Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2005. Útgáfa 131b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um vátryggingastarfsemi
1994 nr. 60 11. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. apríl 1994, að undanskildum 34. og 35. gr. sem tóku gildi 1. júlí 1994. EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 64/225/EBE, 72/166/EBE, 73/239/EBE, 73/240/EBE, 74/165/EBE, 77/92/EBE, 78/473/EBE og 79/267/EBE, I. viðauki tilskipun 81/76/EBE, IX. viðauki tilskipun 84/5/EBE, 87/344/EBE, 88/357/EBE, 90/232/EBE, 90/619/EBE og 91/674/EBE, I. viðauki tilskipun 92/48/EBE, IX. viðauki tilskipun 92/49/EBE og 92/96/EBE. Breytt með l. 139/1994 (tóku gildi 31. des. 1994), l. 63/1997 (tóku gildi 30. maí 1997; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 64/225/EBE, 73/239/EBE og tilskipun 77/92/EBE, XXII. viðauki tilskipun 83/349/EBE, IX. viðauki tilskipun 87/344/EBE og 88/357/EBE), l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 84/1998 (tóku gildi 1. jan. 1999), l. 11/2000 (tóku gildi 28. apríl 2000), l. 97/2000 (tóku gildi 6. júní 2000; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 6. gr.; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 78/660/EBE og IX. viðauki tilskipun 98/78/EB), l. 69/2001 (tóku gildi 13. júní 2001; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2000/12/EBE), l. 76/2002 (tóku gildi 17. maí 2002), l. 28/2003 (tóku gildi 3. apríl 2003; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 73/239/EBE), l. 34/2003 (tóku gildi 3. apríl 2003; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2001/17/EB), l. 37/2003 (tóku gildi 3. apríl 2003; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 1973/239/EBE og 1979/267/EBE), l. 30/2004 (taka gildi 1. jan. 2006), l. 130/2004 (tóku gildi 1. jan. 2005, sjá nánar um lagaskil í 21. gr.; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2002/87/EB og 2001/24/EB) og l. 32/2005 (tóku gildi 25. maí 2005; EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2002/92/EB).
I. kafli. Gildissvið. Skilgreining hugtaka. Mörk við aðra starfsemi.
Gildissvið.
1. gr. Lög þessi gilda um vátryggingastarfsemi. … 1) Starfsemi, sem fellur undir lög þessi, er háð starfsleyfi.
1)L. 32/2005, 65. gr.
2. gr. Eftirtaldir aðilar mega reka vátryggingastarfsemi hér á landi:
1. Hlutafélög og gagnkvæm félög sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi skv. 26. gr.
2. Erlend vátryggingafélög með aðalstöðvar á Evrópsku efnahagssvæði sem hafa fengið starfsleyfi í heimaríki, sbr. 64. og 65. gr.
[3. Erlend vátryggingafélög með aðalstöðvar í Sviss sem hafa fengið starfsleyfi þar, sbr. 64. og 65. gr.] 1)
[4. ] 1) Erlend vátryggingafélög með aðalstöðvar utan hins Evrópska efnahagssvæðis sem fá leyfi til að reka útibú hér á landi, sbr. 71. gr.
Um vátryggingahlutafélög gilda ákvæði laga um hlutafélög og um gagnkvæm vátryggingafélög, sem stofnuð eru og rekin í samvinnufélagsformi, ákvæði laga um samvinnufélög nema annað leiði af ákvæðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim.
Félög sem stofnuð eru með sérlögum til að reka vátryggingastarfsemi mega reka þessa starfsemi í hlutafélagsformi sem gagnkvæm félög eða á öðru lögmæltu félagsformi enda búi þau við sömu rekstrarskilyrði og einkafélög og uppfylli ákvæði II. kafla. Sama gildir um erlend vátryggingafélög sem leyfi fá til að reka vátryggingastarfsemi hér á landi.
[Ákvæði VII. kafla um starfsemi erlendra vátryggingafélaga gilda ekki um endurtryggingar sem þau vátryggingafélög, sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi skv. 26. gr., kaupa erlendis.] 2)
1)L. 76/2002, 51. gr. 2)L. 63/1997, 1. gr.
3. gr. Lögin gilda ekki um eftirlaunasjóði, lífeyrissjóði og sjúkrasjóði einstakra atvinnustétta, starfshópa og fyrirtækja eða um Tryggingastofnun ríkisins, Atvinnuleysistryggingasjóð og hliðstæðar stofnanir sem reknar eru samkvæmt sérstökum lögum nema að því leyti sem þessir aðilar kunna að hafa með höndum vátryggingastarfsemi.
4. gr. Lög þessi gilda um félagasamstæður, sbr. 7. gr., þegar móðurfélagið er vátryggingafélag. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur ákveðið að ákvæði laganna um félagasamstæður skuli eiga við um tengsl félags sem ekki er vátryggingafélag og vátryggingafélaga þegar litið væri á hið fyrrnefnda sem móðurfélag samkvæmt lögum þessum ef það ræki vátryggingastarfsemi.
[Fjármálaeftirlitið] 1) getur einnig ákveðið að lögin taki til félaga sem teljast ekki félagasamstæður þegar veruleg innbyrðis tengsl eru á milli þeirra. Félögin skulu þá tilnefna eitt þeirra sem móðurfélag.
Við mat á því hvort um yfirráð í félagi sé að ræða, sbr. 7. gr., skal leggja saman réttindi móðurfélags og dótturfélags eða dótturfélaga.
1)L. 84/1998, 5. gr.
5. gr. Enginn má í atvinnuskyni stuðla að því að vátryggingaáhætta sem hér er, sbr. 8. gr., sé frumtryggð annars staðar en hjá vátryggingafélögum sem hér hafa starfsleyfi. Starfsleyfi vátryggingafélags í aðildarríki hins Evrópska efnahagssvæðis telst jafngilda starfsleyfi hér á landi, enda sé fullnægt skilyrðum um heimildir til stofnunar útibús eða til að veita þjónustu, sbr. VII. kafla.
[Fjármálaeftirlitið] 1) getur, þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, heimilað undanþágur frá banni skv. 1. málsl. 1. mgr.
1)L. 84/1998, 5. gr.
Skilgreining hugtaka.
6. gr. Með starfsstöð vátryggingafélags er í lögum þessum átt við:
1. Aðalstöðvar félagsins samkvæmt samþykktum þess.
2. Útibú.
