsreikningi samstæðunnar. Kröfur og skuldir við þessi dótturfélög skulu sýndar sérstaklega í efnahagsreikningi samstæðunnar.
Hlutdeild samstæðu í hlutdeildarfélögum skal færð sem sérstakur liður í efnahagsreikningi samstæðunnar.
Hlutdeild minnihlutaeigenda í eigin fé dótturfélaga skal færð sem sérstakur liður í efnahagsreikningi. Hlutdeild minni hluta í afkomu dótturfélaga skal færð sem sérstakur liður í rekstrarreikningi.] 1)
1)L. 56/2003, 28. gr.
[54. gr. C. Eignir og skuldir samstæðunnar skulu metnar með samræmdum aðferðum samkvæmt lögum þessum.
Í samstæðureikningi skulu notaðar sömu matsaðferðir og í ársreikningi móðurfélags. Noti dótturfélag í samstæðu aðrar matsaðferðir í eigin ársreikningi en móðurfélagið skulu unnin ný reikningsskil þar sem matsaðferðir eru í samræmi við samstæðureikning. Heimilt er að víkja frá ákvæðum 2. málsl. ef frávik í reikningsskilum dótturfélags frá reikningsskilum móðurfélags eru óveruleg. Séu frávik gerð skal þeirra getið í skýringum með samstæðureikningi og ástæður fyrir þeim tilgreindar.
Í samstæðureikningi skal meta eignarhluta samstæðunnar í hlutdeildarfélögum samkvæmt hlutdeildaraðferð nema eignarhlutarnir hafi óverulega þýðingu.] 1)
1)L. 56/2003, 28. gr.
[54. gr. D. Ef dótturfélag, sem er hluti samstæðu, semur reikningsskil sín í öðrum gjaldmiðli en móðurfélagið ber að umreikna reikningsskil þess í gjaldmiðil móðurfélagsins áður en samstæðureikningur er saminn.
Ef um samþætta starfsemi við starfsemi móðurfélagsins er að ræða skulu peningalegar eignir og skuldir í efnahagsreikningi metnar á gengi í árslok. Fastafjármunir í ársbyrjun skulu umreiknaðir í gjaldmiðil móðurfélagsins með sömu fjárhæð og árið áður, en nýfjárfestingar á gengi kaupdags, og skulu þessar eignir síðan afskrifaðar með sama hætti og fastafjármunir móðurfélagsins. Eigið fé dótturfélags í ársbyrjun umreiknast með sömu fjárhæð (í gjaldmiðli móðurfélagsins) og í lok fyrra árs. Fjárhæðir í rekstrarreikningi, að undanskildum afskriftum fastafjármuna, skulu umreiknaðar í gjaldmiðil móðurfélagsins á meðalgengi ársins. Gengismunur sem myndast við þennan umreikning skal færður á rekstrarreikning.
Ef ekki er um samþætta starfsemi við starfsemi móðurfélagsins að ræða skulu fjárhæðir í efnahagsreikningi, að undanskildu hlutafé og óráðstöfuðu eigin fé, umreiknaðar í gjaldmiðil móðurfélagsins á gengi í árslok, en fjárhæðir í rekstrarreikningi á meðalgengi ársins. Hlutafé ber að færa á upphaflegu kaupverði og óráðstafað eigið fé í ársbyrjun skal nema sömu fjárhæð (í gjaldmiðli móðurfélagsins) og í lok fyrra árs. Gengismunur sem myndast við þennan umreikning skal færður á sérstakan reikning meðal eigin fjár.] 1)
1)L. 56/2003, 28. gr.
[54. gr. E. Í samstæðureikningi skal gera grein fyrir samanlögðum eignum og skuldum, tekjum og gjöldum félaganna í heild. Við gerð reikningsins skulu eftirfarandi liðir falla niður:
1. kröfur og skuldir félaga innan samstæðunnar gagnvart öðrum félögum innan hennar;
2. tekjur og gjöld af gagnkvæmum viðskiptum félaga innan samstæðunnar og
3. óinnleystur hagnaður eða tap af þeim viðskiptum.] 1)
1)L. 56/2003, 28. gr.
55. gr. [Upphaf samstæðu.
Kaupaðferðin skv. 55. gr. A skal notuð við gerð samstæðureiknings, sbr. þó 2. og 3. mgr.
Ef félög eru undir sama móðurfélagi eða háð ákvörðunarvaldi sömu aðila má beita samlegðaraðferðinni við upphaf samstæðunnar, sbr. 55. gr. B.
Samlegðaraðferðinni skv. 55. gr. B má enn fremur beita ef:
1. verðmæti félaganna innan samstæðunnar er ekki verulega frábrugðið hvort öðru,
2. móðurfélagið á að minnsta kosti 90% eignarhlut og atkvæðisrétt dótturfélagsins eftir skiptin á eignarhlutum og
3. móðurfélagið hefur við stofnun samstæðunnar aflað eignarhlutarins í krafti samkomulags sem felur í sér að:
a. hvorki eigendur móðurfélags né eigendur dótturfélags hafa fengið ráðandi stöðu í móðurfélaginu við skiptin,
b. eigendur félaganna hafa sömu réttindi eftir skiptin og
c. greiðsla með öðrum verðmætum en með skiptum á eignarhlutum fer ekki yfir 10% að nafnverði þess eiginfjárhluta sem tekið er við.] 1)
1)L. 56/2003, 29. gr.
[55. gr. A. Kaupaðferð.