3. Skrifstofu undir stjórn starfsliðs erlends vátryggingafélags.
4. Aðsetur einstaklings með umboð erlends vátryggingafélags til að starfa á vegum þess.
Þegar erlent vátryggingafélag starfar hér á landi eins og segir í 3. eða 4. tölul. 1. mgr. skal litið svo á að félagið hafi hér starfsemi sem jafngildir útibúi og skal félagið uppfylla þau skilyrði VII. kafla sem að slíkri starfsemi lúta.
7. gr. Í lögum þessum merkir:
— móðurfélag, félag sem hefur yfirráð í öðru félagi,
— dótturfélag, félag sem móðurfélag hefur yfirráð yfir; dótturfélag dótturfélags telst einnig dótturfélag móðurfélagsins,
[— eignarhaldsfélag á vátryggingasviði, fyrirtæki, sem ekki er blandað eignarhaldsfélag á vátryggingasviði, þar sem meginstarfsemin er að eiga hluti í dótturfyrirtækjum sem eru annaðhvort eingöngu eða aðallega vátryggingafélög,
— blandað eignarhaldsfélag á vátryggingasviði, fyrirtæki, sem ekki er vátryggingafélag, eignarhaldsfélag á vátryggingasviði eða blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi, þar sem að minnsta kosti eitt dótturfélag er vátryggingafélag,
— blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi, móðurfélag sem ekki er eftirlitsskylt en það ásamt dótturfélögum sínum, en a.m.k. eitt þeirra er eftirlitsskylt og er með höfuðstöðvar í aðildarríki, og öðrum aðilum myndar fjármálasamsteypu.] 1)
— yfirráð, að félag (móðurfélag) ráði yfir meiri hluta atkvæða í öðru félagi, eða
eigi eignarhluti í öðru félagi og hafi rétt til að tilnefna eða víkja frá meiri hluta stjórnarmanna eða stjórnenda, eða
eigi eignarhluti í öðru félagi og hafi rétt til að hafa afgerandi áhrif á starfsemi þess á grundvelli samþykkta félagsins eða samninga við það, eða
eigi eignarhluti í öðru félagi og ráði meiri hluta í félaginu á grundvelli samnings við aðra hluthafa eða aðra eignaraðila, eða
eigi eignarhluti í öðru félagi og hafi ráðandi stöðu í því, eða
hliðstæð tengsl einstaklinga eða lögaðila við félag,
— félagasamstæða, móður- og dótturfélag eða dótturfélög í sameiningu,
[— fjármálasamsteypa, samstæða félaga, eða félög sem hafa með sér náin tengsl, þar sem eftirlitsskyldur aðili fer fyrir samstæðunni og a.m.k. einn aðili innan samstæðunnar starfar á vátryggingasviði og annar aðili starfar á fjármálasviði og þar sem umsvif á samstæðugrundvelli og/eða samanlögð umsvif á vátryggingasviði annars vegar og hins vegar samsvarandi umsvif á fjármálasviði eru hvor um sig talin mikilvæg samkvæmt reglum sem Fjármálaeftirlitið setur; fari enginn eftirlitsskyldur aðili fyrir samstæðunni, en starfsemi samstæðunnar fer aðallega fram á fjármála- eða vátryggingasviði samkvæmt skilgreiningu í reglum sem Fjármálaeftirlitið setur, telst samstæðan vera fjármálasamsteypa; sérhverja undirsamstæðu sem uppfyllir skilyrði upphafsliðar orðskýringarinnar skal líta á sem fjármálasamsteypu], 1)
[— hlutdeildarfélag, félag, þó ekki dótturfélag, sem annað félag og dótturfélög þess eiga eignarhlut í og hafa veruleg áhrif á, en félag er talið hafa veruleg áhrif ef það og dótturfélög þess fara með 20% eða meira af atkvæðum í hlutdeildarfélaginu], 2)
— virkur eignarhlutur, beina eða óbeina hlutdeild í félagi sem nemur 10% eða meira af eigin fé eða atkvæðisrétti eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi félags,
— [aðildarríki, ríki sem er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu eða aðili að stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu], 3)
— heimaríki, aðildarríki þar sem aðalstöðvar vátryggingafélags eru og starfsleyfi er gefið út,
— gistiríki, aðildarríki þar sem vátryggingafélag með aðalstöðvar í öðru aðildarríki hefur útibú eða veitir þjónustu án starfsstöðvar,
— aðildarríki þar sem þjónusta er veitt, aðildarríki þar sem vátryggingafélag eða útibú í öðru aðildarríki vátryggir áhættu sem þar er, sbr. 8. gr., án þess að hafa þar starfsstöð,
— þriðja ríki, ríki utan hins Evrópska efnahagssvæðis,
— reglulegur markaður, fjármálamarkað í aðildarríki eða þriðja ríki sem heimaríki telur reglulegan markað og einkennist af reglulegri starfsemi og reglum sem samþykktar eru og gefnar út af hlutaðeigandi yfirvöldum sem skilgreina skilyrði fyrir starfsemi og aðgang að markaðnum,
— eftirlitsstjórnvöld, þann aðila sem samkvæmt lögum hlutaðeigandi ríkis fer með eftirlit með vátryggingafélögum og vátryggingastarfsemi, hér á landi [Fjármálaeftirlitið], 4)
[— náin tengsl, tengsl vátryggingafélags við
a. önnur félög í félagasamstæðu sem vátryggingafélagið tilheyrir,
b. þá sem eiga virkan eignarhlut í vátryggingafélaginu, þó þannig að hlutdeildin nemi minnst 20%,
c. þá sem eiga virkan eignarhlut í móðurfélagi vátryggingafélags, þó þannig að hlutdeildin nemi minnst 20%,
d. félög sem vátryggingafélagið á virkan eignarhlut í, þó þannig að hlutdeildin nemi minnst 20%,
e. félög sem vátryggingafélagið á hlut í og sem félagasamstæða, sem vátryggingafélagið tilheyrir, á virkan eignarhlut í, þó þannig að samanlögð hlutdeild þeirra nemi minnst 20%,
[f. einstaklinga eða félög sem eru varanlega tengd sömu persónunni með yfirráðatengslum], 1)
…5)
— vátryggingasölumaður, [starfsmann sem starfar á vegum og á ábyrgð vátryggingamiðlara, vátryggingaumboðsmanns eða vátryggingafélags.] 5)] 6)
1)L. 130/2004, 16. gr. 2)L. 97/2000, 1. gr. 3)L. 34/2003, 1. gr. 4)L. 84/1998, 5. gr. 5)L. 32/2005, 65. gr. 6)L. 63/1997, 2. gr.
8. gr. Í lögum þessum er ríkið þar sem vátryggingaáhætta er:
— í eignatryggingum: ríkið þar sem hin vátryggða eign er þegar mannvirki eru vátryggð eða mannvirki ásamt lausafé vátryggt í sama vátryggingasamningi,
— í ökutækjatryggingum: ríkið þar sem ökutæki er skráð,
— í ferðatryggingum: ríkið þar sem vátryggingataki keypti vátrygginguna enda sé gildistími hennar eigi lengri en fjórir mánuðir,
— í öðrum skaðatryggingum (frumtryggingum): ríkið þar sem vátryggingataki hefur aðsetur að jafnaði eða, þegar um lögaðila er að ræða, það aðildarríki þar sem aðsetrið er sem helst tengist vátryggingasamningnum sem gerður er,
— í persónutryggingum: ríkið þar sem skuldbindingin komst á, þ.e. þar sem vátryggingataki hefur aðsetur að jafnaði eða, þegar um lögaðila er að ræða, það ríki þar sem aðsetrið er sem helst tengist vátryggingasamningnum sem gerður er (starfsemin fer fram).
Með stóráhættu er í lögum þessum átt við greinaflokka vátrygginga er tengjast atvinnurekstri og stærri fyrirtækjum sérstaklega. Greinaflokkar skv. 1. mgr. 22. gr. nr. 4, 5, 6, 7, 11, 12, 14 og 15 teljast stóráhætta. Einnig teljast skaðatryggingar stórfyrirtækja í greinaflokkum nr. 3, 8, 9, 10, 13 og 16 til stóráhættu. [Stórfyrirtæki teljast þau fyrirtæki sem uppfylla a.m.k. tvö eftirfarandi skilyrða: að niðurstöðutala efnahagsreiknings nái 6,2 milljónum ecu, að ársvelta nái 12,8 milljónum ecu og að ársverk á reikningsárinu séu a.m.k. 250. Sé fyrirtæki hluti félagasamstæðu skal miða við samstæðuna í heild á grundvelli samstæðureiknings. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur heimilað að litið sé á starfsgreinasamtök, sameiginleg verkefni eða fyrirtæki sem tímabundið mynda hóp sem eitt fyrirtæki í skilningi þessarar málsgreinar.] 2)
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 63/1997, 3. gr.
Mörk við aðra starfsemi.
9. gr. Vátryggingafélag má ekki reka aðra starfsemi en vátryggingastarfsemi nema annað leiði af ákvæðum 11. gr.
Vátryggingafélag telst reka aðra starfsemi en vátryggingastarfsemi ef félagið hefur yfirráð, eitt sér eða ásamt öðru vátryggingafélagi, í félagi sem rekur aðra starfsemi en vátryggingastarfsemi. Þegar um félagasamstæðu er að ræða eða vátryggingafélög í beinum eða óbeinum rekstrarlegum tengslum við önnur félög og móðurfélagið er ekki vátryggingafélag skal í þessu sambandi litið á vátryggingafélögin sem eitt félag.
Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. er vátryggingafélagi heimilt að reka viðskiptabanka eða aðra fjármálastarfsemi í sérstöku félagi, enda sé starfsemin háð starfsleyfi og eftirliti opinberra aðila.
Vátryggingafélag má ekki taka á sig ábyrgðir sem ekki eru vátryggingar. Því er óheimilt að taka á sig skuldbindingar sem ekki eru í tengslum við eðlilegan rekstur vátryggingafélags.
10. gr. Líftryggingastarfsemi má ekki reka með annarri vátryggingastarfsemi. Þó má félag hafa með höndum endurtryggingar á líftryggingum samhliða annarri vátryggingastarfsemi. Einnig má veita líftryggingafélagi starfsleyfi í slysa- og sjúkratryggingum.
11. gr. Vátryggingafélagi er heimilt að reka eftirfarandi hliðarstarfsemi:
1. Umboð fyrir vátryggingafélög sem leyfi hafa til að starfa hér á landi og fyrir önnur félög sem lúta eftirliti [Fjármálaeftirlitsins] 1) eða annarra opinberra aðila.
2. Að reisa, eiga og reka fasteignir sem lið í fjárfestingu til ávöxtunar á fjármunum félagsins til lengri tíma.
3. Tjónsuppgjör og tjónavarnastarfsemi.
4. Rekstur og umsjón með sjóðum er tengjast eða eru hliðstæðir vátryggingastarfsemi.
5. Aðra umsýslu í beinu framhaldi af og í eðlilegum tengslum við vátryggingastarfsemi.
Starfsemi skv. 5. tölul. er háð leyfi [Fjármálaeftirlitsins]. 1) [Fjármálaeftirlitið] 1) getur ákveðið að starfsemi, sem fellur undir 5. tölul., skuli rekin af sjálfstæðu félagi.
1)L. 84/1998, 5. gr.
12. gr. Vátryggingastarfsemi og hliðarstarfsemi skv. 11. gr. skal rekin í samræmi við góða viðskiptahætti og venjur í vátryggingaviðskiptum og með hag vátryggingataka og vátryggðra fyrir augum. Verði misbrestur á skal [Fjármálaeftirlitið] 1) gefa fyrirmæli um að ráðin verði bót á því sem úrskeiðis hefur farið.
1)L. 84/1998, 5. gr.
13. gr. Í heiti vátryggingafélags skal koma greinilega fram að um vátryggingafélag sé að ræða. Aðrir en þeir sem leyfi hafa til vátryggingastarfsemi mega ekki bera heiti sem kunna að benda til eða gefa í skyn að þeir reki vátryggingastarfsemi eða láta nokkuð frá sér fara opinberlega, í prentuðu máli eða á annan hátt, sem skilja mætti á þann veg að vátryggingastarfsemi sé rekin.
Félagsform vátryggingafélags skal koma greinilega fram í heiti þess. Þegar gefnar eru upplýsingar opinberlega eða á annan hátt með tilkynningum til almennings um upphæð hlutafjár eða stofnfjár skal bæði koma fram skráð fé og hversu mikið er innborgað.
… 1)
1)L. 32/2005, 65. gr.
II. kafli. Stofnun vátryggingafélags. Starfsleyfi og skráning í vátryggingafélagaskrá.
Stofnun vátryggingafélags.
14. gr. Stofnendur vátryggingafélags skulu gera og undirrita skriflegan stofnsamning. Í stofnsamningi skulu vera drög að samþykktum félagsins og ákvarðanir um þau atriði sem tilgreind eru í 15. gr.