Ef samstæða er stofnuð með yfirtöku á félagi skal miðað við matsverð einstakra liða efnahagsreiknings á yfirtökudegi í samstæðureikningi. Mismunur á matsverði og bókfærðu verði skal afskrifaður með sama hætti og þeir liðir sem hann byggist á.
Hlutdeild móðurfélags í dótturfélagi, sbr. 3. mgr., skal jafnað út á móti hreinni eign dótturfélags.
Mismunur, sem eftir stendur þegar færð hefur verið leiðrétting vegna einstakra liða í efnahagsreikningi, sbr. 1. mgr., telst viðskiptavild. Jákvæð viðskiptavild færist sem sérstakur liður meðal eigna en neikvæð viðskiptavild skal færð sem sérstakur liður meðal skuldbindinga. Jákvæð viðskiptavild skal færast í rekstrarreikning á áætluðum nýtingartíma hennar, þó að hámarki á 20 árum. Neikvæð viðskiptavild skal tekjufærast á móti þeim áætlunum sem lagðar voru til grundvallar kaupunum, þó að hámarki á 20 árum.
Hlutir dótturfélags í móðurfélagi skulu færðir sem eigin hlutir í samstæðunni.] 1)
1)L. 56/2003, 30. gr.
[55. gr. B. Samlegðaraðferð.
Með samlegðaraðferð er samstæðureikningur lagður fram fyrir reikningstímabilið þegar samlagningin á sér stað eins og félögin hefðu verið lögð saman frá og með upphafi tímabilsins. Við beitingu samlegðaraðferðarinnar eru einstakir liðir efnahagsreiknings á yfirtökudegi lagðir saman á bókfærðu verði. Samanburðarfjárhæðir sem sýndar eru í samstæðureikningi skulu einnig vera fyrir félögin samanlögð eins og um samstæðu hafi verið að ræða frá upphafi fyrsta reikningstímabils sem sýnt er. Mismunurinn á fjárhæð sem skráð er sem hlutafé ásamt yfirgengi, ef um það er að ræða, að viðbættu greiddu kaupverði, ef eitthvað er, og bókfærðu eigin fé dótturfélags skal færður á eigið fé.] 1)
1)L. 56/2003, 30. gr.
[55. gr. C. Starfsemi í sameign.
Nú rekur félag innan samstæðu starfsemi í sameign með einu eða fleiri félögum og skal þá færa hlutdeild samstæðunnar í samrekstrinum í samstæðureikningi, sbr. þó 53. gr. C. Eignir og skuldir og tekjur og gjöld hins sameiginlega rekstrar skulu þá tekin inn í samstæðureikninginn í hlutfalli við aðild samstæðunnar að rekstrinum.] 1)
1)L. 56/2003, 30. gr.
56. gr. [Reikningsskilaaðferðir.
Í skýringum með samstæðureikningi skal veita upplýsingar um reikningsskilaaðferðir eins og félögin í samstæðunni væru eitt félag, sbr. IV. kafla.
Í skýringum um reikningsskilaaðferðir skal enn fremur eftirfarandi koma fram:
1. Ef dótturfélag er ekki tekið með í samstæðureikninginn ásamt nákvæmum og fullnægjandi rökstuðningi.
2. Ef annar uppgjörsdagur er hjá dótturfélagi í samstæðu en móðurfélagi, sbr. 54. gr. Hafi þýðingarmiklir atburðir átt sér stað milli þessara tveggja dagsetninga sem hafa haft áhrif á eignir og skuldir dótturfélagsins, á fjárhagsstöðu þess eða rekstrarafkomu skal það upplýst.
3. Ef notaðar eru aðrar aðferðir við útreikning og mat en notaðar eru í ársreikningi móðurfélags ásamt nákvæmum og fullnægjandi rökstuðningi fyrir notkun annarra aðferða.
4. Eftirstöðvar af viðskiptavild skv. 55. gr. A og 55. gr. B ásamt aðferðum sem notaðar eru við uppgjörið.] 1)
1)L. 56/2003, 31. gr.
[56. gr. A. Aðrar skýringar.
Í skýringum með samstæðureikningi skal veita sömu upplýsingar og tilgreindar eru í IV. kafla laganna. Í stað upplýsinga um fjárhæðir í einstökum félögum eru fjárhæðir félaganna sem mynda samstæðuna lagðar saman eftir sömu aðferðum og gilda um samstæðureikninginn.
Sleppa má upplýsingum ef þær varða viðskipti móðurfélags við dótturfélög eða samrekstur með öðru félagi, sbr. 55. gr. C.
Veita skal upplýsingar um breytingu á hlutfallslegri eign minni hluta í eigin fé dótturfélaga.] 1)
1)L. 56/2003, 32. gr.
[56. gr. B. Fyrir hvert dótturfélag í samstæðureikningi og utan hans skal tilgreina í skýringum:
1. nafn og aðsetur,
2. hve stór hluti eigin fjár er í eigu samstæðunnar í heild,
3. ástæðu þess að dótturfélag er tekið með í samstæðureikningi, ef hluti eigin fjár í eigu samstæðunnar og atkvæðisréttur er ekki sá sami,
4. nákvæman og fullnægjandi rökstuðning ef félagi er haldið utan við samstæðuna, sbr. 53. gr. C, og
5. hvort samlegðaraðferðin skv. 55. gr. B hafi verið notuð.
Fyrir hvert hlutdeildarfélag skal gera grein fyrir:
1. nafni og aðsetri,
2. hve stór hluti eigin fjár er í eigu samstæðunnar í heild, og
3. hvort félagið er metið samkvæmt hlutdeildaraðferð.
Ef félag skv. 55. gr. C er tekið með í samstæðureikning skal fyrir hvert slíkt félag gera grein fyrir:
1. nafni og aðsetri,
2. hve stór hluti eigin fjár er í eigu samstæðunnar í heild, og
3. grundvelli fyrir sameiginlegri stjórn.] 1)
1)L. 56/2003, 32. gr.
[56. gr. C. Skýrsla stjórnar.
Í skýrslu stjórnar um samstæðuna skal veita upplýsingar eins og félögin í samstæðunni væru eitt félag. Í stað upplýsinga um fjárhæðir einstakra félaga eru fjárhæðir félaganna sem mynda samstæðuna lagðar saman eftir sömu aðferðum og gilda um samstæðureikninginn.
Ákvæði um skýrslu stjórnar, sbr. 52. gr., gilda um samstæðuna eftir því sem við á.
Sameina má skýrslur stjórnar móðurfélags og samstæðunnar ef þar má vandkvæðalaust finna þær upplýsingar sem lög þessi krefjast.] 1)
1)L. 56/2003, 32. gr.
[56. gr. D. Reikningsskil við samruna og skiptingu.
Þegar félög renna saman skal semja reikningsskil yfir samanlagðar eignir og skuldir félaganna. Ákvæði 54. gr. A – 55. gr. C skulu gilda um upphafsefnahagsreikning yfirtökufélags eða félags sem stofnað er við samrunann. Ákvæðin um móðurfélagið gilda um félagið sem heldur áfram starfsemi og ákvæðin um dótturfélag gilda um félagið sem hættir.
Í samrunareikningsskilum skal vera upphafsefnahagsreikningur yfirtökufélags eða félags sem stofnað er við samrunann, lokaefnahagsreikningur félaga sem renna saman og samrunafærslur sem samruninn krefst. Samrunareikningsskilum skulu fylgja skýringar sem eru nauðsynlegar til að gefa glögga mynd af félaginu sem heldur áfram starfsemi eða er stofnað við samrunann, ásamt þeim viðbótarupplýsingum sem þurfa að vera í samrunasamningnum.] 1)
1)L. 56/2003, 32. gr.
[56. gr. E. Ákvæði 56. gr. D skulu gilda um skiptingu félags með þeim leiðréttingum sem leiðir af skiptingunni.] 1)
1)L. 56/2003, 32. gr.
VII. kafli. Endurskoðun.
57. gr. [Aðalfundur eða almennur félagsfundur kýs einn eða fleiri endurskoðendur, endurskoðunarfélag eða skoðunarmenn, í samræmi við lög þessi og samþykktir félagsins. Í samþykktum má enn fremur fela opinberum eða öðrum aðilum að tilnefna einn eða fleiri endurskoðendur, endurskoðunarfélag eða skoðunarmenn.] 1)
Þegar félagsmenn, sem fara með minnst einn fimmta hluta atkvæða á aðalfundi þar sem kjósa skal endurskoðendur, endurskoðunarfélag eða skoðunarmenn, krefjast þess skal stjórn félagsins beina þeim tilmælum til viðkomandi félagaskrár að hún tilnefni endurskoðanda til að taka þátt í endurskoðunarstörfum með þeim sem kjörnir eru fram til næsta aðalfundar. Telji félagaskráin ástæðu til að verða við þessari ósk skal hún tilnefna endurskoðanda til starfans. Þóknun til hans skal félagið greiða.
1)L. 56/2003, 33. gr.
58. gr. Af þeim aðilum, sem kosnir eru til endurskoðunarstarfa, skal a.m.k. einn vera heimilisfastur hér á landi. Búsetuskilyrðið gildir þó ekki um ríkisborgara þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið enda séu viðkomandi ríkisborgarar búsettir í EES-ríki.
Skoðunarmenn skulu vera lögráða og fjár síns ráðandi. Þeir skulu hafa þá reynslu í bókhaldi og viðskiptaháttum sem með hliðsjón af starfsemi og stærð félagsins er nauðsynleg til rækslu starfans. Hæfisskilyrði 11. gr. laga nr. 67/1976, 1) um löggilta endurskoðendur, eiga einnig við um skoðunarmenn.
1)Nú l. 18/1997.
59. gr. Í félögum, þar sem bundið eigið fé er a.m.k. 50 milljónir króna, skuldir og bundið eigið fé er a.m.k. 100 milljónir króna, rekstrartekjur á ári eru a.m.k. 200 milljónir króna eða starfsmenn (ársmenn) eru fleiri en 50, skal kjósa a.m.k. einn endurskoðanda. Þegar ljóst er við stofnun félags eða upphaf rekstrar að einhverjum framangreindum mörkum verði þegar náð skal regla 1. málsl. gilda frá þeim tíma. Annars skal við það miðað að skuldir og bundið eigið fé hafi náð framangreindum mörkum í ársreikningum tveggja síðastliðinna reikningsára eða starfsmenn hafi verið fleiri en 50 tvö síðastliðin reikningsár.
Félög, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á opinberu verðbréfaþingi, skulu kjósa a.m.k. einn endurskoðanda.
Í félögum, þar sem ekki eru lagðar hömlur á viðskipti með eignarhluta, skal kjósa a.m.k. einn endurskoðanda.
Samvinnufélög, er hafa B-deild stofnsjóðs, skulu kjósa a.m.k. einn endurskoðanda.
Félagsmenn, sem fara með minnst einn fimmta hluta atkvæða á fundi þar sem kjósa skal endurskoðendur eða skoðunarmenn, geta á fundinum krafist þess að kosinn verði a.m.k. einn endurskoðandi.