Stofnendur skulu hið fæsta vera þrír. Meiri hluti stofnenda skal vera búsettur á Íslandi. Stofnendur geta verið einstaklingar, íslenska ríkið og stofnanir þess, sveitarfélög á Íslandi og stofnanir þeirra, vátryggingafélög með heimilisfang hér á landi, skráð hlutafélög, skráð samvinnufélög, önnur skráð félög með takmarkaðri ábyrgð, skráð sameignarfélög, skráð samlagsfélög, svo og sjálfseignarstofnanir sem eru undir opinberu eftirliti með aðsetur hér á landi. [Stofnendur skulu vera lögráða, hafa óflekkað mannorð og mega ekki á síðustu fimm árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld, svo og löggjöf um vátryggingastarfsemi. Stofnandi má hvorki vera í greiðslustöðvun né hafa verið úrskurðaður gjaldþrota á síðustu fimm árum.] 1)
Sá sem undirritar stofnsamning og önnur stofnskjöl fyrir hönd lögaðila skal fullnægja þeim skilyrðum er segir um einstaklinga. Hann ber auk umbjóðanda síns ábyrgð svo sem sjálfur væri hann stofnandi nema á greiðslu þess hlutafjár eða stofnfjár sem umbjóðandi hans hefur skrifað sig fyrir.
[Ríkisborgarar og lögaðilar þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, svo og ríkisborgarar og lögaðilar aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu, eru undanþegnir búsetuskilyrðum 2. mgr. enda séu viðkomandi ríkisborgarar búsettir í EES-ríki eða aðildarríki stofnsamningsins eða lögaðilarnir með aðsetur þar. Ráðherra er heimilt að veita undanþágu frá búsetuskilyrðum.] 2)
1)L. 63/1997, 5. gr. 2)L. 76/2002, 52. gr.
15. gr. Í stofnsamningi vátryggingafélags skal eftirfarandi koma fram:
1. Nöfn og heimilisföng stofnenda.
2. Hve mikið skuli greiða fyrir hvern hlut í félaginu.
3. Frestir sem kunna að vera veittir til áskriftar að hlutum og til greiðslu þeirra.
4. Reglur um innborgun hlutafjár eða stofnfjár.
5. Ákvarðanir um að stofnendur eða aðrir skuli njóta sérstakra réttinda eða hlunninda í félaginu.
6. Ákvarðanir um að gert skuli samkomulag við stofnendur eða aðra sem hefði í för með sér verulegar fjárskuldbindingar fyrir félagið.
7. Ákvarðanir um að félagið taki við verðmætum sem ekki er greitt fyrir með hlutum í félaginu.
8. Hvenær halda skuli stofnfund og hvernig til hans skuli boðað nema það leiði af ákvæðum 18. gr. að fundur þessi verði haldinn án sérstakrar boðunar.
9. Hvort félagið skuli bera kostnað við stofnunina og ef svo er, hversu hár sá kostnaður megi vera. Kostnaður þessi má ekki fara yfir 5% af skráðu fé þegar frá eru talin opinber útgjöld og kostnaður við matsgerð, sbr. 16. gr. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur veitt undanþágu frá hámarki stofnkostnaðar. Ekki má greiða stofnendum þóknun vegna stofnunarinnar.
Í stofnsamningi gagnkvæms vátryggingafélags skal jafnframt getið:
10. Ábyrgðar félagsmanna og ábyrgðarmanna á skuldbindingum félagsins og skuldbindinga þeirra innbyrðis, hvers gagnvart öðrum.
11. Hvort og að hvaða marki félagið á að geta tekið að sér endurtryggingar án gagnkvæmrar ábyrgðar.
12. Eftir hvaða reglum stofnfé skuli ávaxtað.
Í stofnsamningi skal gerð grein fyrir þeim atriðum sem nauðsynleg eru og máli skipta til þess að unnt sé að meta til fjár þau verðmæti er félagið hyggst taka við.
Sé stofnað til félagsins með það fyrir augum að yfirtaka vátryggingastarfsemi eða vátryggingastofn annars vátryggingafélags skal þess getið í stofnsamningi og það tekið fram hvort samningsdrög um yfirfærslu vátryggingastofns hafi verið gerð og umfjöllun [Fjármálaeftirlitsins] 1) liggi fyrir, sbr. X. kafla.
Skjöl, sem hafa að geyma mikilvæg efnisatriði sem ekki koma fram í stofnsamningi, skulu fest við hann og teljast hluti stofnsamningsins.
Allir samningar um atriði, sem fjallað er um í stofnsamningi en voru ekki samþykkt við gerð hans, eru ógildir gagnvart félaginu.
1)L. 84/1998, 5. gr.
16. gr. Hlutir skulu greiddir í reiðufé. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur veitt heimild til að greiðsla fari fram með öðrum hætti.
Framlög til greiðslu hluta í öðru en reiðufé skulu vera þannig að unnt sé að meta fjárhagslegt verðmæti þeirra. Í þeim má ekki felast skuldbinding um að leggja fram vinnu eða þjónustu, og framlög mega ekki vera í formi krafna á aðra stofnendur eða þá sem skrá sig fyrir hlutum þótt kröfurnar séu tryggðar með veði.
Sé ætlunin að greiða hluti á annan hátt en í reiðufé skal senda [Fjármálaeftirlitinu] 1) umsókn ásamt matsgerð. Matsgerðin skal unnin af einum eða fleiri óvilhöllum, sérfróðum matsmönnum sem [Fjármálaeftirlitið] 1) samþykkir. Matsmönnum skal heimill aðgangur að öllum gögnum til að unnt sé að gera þær athuganir sem þeir telja nauðsynlegar og þeir geta krafið stofnendur eða félagið um allar þær upplýsingar og þá aðstoð sem þeir álíta sig þurfa við verk sitt. Fallist [Fjármálaeftirlitið] 1) á umsóknina má gera stofnsamning.
Telji [Fjármálaeftirlitið] 1) ástæðu til að ætla að verðmæti framlaga hafi breyst frá því að matsgerð var framkvæmd og stofnfundur er haldinn getur það krafist yfirlýsingar matsmanna um verðmætið eða nýrrar matsgerðar.
Ákvæði þessarar greinar eiga einnig við taki félagið við fjármunum af stofnendum, hluthöfum eða ábyrgðarmönnum sem ekki eru til greiðslu hluta ef greiðsla skal innt af hendi innan tveggja ára frá dagsetningu stofnsamnings eða greiðsla nemur meira en tíunda hluta hlutafjár eða stofnfjár.
1)L. 84/1998, 5. gr.