60. gr. Kjósa skal a.m.k. einn af endurskoðendum eða skoðunarmönnum móðurfélags til að gegna sams konar starfa fyrir dótturfélag ef þess er nokkur kostur.
Ekki má kjósa neinn þann til endurskoðunarstarfa fyrir dótturfélag sem væri ekki hæfur til að gegna sama starfi fyrir móðurfélag.
Endurskoðandi eða skoðunarmaður má hvorki vera skuldugur félaginu eða félögum innan sömu [samstæðu] 1) né njóta ábyrgða af hálfu þeirra.
1)L. 56/2003, 34. gr.
61. gr. Í samþykktum félaga skal kveða á um starfstíma endurskoðenda eða skoðunarmanna. Starfi þeirra lýkur við lok þess aðalfundar þegar kjósa skal þá að nýju. Hafi endurskoðandi eða skoðunarmaður verið kosinn til ótiltekins tíma lýkur starfi hans þegar annar hefur verið kosinn í hans stað. Nú lýkur starfi endurskoðanda eða skoðunarmanns og skal þá tilkynna félagaskrá hvenær hann lætur af starfi. Í félögum, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á opinberu verðbréfaþingi, skal þegar í stað senda tilkynningu um starfslok endurskoðanda til verðbréfaþingsins.
Endurskoðendur og skoðunarmenn geta hvenær sem er sagt af sér störfum. Þeir sem kusu þá geta einnig leyst þá frá störfum þótt starfstíma þeirra sé ekki lokið.
Ljúki starfi endurskoðanda eða skoðunarmanns áður en kjörtímabili hans lýkur eða uppfylli hann ekki lengur skilyrði til starfans … 1) skal stjórn félagsins hlutast til um að nýr endurskoðandi eða skoðunarmaður verði þegar í stað valinn. Í félögum, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á opinberu verðbréfaþingi, skal boða til fundar innan viku frá því að endurskoðandi sagði starfi sínu lausu eða var leystur frá störfum þar sem kjósa skal annan endurskoðanda.
Hafi endurskoðandi eða skoðunarmaður sagt starfi sínu lausu eða verið leystur frá störfum skal hann veita þeim er kosinn er í hans stað upplýsingar um hverjar hann telur vera ástæður starfslokanna.
1)L. 56/2003, 35. gr.
62. gr. Ef endurskoðandi eða skoðunarmaður er ekki valinn, kjör hans brýtur í bága við lög þessi eða samþykktir félagsins eða hann uppfyllir ekki lengur hæfisskilyrði laganna skal félagaskrá tilnefna endurskoðanda eða skoðunarmann að ósk stjórnarmanns, framkvæmdastjóra eða félagsaðila.
Hafi félagsfundur ekki orðið við kröfu um að kjósa endurskoðanda skv. 4. mgr. 59. gr. tilnefnir félagaskrá endurskoðanda að ósk félagsmanns. Tilmælin skulu borin fram innan mánaðar frá því að félagsfundur var haldinn.
Tilnefning endurskoðanda eða skoðunarmanns samkvæmt þessari grein gildir uns endurskoðandi eða skoðunarmaður hefur verið kosinn.
63. gr. Endurskoðendur eða skoðunarmenn skulu endurskoða ársreikninginn í samræmi við góða endurskoðunarvenju og í því sambandi kanna bókhaldsgögn félagsins og aðra þætti er varða rekstur þess og stöðu.
Í móðurfélögum skulu endurskoðendur eða skoðunarmenn jafnframt endurskoða samstæðureikninginn.
Ef endurskoðendur eða skoðunarmenn verða þess varir að stjórnendur félags hafi í störfum sínum fyrir það ekki farið að lögum, þannig að það geti haft í för með sér ábyrgð fyrir þá eða félagið, eða brotið gegn félagssamþykktum skulu þeir gera aðalfundi grein fyrir því.
Ef kosinn er endurskoðandi eða endurskoðunarfélag jafnframt félagskjörnum skoðunarmönnum skal sú verkaskipting ríkja milli þeirra að endurskoðandinn annast endurskoðun reikninga félagsins í samræmi við 1. mgr. en skoðunarmenn skulu fylgjast með því að farið hafi verið eftir ákvörðunum félagsfunda og stjórnar um öflun, ráðstöfun og ávöxtun fjármuna og önnur atriði í rekstrinum á reikningsárinu.
Endurskoðandi eða skoðunarmaður skal verða við tilmælum félagsfundar um endurskoðunina ef þau eru ekki andstæð lögum, félagssamþykktum eða góðri endurskoðunarvenju.
64. gr. Stjórn félags og framkvæmdastjóri skulu koma á framfæri við endurskoðendur eða skoðunarmenn þeim upplýsingum og gögnum sem þeir telja að hafi þýðingu vegna endurskoðunarinnar. Stjórnendur dótturfélags hafa sömu skyldum að gegna gagnvart endurskoðendum og skoðunarmönnum móðurfélags.
Stjórn félags og framkvæmdastjóri skulu veita endurskoðendum og skoðunarmönnum þær upplýsingar, gögn, aðstöðu og aðstoð sem endurskoðendur eða skoðunarmenn telja nauðsynlega vegna starfa síns. Stjórnendur dótturfélags hafa sömu skyldum að gegna gagnvart endurskoðendum og skoðunarmönnum móðurfélags.
65. gr. Endurskoðendur eða skoðunarmenn skulu að lokinni endurskoðun árita ársreikninginn og enn fremur samstæðureikning ef hann er saminn og skal áritunin fylgja ársreikningnum.
Í árituninni skal koma fram að ársreikningurinn eða samstæðureikningurinn hafi verið endurskoðaður. Þá skal koma fram álit endurskoðenda eða skoðunarmanna á því hvort ársreikningurinn eða samstæðureikningurinn sé saminn í samræmi við ákvæði laga … 1) og góða reikningsskilavenju, svo og greinargerð um niðurstöðu endurskoðunarinnar að öðru leyti. Ef endurskoðendur eða skoðunarmenn telja að ekki beri að samþykkja ársreikninginn skulu þeir taka það fram sérstaklega.
[Endurskoðendur eða skoðunarmenn skulu sannreyna að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við ársreikninginn og vekja athygli á því í áritun sinni ef svo er ekki.] 1)
1)L. 56/2003, 36. gr.
66. gr. Ábendingar og athugasemdir, sem endurskoðendur eða skoðunarmenn vilja koma á framfæri við stjórn eða framkvæmdastjóra, skal skrá í sérstaka endurskoðunarbók eða færa fram skriflega á annan hátt. Stjórnin skal varðveita gögn þessi á öruggan hátt.
67. gr. Endurskoðendur og skoðunarmenn eiga rétt á að sitja félagsfundi. Þá skulu þeir sitja fundi ef félagsstjórn eða framkvæmdastjóri, einstakir stjórnarmenn eða félagsaðilar fara þess á leit. Í félögum, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á opinberu verðbréfaþingi, skulu endurskoðendur sitja aðalfundi.
Á aðalfundi skulu endurskoðendur eða skoðunarmenn svara fyrirspurnum um ársreikning þann sem til umfjöllunar er og þeir hafa áritað.
Enn fremur eiga endurskoðendur og skoðunarmenn rétt á að sitja stjórnarfundi þegar fjallað er um reikningsskil sem þeir hafa áritað. Þá skulu þeir sitja stjórnarfundi ef a.m.k. einn stjórnarmaður fer þess á leit.
68. gr. Endurskoðendum, skoðunarmönnum og samstarfsmönnum þeirra er óheimilt að veita einstökum félagsaðilum eða óviðkomandi aðilum upplýsingar um hag félagsins.
VIII. kafli. Birting ársreiknings.
69. gr. [Eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs, skal félag skv. 1. gr. senda ársreikningaskrá ársreikning sinn, sbr. 3. gr., ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna og upplýsingar um hvenær ársreikningurinn var samþykktur.] 1) Ársreikninga félaga, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á opinberu verðbréfaþingi, skal þó senda þegar í stað eftir samþykkt þeirra og eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Ef samþykkt á ráðstöfun hagnaðar eða jöfnun taps kemur ekki fram í ársreikningnum eða skýrslu stjórnar skal enn fremur senda staðfest endurrit úr gerðabók aðalfundarins þar sem greint er frá ráðstöfun hagnaðar eða jöfnun taps. [Á sama hátt skulu félög sem skyld eru til að semja samstæðureikninga skv. VI. kafla senda ársreikningaskrá samstæðureikning innan sama tímafrests ásamt skýrslu stjórnar og áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna.] 1)
[Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er félögum, sem fara ekki fram úr stærðarmörkunum í 2. mgr. 2. gr., heimilt að senda ársreikningaskrá samandregna útgáfu ársreiknings, sbr. 3. gr., ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna og upplýsingar um hvenær ársreikningurinn var samþykktur.] 1) Heimild þessi nær þó ekki til félaga sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á opinberu verðbréfaþingi og heldur ekki til félaga sem leggja ekki hömlur á viðskipti með eignarhluta sína.
[Ársreikningaskrá] 2) skal veita aðgang að þeim gögnum sem skilaskyld eru samkvæmt þessari grein.
[Ríkisskattstjóri starfrækir ársreikningaskrá.] 1)
1)L. 56/2003, 37. gr. Ákvæði greinarinnar taka gildi varðandi ársreikninga og samstæðureikninga vegna reikningsársins sem lýkur 31. desember 2002 eða síðar, sbr. 45. gr. s.l. 2)L. 58/2001, 3. gr.
70. gr. … 1)
1)L. 56/2003, 38. gr.
71. gr. Sameignarfélög og samlagsfélög, sem tilgreind eru í 2. gr., skulu senda [ársreikningaskrá] 1) tilkynningu um nafn, heimilisfang, félagsform og atvinnugrein sína samtímis því að þau senda henni í fyrsta sinn birtingarskyld gögn skv. 69. gr.
Sameignarfélög og samlagsfélög, sem nýta sér undanþáguheimildir 75. eða 76. gr., skulu veita upplýsingar um nöfn og heimilisföng þeirra félaga sem semja ársreikninga þeirra eða innifela þá í samstæðureikningum sínum ef eftir því er leitað.
1)L. 58/2001, 5. gr.
72. gr. Ef félag birtir ársreikning sinn eða samstæðureikning í heild skal hann vera í sama formi og hann var samþykktur á aðalfundi með áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna. … 1)
Nú er ársreikningur eða samstæðureikningur ekki birtur í heild og skal þá koma fram með ótvíræðum hætti að hann sé samandreginn. … 1)
1)L. 56/2003, 39. gr.
73. gr. [Útibússtjórar í útibúum erlendra félaga, sem skráð eru hér á landi, skulu í síðasta lagi átta mánuðum eftir lok reikningsárs senda staðfest endurrit ársreiknings eða samstæðureiknings félagsins til ársreikningaskrár ásamt reikningsskilum útibúsins.] 1)
Reikningar, sem sendir eru [ársreikningaskrá] 1) skv. 1. mgr., skulu vera í sama formi og ber að birta þá samkvæmt gildandi reglum í heimaríki félagsins.