17. gr. Stofnendur skulu gera tillögu að samþykktum vátryggingafélags og skulu eftirtalin atriði koma fram:
1. Heiti félagsins og heimilisfang.
2. Tilgangur félagsins, starfssvið og starfssvæði.
3. Heildarupphæð hlutafjár eða stofnfjár, fjárhæð hluta og atkvæðisréttur.
4. Hvort hlutir eiga að geta gengið kaupum og sölum og reglur um innlausn og sérstök réttindi er þeim kunna að fylgja, svo og skorður sem reistar kunna að vera við heimildum eigenda hluta til meðferðar á þeim.
5. Fjöldi stjórnar- og varastjórnarmanna ásamt endurskoðendum og kjörtímabil þeirra.
6. Hvernig boðað skuli til félagsfundar.
7. Hvaða mál skuli leggja fyrir aðalfund.
8. Hvert skuli vera reikningsár félags.
9. Ráðstöfun tekjuafgangs og hvernig mæta skal halla.
10. Úthlutun arðs og ágóðahluta.
11. Hvernig ráðstafa megi eignum félagsins og hvernig fara skuli með eignir þess við félagsslit.
Í samþykktum gagnkvæms félags skal enn fremur kveðið á um:
12. Skilyrði aðildar félagsmanna að félaginu og um brottfall aðildar.
13. Atriði samkvæmt ákvæðum 10.–12. tölul. 15. gr.
18. gr. Ákvörðun um stofnun vátryggingafélags skal tekin á stofnfundi.
Stofnendur skulu sjá um að áskriftarskrár og þeir samningar og gögn sem um ræðir í stofnsamningi, þar með talið matsgerð og yfirlýsing, ef við á, sbr. 16. gr., séu til sýnis í eina viku fyrir stofnfund á stað sem greinir í fundarboði.
Ef áskrift fæst að öllum hlutum á stofnfundi og allir viðurkenndir áskrifendur eru sammála þar um er unnt að taka ákvörðun um stofnun félagsins án frekari funda. Sé svo ekki skulu stofnendur boða alla áskrifendur til nýs stofnfundar.
Á stofnfundi skulu lögð fram gögn sem fjallað er um í 2. mgr. og gerð skal grein fyrir útgjöldum sem um getur í 9. tölul. 1. mgr. 15. gr. Einnig skal veita upplýsingar um það hlutafé eða stofnfé sem samþykkt hefur verið og um skiptingu hluta og innborgaðra fjárhæða. Upplýsingar þessar skulu færðar í fundargerðabók.
19. gr. Ekki má skrá félag sem vátryggingafélag í hlutafélagaskrá eða aðra félagaskrá fyrr en starfsleyfi hefur verið gefið út.
Heimilt er að skrá félagsmenn með það fyrir augum að stofna gagnkvæmt vátryggingafélag svo framarlega sem ekki er stofnað til vátryggingasamninga og ábyrgðar vegna þeirra eða innheimtu iðgjalda áður en félagið hefur verið skráð.
20. gr. Óskráð vátryggingafélag getur hvorki öðlast réttindi né tekið á sig skyldur. Það getur ekki heldur verið aðili í dómsmálum nema málum er varða áskrift hlutafjár eða stofnfjár.
Séu vátryggingasamningar gerðir þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 19. gr. ábyrgjast þeir sem gert hafa vátryggingasamningana fyrir hönd félagsins sameiginlega að halda gerða samninga og eru samábyrgir um það. Viðurkenni félagið skuldbindingar þær sem í samningunum felast innan fjögurra vikna frá skráningu félagsins fellur ábyrgð viðkomandi niður nema talið verði að hagsmunir vátryggingataka skerðist verulega ella. Samningar af þessu tagi eru ekki bindandi fyrir vátryggingataka nema viðurkenning félagsins á skuldbindingunum liggi fyrir.
Innritun félagsmanns í gagnkvæmt félag í samræmi við 2. mgr. 19. gr. er því aðeins bindandi að tilkynnt sé um félagið til vátryggingafélagaskrár innan árs frá innritun. Sé félaginu neitað um skráningu fellur samningurinn úr gildi.
Um aðra löggerninga, sem gerðir eru fyrir hönd vátryggingafélags áður en það er skráð, gildir að þeir sem tekið hafa þátt í gerningum eða ákvörðunum bera óskipt ábyrgð á efndum. Við skráninguna tekur félag við þeim skyldum og skyldum samkvæmt stofnsamningi.
Ef gerður er löggerningur áður en félag er skráð og hinn samningsaðilinn vissi að félagið var ekki skráð getur hann, nema um annað sé samið, rift gerningnum svo fremi að tilkynning til vátryggingafélagaskrár sé ekki gerð innan þess frests er um ræðir í 21. gr. eða að skráningar hafi verið synjað. Vissi viðsemjandinn ekki að félagið var óskráð getur hann rift löggerningnum meðan félagið er ekki skráð.
Starfsleyfi vátryggingafélaga.
21. gr. Umsókn um starfsleyfi skal send [Fjármálaeftirlitinu] 1) innan sex mánaða frá dagsetningu stofnsamnings ásamt tilkynningu til skráningar í vátryggingafélagaskrá, sbr. 28. gr.
Í umsókn og meðfylgjandi gögnum skal eftirfarandi koma fram:
1. Heiti félagsins og félagsform.
2. Staðfest endurrit stofnsamnings og fundargerðar stofnfundar úr fundargerðabók.
3. Skrá yfir stofnendur og hlutafé eða stofnfé, hverjir eigi virkan eignarhlut í félaginu og hve mikinn [og greinargerð um önnur náin tengsl sem félagið er í]. 2)
4. Drög að samþykktum til staðfestingar.
5. Greinaflokkar vátrygginga eða vátryggingagreinar sem sótt er um leyfi fyrir, sbr. 22. og 23. gr.
6. Ef við á, skrá um hliðarstarfsemi sem félagið hyggst reka, sbr. 11. gr.
7. Sérstök áætlun um starfsemina, sbr. 24. gr.
8. Staðfesting þess að félagið uppfylli ákvæði 33. gr. um lágmarksfjárhæðir.
9. Reiknigrundvöllur iðgjalda, iðgjaldasjóðs, ágóðaúthlutunar, endurkaups og gjaldfrjálsra líftrygginga, reglur um upplýsingar sem líftryggingataka ber að veita og hliðstæð gögn eftir því sem við á um heilsutryggingar sem reknar eru samkvæmt tæknilegum grundvelli þegar sótt er um starfsleyfi skv. 23. gr.