Ársreikninga fyrir erlent félag, sem lýtur löggjöf EES-ríkis, má senda [ársreikningaskrá] 1) óendurskoðaða ef slíkt samræmist löggjöf í heimaríki félagsins.
[Ársreikningaskrá] 1) skal veita aðgang að þeim gögnum sem skilaskyld eru samkvæmt þessari grein.
1)L. 58/2001, 6. gr.
74. gr. Í stað þess að senda [ársreikningaskrá] 1) ársreikning sinn getur erlent dótturfélag, sem rekur útibú hér á landi og lýtur löggjöf annars EES-ríkis, sent [ársreikningaskrá] 1) samstæðureikning móðurfélags síns ef:
1. móðurfélagið lýtur löggjöf EES-ríkis;
2. allir félagsaðilar hafa samþykkt þessa aðferð;
3. móðurfélagið ábyrgist skuldbindingar félagsins;
4. reikningar félagsins og dótturfélaga þess eru teknir með í samstæðureikningi móðurfélagsins í samræmi við ákvæði laga þessara um samstæðureikninga;
5. getið er um reikningsskilaaðferðir við gerð samstæðureikningsins og
6. samstæðureikningurinn ásamt skýrslu stjórnar og áritun endurskoðenda er sendur [ársreikningaskrá] 1) ásamt staðfestingu á því sem tilgreint er í 2. og 3. tölul.
Í stað þess að senda [ársreikningaskrá] 1) ársreikninga sína geta önnur erlend félög sent henni samstæðureikning móðurfélaga sinna ef það samræmist þeirri löggjöf sem um þau gildir og
1. skilyrði 2., 3., 5. og 6. tölul. 1. mgr. eru uppfyllt og
2. [ársreikningaskrá] 1) telur að samstæðureikningarnir séu gerðir í samræmi við ákvæði laga þessara.
Tilkynning skv. 2. tölul. 1. mgr. skal send fyrir hvert reikningsár. Yfirlýsing um efni 3. tölul. 1. mgr. gildir uns hún hefur verið afturkölluð.
1)L. 58/2001, 7. gr.
75. gr. Sameignarfélag eða samlagsfélag, sem tilgreint er í 2. gr., þarf ekki að senda [ársreikningaskrá] 1) ársreikning sinn ef a.m.k. einn af félagsaðilum þess er heimilisfastur hér á landi, semur ársreikning fyrir félagið og lætur endurskoða hann og senda skránni ásamt sínum eigin ársreikningi.
Félag, sem um ræðir í 1. mgr. þar sem enginn félagsaðili er heimilisfastur hér á landi, þarf ekki að senda [ársreikningaskrá] 1) ársreikning sinn ef einhver félagsaðili þess:
1. lýtur löggjöf EES-ríkis;
2. semur ársreikning fyrir félagið og lætur endurskoða hann samkvæmt ákvæðum þeirrar löggjafar og
3. sendir [ársreikningaskrá] 1) ársreikninginn innan þeirra tímamarka, sem greinir í 1. mgr. 69. gr., ásamt sínum eigin ársreikningi eða opinbera staðfestingu á að ársreikningar félagsins hafi verið birtir í samræmi við löggjöfina sem nefnd er í 1. tölul.
Félagsaðili getur haft ársreikning skv. 1. mgr. sem hluta af eigin ársskýrslu.
1)L. 58/2001, 8. gr.
76. gr. Sameignarfélag eða samlagsfélag, sem tilgreint er í 2. gr., þarf ekki að senda [ársreikningaskrá] 1) ársreikning sinn ef hann er hluti af samstæðureikningi félagsaðila sem saminn er og endurskoðaður í samræmi við ákvæði laga þessara og sendur [ársreikningaskrá]. 1)
Ákvæði 1. mgr. eiga enn fremur við ef ársreikningur félags er hluti af samstæðureikningi móðurfélags þess félagsaðila sem ekki er skylt að senda [ársreikningaskrá] 1) samstæðureikning sinn, sbr. [2. gr.] 2)
Í samstæðureikningum þeim sem greinir í 1. og 2. mgr. skal geta þess í skýringum ef félag skv. 2. gr. sendir [ársreikningaskrá] 1) ekki ársreikning sinn.
Innan tímamarka 1. mgr. 69. gr. skal senda [ársreikningaskrá] 1) samstæðureikninga skv. 1. og 2. mgr. eða staðfestingu opinbers aðila á að ársreikningur hafi verið saminn og birtur í samræmi við ákvæði 1. mgr.
1)L. 58/2001, 9. gr. 2)L. 56/2003, 40. gr.
77. gr. Þegar sérstakar samkeppnisaðstæður mæla með því geta félög, sem á reikningsskiladegi fara ekki fram úr tvennum af eftirfarandi stærðarmörkum, sent [ársreikningaskrá] 1) samandreginn rekstrarreikning, samkvæmt nánari reglum sem fjármálaráðherra setur:
1. eignir nema samtals 500 milljónum kr.;
2. rekstrartekjur nema samtals 1.000 milljónum kr.;
3. fjöldi ársverka á reikningsári er a.m.k. 250.
Heimildinni til þess að beita ákvæði 1. mgr. má aðeins breyta ef félag hefur á reikningsskiladegi farið fram úr eða fer ekki lengur fram úr tvennum af þeim mörkum, sem nefnd eru í 1. mgr., tvö reikningsár í röð.