10. Vátryggingaskilmálar lögboðinna vátrygginga og upplýsingar um þær tegundir líftrygginga sem félagið hyggst bjóða.
[11. Staðfesting á aðild að Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf. og á þátttöku í starfsemi tjónsuppgjörsmiðstöðvar og upplýsingamiðstöðvar samkvæmt umferðarlögum sé sótt um leyfi skv. 10. tölul. 1. mgr. 22. gr. Jafnframt skal upplýst um tjónsuppgjörsfulltrúa í sérhverju aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og Fríverslunarsamtaka Evrópu.] 3)
Berist umsókn ekki innan tilskilins frests skal synja um skráningu félagsins. Fari svo falla burtu skuldbindingar þeirra er hafa skráð sig fyrir hlutafé eða stofnfé. Sama gildir ef skráningar er synjað af öðrum ástæðum. Eftir þetta er ekki hægt að skrá félagið nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi og má þá skrá félagið þó að fresturinn sé liðinn.
Ekki má skrá vátryggingafélag í vátryggingafélagaskrá nema hlutafé eða stofnfé, sem skráð er við stofnun, sé að fullu greitt.
Vátryggingafélag má ekki hefja starfsemi fyrr en það hefur fengið starfsleyfi og verið skráð í vátryggingafélagaskrá.
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 63/1997, 6. gr. 3)L. 28/2003, 1. gr. Um skyldur vátryggingafélaga sem þegar hafa hlotið starfsleyfi skv. 26. gr., sjá brbákv.
22. gr. Starfsleyfi í vátryggingum öðrum en líftryggingum (skaðatryggingum) er bundið við tiltekna greinaflokka vátrygginga eða vátryggingagreinar innan þeirra samkvæmt eftirfarandi skrá:
1. Slysatryggingar (slys, vinnuslys, atvinnusjúkdómar): a. bætur með föstum fjárhæðum, b. bætur eftir mati á afleiðingum tjóns, c. bætur með föstum fjárhæðum/bætur eftir mati á afleiðingum tjóns, d. slys á farþegum.
2. Sjúkratryggingar (veikindi, heilsutjón): a. bætur með föstum fjárhæðum, b. bætur eftir mati á afleiðingum tjóns, c. bætur með föstum fjárhæðum/bætur eftir mati á afleiðingum tjóns.
3. Húftryggingar ökutækja. Eignatjón, þar með talið altjón á: a. vélknúnum ökutækjum á landi öðrum en járnbrautum, b. ökutækjum til notkunar á landi öðrum en vélknúnum ökutækjum.
4. Járnbrautatryggingar. Eignatjón, þar með talið altjón á járnbrautarvögnum.
5. Húftryggingar loftfara. Eignatjón, þar með talið altjón á loftförum.
6. Húftryggingar skipa og báta. Eignatjón, þar með talið altjón á: a. sjóskipum, b. vatnabátum, c. fljóta- og síkjabátum.
7. Flutningatryggingar. Eignatjón, þar með talið altjón á vörum og farangri í flutningi án tillits til hvernig flutt er.
8. Eignatryggingar (bruni og náttúruöfl). Eignatjón, þar með talið altjón, annað en skv. 3., 4., 5., 6. og 7. flokki vegna: a. elds, b. sprengingar, c. óveðurs, d. náttúruafla annarra en óveðurs, e. kjarnorku, f. landsigs.
9. Aðrar eignatryggingar. Eignatjón, þar með talið altjón, annað en skv. 3., 4., 5., 6. og 7. flokki og ekki talið í 8. flokki, þar með talið vegna hagls, frosts og atburða svo sem þjófnaðar o.fl.
10. Ábyrgðartryggingar ökutækja. Ábyrgð vegna notkunar ökutækja, þar með talin ábyrgð stjórnanda.
11. Ábyrgðartryggingar loftfara. Ábyrgð vegna notkunar loftfara, þar með talin ábyrgð stjórnanda.
12. Ábyrgðartryggingar skipa og báta. Ábyrgð vegna notkunar á sjó, vötnum, fljótum og síkjum, þar með talin ábyrgð stjórnanda.
13. Almennar ábyrgðartryggingar. Hvers konar ábyrgð önnur en skv. 10., 11. og 12. flokki.
14. Greiðsluvátryggingar: a. almenn gjaldþrot, b. útflutningslán, c. afborgunarskilmálar, d. veð, e. landbúnaðarlán.
15. Efndavátryggingar: a. beinar efndir, b. óbeinar efndir.
16. Fjárhagslegar vátryggingar (fjárhagslegt tap): a. atvinnuleysi, b. tekjutap (almennt), c. óveður, d. ábatamissir, e. viðvarandi útgjöld vegna almenns kostnaðar, f. ófyrirsjáanleg viðskiptaútgjöld, g. tap á markaðsverði, h. tap á leigu eða hliðstæðum tekjum, i. annað óbeint tap á viðskiptum, j. fjárhagslegt tap, annað en í viðskiptum, k. aðrar tegundir fjárhagslegs taps.
17. Réttaraðstoðartryggingar. Réttaraðstoð og kostnaður við málarekstur.
18. Ferðamannaaðstoð. Aðstoð til handa þeim sem lenda í erfiðleikum á ferðalagi fjarri heimili sínu eða föstu aðsetri.
Áhættu sem innifalin er í tilteknum greinaflokki má ekki innifela í öðrum greinaflokki nema í tilvikum er segir í 3. mgr.
Veita má starfsleyfi sameiginlega fyrir eftirtalda greinaflokka skaðatrygginga, sbr. 1. mgr.:
1. Slysa- og sjúkratryggingar skv. 1. og 2. tölul.
2. Ökutækja- og farmtryggingar skv. 1. tölul. d, 3., 7. og 10. tölul.
3. Sjó- og farmtryggingar skv. 1. tölul. d, 4., 6., 7. og 12. tölul.
4. Flug- og farmtryggingar skv. 1. tölul. d, 5., 7. og 11. tölul.
5. Eignatryggingar skv. 8. og 9. tölul.
6. Ábyrgðartryggingar skv. 10., 11., 12. og 13. tölul.
7. Greiðslu- og efndavátryggingar skv. 14. og 15. tölul.
8. Frumtryggingar skv. 1.–18. tölul.
9. Endurtryggingar skv. 1.–18. tölul.
Vátryggingafélag sem fær starfsleyfi í greinaflokkum frumtrygginga skv. 1. og 2. mgr. (aðaláhætta) má innifela hliðargrein (aukaáhættu) án sérstaks leyfis þegar:
1. Aukaáhættan er í tengslum við aðaláhættu.
2. Aukaáhættan tengist þeim verðmætum sem vátryggð eru sem aðaláhætta.
3. Aukaáhættan er vátryggð samkvæmt vátryggingasamningi um aðaláhættu.
Þó er ekki heimilt að telja áhættu í greinaflokkum skv. 14., 15. og 17. tölul. 1. mgr. sem hliðargrein í öðrum greinaflokkum að því undanskildu að telja má áhættu í greinaflokki skv. 17. tölul. sem hliðargrein í greinaflokki skv. 18. tölul. þegar skilyrði 1. mgr. eru uppfyllt og aðaláhættan tengist einvörðungu aðstoð sem veitt er einstaklingum sem lenda í erfiðleikum á ferðalagi að heiman eða fjarri föstu aðsetri. Greinaflokkur skv. 17. tölul. má einnig vera hliðargrein þegar áhættan eða ágreiningurinn tengist notkun skipa og báta.
[Setja skal reglugerð 1) um réttaraðstoðarvátryggingar, greinaflokk skv. 17. tölul. 1. mgr., til þess að tryggja hagsmuni vátryggingataka í ágreiningsmáli við vátryggingafélagið sjálft.] 2)
1)Rg. 99/1998. 2)L. 63/1997, 7. gr.
23. gr. Starfsleyfi í líftryggingum og heilsutryggingum auk tengdra slysa- og sjúkratrygginga er bundið við tiltekna greinaflokka vátrygginga eða vátryggingagreinar innan þeirra samkvæmt eftirfarandi skrá:
1. Áhættu- og söfnunarlíftryggingar án fjárfestingaráhættu: a. greiðslur í lifanda lífi frá tilteknum aldri, b. greiðslur við andlát, c. greiðslur í lifanda lífi frá tilteknum aldri eða við andlát fyrr, d. líftryggingar með endurgreiðslu iðgjalda, e. lífeyrisgreiðslur, f. viðbótargreiðslur við líkamstjón, þar á meðal við starfsorkumissi, g. viðbótargreiðslur við andlát vegna slyss, h. viðbótargreiðslur við örorku vegna slyss eða sjúkdóms.
2. Hjóna- og barnalíftryggingar: a. líftryggingar við giftingu, b. líftryggingar við fæðingu.
3. Áhættu- og söfnunarlíftryggingar með fjárfestingaráhættu: a. greiðslur í lifanda lífi frá tilteknum aldri, b. greiðslur við andlát, c. greiðslur í lifanda lífi frá tilteknum aldri eða við andlát fyrr, d. líftryggingar með endurgreiðslu iðgjalda, e. lífeyrisgreiðslur.
4. Heilsutryggingar. Varanlegar heilsutryggingar án uppsagnarrétts.
5. Aðrar líftryggingar. Aðrar líftryggingar með innifalda áhættu á grundvelli ævilengdar.
6. Endurtryggingar líf- og heilsutrygginga.
24. gr. Í áætlun um starfsemina, sem fylgja skal umsókn um starfsleyfi, skal eftirfarandi koma fram:
1. Skýrsla um endurtryggingavernd og hámark þess sem félagið hyggst bera í eigin áhættu án endurtryggingar í hverjum greinaflokki vátrygginga.
2. Skrá yfir eignir sem eiga að koma á móti lágmarksfjárhæðum skv. 33. gr.
3. Rökstutt mat á kostnaði við að koma starfseminni á fót og hvernig ætlað er að mæta þeim kostnaði.
4. Áætluð staða félagsins samkvæmt efnahagsreikningi í lok þriggja fyrstu bókhaldsáranna ásamt áætlun um árlegar tekjur og gjöld.
5. Áætlun um hvernig félagið hyggst standa við skuldbindingar sínar og uppfylla gjaldþolskröfur fyrstu þrjú bókhaldsárin.
Sé sótt um leyfi fyrir greiðsluvátryggingum skv. 14. tölul. 1. mgr. 22. gr. skal auk gagna skv. 1. mgr. gerð sérstök grein fyrir því eftir hvaða reglum óuppgerðar skuldbindingar félagsins vegna vátryggingasamninga í greiðsluvátryggingum, vátryggingaskuldin, skuli metnar og þeim eignum sem ætlað er að mæta þeim.
25. gr. [Fjármálaeftirlitið] 1) metur umsókn félags um starfsleyfi. Umsögn [Fjármálaeftirlitsins] 1) skal liggja fyrir innan sex mánaða frá móttöku umsóknarinnar og allra gagna sem fylgja eiga umsókn, sbr. 21.–24. gr.
Við mat á umsókn um starfsleyfi líftryggingafélags skal þess gætt að reiknigrundvöllur sé tryggur en sanngjarn í garð líftryggingataka og rétthafa. Sama gildir um reglur um ágóðahlutdeild og skiptingu hagnaðar og skulu reglur þar um vera skýrar og nákvæmar. Vaxtaforsendur iðgjalda og iðgjaldaskuldar, svo og kostnaðar- og öryggisálag, skal ákveðið með varfærnissjónarmið í huga. Iðgjöld nýtrygginga séu nægileg til að félagið geti staðið við skuldbindingar sínar án þess að sérstök aukning eigin fjár reynist nauðsynleg.
Telji [Fjármálaeftirlitið] 1) að á skorti hæfi stjórnar eða framkvæmdastjóra til að reka félagið eða að tryggja heilbrigðan og traustan rekstur þess svo að viðhlítandi sé, eða hafi störf þeirra verið með þeim hætti að ætla megi að svo verði ekki, má synja um starfsleyfi. Sama gildir teljist eigendur virkra eignarhluta í félaginu ekki geta tryggt á viðhlítandi hátt heilbrigðan og traustan rekstur. [Ef félag er í nánum tengslum við aðra skal einungis veita starfsleyfi ef þau tengsl hindra ekki eftirlit með starfsemi félagsins. Ef löggjöf þriðja ríkis gildir um þá sem vátryggingafélagið er í nánum tengslum við og hindrar eftirlit með starfsemi félagsins skal synja um starfsleyfi, svo og ef líklegt er að vandkvæði við framkvæmd þeirrar löggjafar geri eftirlit torvelt. Ef raunverulegar aðalstöðvar félagsins eru ekki hér á landi skal synja um starfsleyfi.] 2) Mæli [Fjármálaeftirlitið] 1) ekki með umsókn skal það stutt rökum og tilkynnt umsækjanda skriflega.
[Fjármálaeftirlitið skal hafa samráð við eftirlitsstjórnvöld í öðrum aðildarríkjum við mat á umsókn um starfsleyfi félags sem er:
a. dótturfélag vátryggingafélags eða fjármálafyrirtækis með starfsleyfi í öðru aðildarríki,
b. dótturfélag móðurfélags vátryggingafélags eða fjármálafyrirtækis með starfsleyfi í öðru aðildarríki, eða
c. undir yfirráðum aðila, einstaklings eða lögaðila, sem hefur ráðandi stöðu í vátryggingafélagi eða fjármálafyrirtæki í öðru aðildarríki.