1)L. 58/2001, 10. gr.
78. gr. [Ársreikningaskrá skal gera úrtakskannanir og athuganir á ársreikningum, samstæðureikningum og skýrslum stjórna í því skyni að sannreyna að þessi gögn séu í samræmi við ákvæði þessara laga. Hún getur krafist þeirra upplýsinga hjá hverju félagi sem nauðsynlegar eru í þessu sambandi.
Í því skyni að sannreyna hvort félög uppfylli ákvæði laganna um stærðarmörk til að mega skila samandregnum ársreikningum og samstæðureikningum hefur ársreikningaskrá heimild til að afla upplýsinga hjá ríkisskattstjóra um nöfn og kennitölur þeirra félaga sem lög þessi taka til og fara yfir þau stærðarmörk sem greinir í [2. gr.] 1)] 2)
1)L. 56/2003, 41. gr. 2)L. 58/2001, 11. gr.
IX. kafli. Reikningsskilaráð og góð reikningsskilavenja.
79. gr. Ráðherra skal skipa fimm sérfróða menn til fjögurra ára í senn í nefnd sem nefnist reikningsskilaráð. Skal einn nefndarmanna tilnefndur af Félagi löggiltra endurskoðenda, annar af viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, þriðji af Verslunarráði Íslands, sá fjórði skal vera ríkisendurskoðandi en einn nefndarmaður er skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann reikningsskilaráðs úr hópi nefndarmanna.
80. gr. Reikningsskilaráð skal stuðla að mótun góðrar reikningsskilavenju með útgáfu og kynningu samræmdra reglna 1) sem farið skal eftir við gerð reikningsskila. Ráðið skal gefa álit á því hvað telst góð reikningsskilavenja á hverjum tíma. [Birta skal reglur reikningsskilaráðs í B-deild Stjórnartíðinda.] 2)
Ráðið skal starfa í nánu samráði við Félag löggiltra endurskoðenda og hagsmunaaðila. Það getur einnig verið stjórnvöldum til ráðuneytis um ákvæði sem sett eru í lögum eða reglugerðum um reikningsskil.
1) Augl. 670/1999, augl. 671/1999, augl. 349/2000. 2)L. 133/2001, 52. gr.
81. gr. Ráðherra ákveður skiptingu kostnaðar við störf reikningsskilaráðs að höfðu samráði við tilnefningaraðila.
[X. kafli. Viðurlög og málsmeðferð.]1)
1)L. 37/1995, 3. gr.
[82. gr. Hver sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi brýtur gegn ákvæðum laga þessara á þann hátt sem lýst er í 84.–87. gr. skal sæta fésektum, en brot gegn 83. gr. og önnur meiri háttar brot gegn 84. og 85. gr. varða … 1) fangelsi allt að sex árum skv. 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga eða fésektum ef málsbætur eru miklar.] 2)
1)L. 82/1998, 217. gr. 2)L. 37/1995, 3. gr.
[83. gr. Svofelld háttsemi stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra félaga skv. 1. gr. telst ætíð meiri háttar brot gegn þeim:
1. Ef þeir láta undir höfuð leggjast að semja ársreikning eða samstæðureikning er hafi að geyma þá reikninga, yfirlit og skýringar sem lög þessi kveða á um.
2. Ef þeir rangfæra ársreikning, samstæðureikning eða einstaka hluta þeirra, byggja ekki samningu þeirra á niðurstöðu bókhalds eða láta rangar eða villandi skýringar fylgja, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningarlaga.
Sama á við ef maður aðstoðar stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félaga við þau brot sem lýst er í þessari grein eða stuðlar að þeim á annan hátt.] 1)
1)L. 37/1995, 3. gr.
[84. gr. Stjórnarmenn eða framkvæmdastjóri félags skv. 1. gr. gerast sekir um refsivert brot gegn lögum þessum með athöfnum þeim eða athafnaleysi því sem hér greinir:
1. Ef þeir haga gerð ársreiknings eða samstæðureiknings andstætt lögum þessum þannig að reikningsskilin gefi ekki glögga mynd í samræmi við góða reikningsskilavenju af rekstrarafkomu á reikningsárinu, eignabreytingu á árinu og efnahag í lok þess eða þeir brjóta í bága við fyrirmæli í VII. og VIII. kafla laga þessara, enda liggi ekki við broti þessu þyngri refsing samkvæmt þeim lögum eða öðrum.
2. Ef þeir í skýrslu stjórnar greina ranglega frá eða leyna mikilsverðum upplýsingum sem þýðingu hafa um mat á fjárhagslegri stöðu félagsins eða [samstæðunnar] 1) og á afkomu þeirra á reikningsárinu.
Sama á við ef maður aðstoðar stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félaga við þau brot sem lýst er í þessari grein eða stuðlar að þeim á annan hátt.] 2)
1)L. 56/2003, 42. gr. 2)L. 37/1995, 3. gr.
[85. gr. Endurskoðendur eða skoðunarmenn gerast sekir um refsiverð brot gegn lögum þessum með athöfnum eða athafnaleysi því sem hér greinir:
1. Ef þeir taka að sér að framkvæma endurskoðun án þess að uppfylla hæfisskilyrði laganna.
2. Ef þeir haga störfum sínum andstætt ákvæðum laga þessara eða í ósamræmi við góða endurskoðunarvenju.
3. Ef þeir með áritun sinni gefa rangar eða villandi upplýsingar eða láta hjá líða að geta um mikilsverð atriði er snerta rekstrarafkomu eða efnahag félagsins.] 1)
1)L. 37/1995, 3. gr.
[86. gr. Tilraun til brota og hlutdeild í brotum á lögum þessum, önnur en sú sem lýst er í 83. og 84. gr. laga þessara, er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga.] 1)
1)L. 37/1995, 3. gr.
[87. gr. Gera má lögaðila fésekt fyrir brot gegn lögum þessum óháð því hvort brotið megi rekja til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns lögaðilans. Hafi fyrirsvarsmaður hans eða starfsmaður gerst sekur um brot á lögum þessum má auk þeirrar refsingar, sem hann sætir, gera lögaðilanum sekt og sviptingu starfsréttinda, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af brotinu.] 1)
1)L. 37/1995, 3. gr.
[88. gr. [Ríkislögreglustjóri] 1) fer með frumrannsókn opinberra mála vegna brota á lögum þessum. Skattrannsóknarstjóri ríkisins getur á hvaða stigi rannsóknar sem er vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunautar ef hann vill ekki hlíta því að málið verði fengið yfirskattanefnd til úrlausnar.
Yfirskattanefnd úrskurðar sektir vegna brota á lögum þessum, nema máli sé vísað til opinberrar rannsóknar og dómsmeðferðar skv. 1. mgr. Skattrannsóknarstjóri ríkisins leggur mál fyrir yfirskattanefnd og kemur fram af hálfu hins opinbera fyrir nefndinni þegar hún úrskurðar sektir. Úrskurðir yfirskattanefndar eru fullnaðarúrskurðir. Vararefsing fylgir ekki sektarúrskurðum hennar.
Sektir fyrir brot á lögum þessum renna í ríkissjóð.
Sakir samkvæmt lögum þessum fyrnast á sex árum miðað við upphaf rannsóknar á vegum skattrannsóknarstjóra ríkisins eða [ríkislögreglustjóra] 1) eða hjá löglærðum fulltrúum þeirra, gegn manni sem sökunaut, enda verði ekki óeðlilegar tafir á rannsókn máls eða ákvörðun refsingar.] 2)
1)L. 56/2003, 43. gr. 2)L. 37/1995, 3. gr.
[XI. kafli.]1) Ýmis ákvæði.
1)L. 37/1995, 3. gr.
[89. gr.]1) Ráðherra getur sett reglugerð 2) um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um uppsetningu ársreikninga og samstæðureikninga, óstyttra og samandreginna, svo og um skil á þeim og birtingu þeirra.
Viðmiðunarmörkin í 1. og 2. tölul. 2. mgr. 2. gr. og 1. og 2. tölul. [2. gr.], 3) svo og 59. gr. og 77. gr., eru grunnfjárhæðir sem miðast við gengi í [evru] 3) 1. janúar 1995. Ráðherra er heimilt að breyta þessum fjárhæðum til samræmis við breytingar á 4. tilskipun ESB eða ef verulegar breytingar verða á gengi [evru]. 3) 4)
1)L. 37/1995, 3. gr. 2)Rg. 134/1996, rg. 523/2001. 3)L. 56/2003, 44. gr. 4)Rg. 242/2000.
[90. gr.]1) [Félög sem fengið hafa heimild til að semja ársreikning í erlendum gjaldmiðli, sbr. 11. gr. A, skulu umreikna fjárhæðir í efnahagsreikningi fyrra árs á lokagengi þess árs. Þó er heimilt að umreikna efnahagsliði, aðra en peningalegar eignir og skuldir, svo sem varanlega rekstrarfjármuni og eignarhluti, á upphaflegu kaupgengi. Jafnframt er heimilt að umreikna innborgað hlutafé eða stofnfé á því gengi sem gilti þegar innborganir fóru fram. Við umreikninginn skal lögbundinn varasjóður nema sama hlutfalli af hlutafé í erlendum gjaldmiðli og hann nam í íslenskum krónum. Hinar umreiknuðu fjárhæðir mynda upphafsstærðir í bókhaldi í erlendum gjaldmiðli og skal gera grein fyrir umreikningsaðferðum í skýringum við ársreikning.] 2)
1)L. 37/1995, 3. gr. 2)L. 25/2002, 6. gr.
[91. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1995 og skulu gilda um ársreikninga og samstæðureikninga fyrir hvert það reikningsár sem hefst frá og með þeim tíma.
1)L. 37/1995, 3. gr.
[92. gr.]1) …
1)L. 37/1995, 3. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
[I. Við fyrstu reikningsskil eftir gildistöku laga þessara skal leysa upp endurmatsreikning sem myndaður hefur verið skv. a-lið 1. mgr. 25. gr. og færa með öðru óráðstöfuðu eigin fé félagsins.] 1)
1)L. 133/2001, 53. gr. Breytingin kemur til framkvæmda við álagningu á árinu 2003, sbr. 56. gr. s.l.
[II. Félögum skv. 1. mgr. 1. gr. er heimilt að taka tillit til áhrifa almennra verðlagsbreytinga við gerð ársreikninga vegna reikningsára sem hefjast á árunum 2002 og 2003 í samræmi við a-lið 1. mgr. 25. gr., sbr. 3. mgr. sömu greinar fyrir gildistöku laga þessara.] 1)
1)L. 133/2001, 53. gr. Breytingin kemur til framkvæmda við álagningu á árinu 2003, sbr. 56. gr. s.l.
[III. Félög, sem óska eftir að færa bókhald og semja ársreikning vegna reikningsársins 2002 í erlendum gjaldmiðli, hafa frest til 30. apríl 2002 til að sækja um slíka heimild.] 1)
1)L. 25/2002, 7. gr.