Samráð skv. 4. mgr. skal m.a. taka til upplýsinga um hæfi hluthafa og stjórnenda, sbr. 3. mgr.
Samráð skv. 4. mgr. gildir jafnframt um viðvarandi eftirlit með því að starfsskilyrði séu uppfyllt.] 3)
Sé til umfjöllunar umsókn dótturfélags sem beint eða óbeint er í eigu aðila með aðsetur utan hins Evrópska efnahagssvæðis getur [Fjármálaeftirlitið] 1) tekið sér lengri frest en tiltekinn er í 1. mgr. áður en umsögn er veitt.
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 63/1997, 8. gr. 3)L. 130/2004, 17. gr.
26. gr. Uppfylli félagið skilyrði um gjaldþol og lágmarksfjárhæðir, sbr. III. kafla, og mæli [Fjármálaeftirlitið] 1) að öðru leyti með umsókninni, svo og staðfesti samþykktir félagsins, veitir ráðherra starfsleyfi og að því búnu má skrá félagið í vátryggingafélagaskrá.
Í starfsleyfi skulu koma fram upplýsingar um þá vátryggingastarfsemi sem félagið má reka. Veita má starfsleyfi fyrir einstaka greinaflokka vátrygginga skv. 22. eða 23. gr. eða einstakar vátryggingagreinar innan þeirra, eða fyrir greinaflokka sameiginlega skv. 2. mgr. 22. gr. Starfsleyfi veitt í tilteknum greinaflokki gildir einnig fyrir hliðargreinar í öðrum flokki ef skilyrði skv. 3. mgr. 22. gr. eru uppfyllt. Ráðherra ákveður að öðru leyti hvað koma skal fram í starfsleyfi.
1)L. 84/1998, 5. gr.
27. gr. Vátryggingafélag, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi og hyggst taka upp nýjan greinaflokk vátrygginga eða vátryggingagrein eða hyggst breyta starfsemi sinni í verulegum atriðum, skal sækja um leyfi til [Fjármálaeftirlitsins] 1) fyrir hinni nýju starfsemi og senda gögn eins og við á skv. 20.–24. gr. og nauðsynleg eru til að það geti metið umsóknina.
Uppfylli félagið skilyrði um gjaldþol og lágmarksfjárhæðir að teknu tilliti til hinnar nýju starfsemi og sé að öðru leyti fallist á umsóknina veitir [Fjármálaeftirlitið] 1) leyfi fyrir nýju starfseminni.
Breytingar á samþykktum vátryggingafélags ber að senda [Fjármálaeftirlitinu] 1) innan viku frá samþykkt þeirra. Geri [Fjármálaeftirlitið] 1) ekki athugasemd við þær breytingar ber félaginu innan tveggja mánaða að senda eftirlitinu dagsett eintak af samþykktunum í heild með þeim breytingum sem samþykktar hafa verið.
1)L. 84/1998, 5. gr.
Vátryggingafélagaskrá.
28. gr. Halda skal vátryggingafélagaskrá um öll félög sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi og skal hún vera í vörslu [Fjármálaeftirlitsins]. 1) Einnig skal skrá útibú sem hér hafa starfsleyfi og þá sem veita hér þjónustu án starfsstöðvar. Almenningi skal heimill aðgangur að vátryggingafélagaskrá.
Starfsleyfi og leyfi fyrir nýrri starfsemi skulu þegar í stað skráð í vátryggingafélagaskrá. Ákvörðun um að taka upp nýjar greinar vátrygginga eða að breyta starfsemi í verulegum atriðum öðlast ekki gildi fyrr en hún hefur verið skráð í vátryggingafélagaskrá.
Í vátryggingafélagaskrá skal skrá eftirfarandi eftir því sem við getur átt:
1. Dagsetningu stofnsamnings, stofnfundargerðar og samþykkta.
2. Heiti, félagsform og starfssvæði, lögheimili og varnarþing.
3. Starfssvið og tilgang.
4. Dagsetningu starfsleyfis og skrá yfir þá greinaflokka vátrygginga og vátryggingagreinar sem félag hefur leyfi til að reka og um hliðarstarfsemi, sbr. 11. gr.
5. Skráð og innborgað hlutafé og stofnfé og eigið hlutafé. Nöfn þeirra sem eiga virkan eignarhlut í félaginu og hve mikill hann er.
6. Stjórn og varastjórn, endurskoðendur og tryggingastærðfræðinga.
7. Nöfn þeirra er skuldbinda mega félag.
8. Heiti og heimilisfang starfsstöðvar erlends vátryggingafélags, sbr. 6. gr., sem hér hefur útibú eða veitir þjónustu og nafn og aðsetur fulltrúa þess hér á landi sem skuldbindur félagið og kemur fram fyrir þess hönd, svo og, þegar við á, þann sem hefur með höndum tjónsuppgjör í ábyrgðartryggingum ökutækja.
9. Dagsetningu yfirfærslu/yfirtöku vátryggingastofna ásamt skrá yfir vátryggingagreinar sem yfirfærðar/yfirteknar eru.
10. Dagsetningu skipunar skilastjórnar og hverjir skipa skilastjórn, dagsetningu afturköllunar starfsleyfis, slita félags og þegar félag er máð úr vátryggingafélagaskrá.
Allar breytingar varðandi atriði sem tilkynna skal til vátryggingafélagaskrár skulu, eins fljótt og auðið er og eigi síðar en innan eins mánaðar, tilkynntar til skrárinnar ásamt gögnum er sanni samþykkt þeirra og lögmæti. Tilkynningar skulu berast á sérstökum eyðublöðum er [Fjármálaeftirlitið] 1) lætur í té.
Ef tilkynningar til vátryggingafélagaskrár fullnægja ekki fyrirmælum laga eða samþykkta félags, eða ákvarðanir eru ekki teknar á þann hátt sem fyrir er mælt í lögum eða samþykktum félags, skal synja um skráningu. Tilkynna skal skriflega um synjun og um ástæður hennar.
Birta skal árlega í Lögbirtingablaði skrá um þau félög sem skráð eru í vátryggingafélagaskrá og fengið hafa starfsleyfi hér á landi til að reka vátryggingastarfsemi, svo og um útibú og vátryggingafélög aðildarríkja sem hér veita þjónustu. Birta skal tilkynningu um skráningu nýs félags eða útibús í vátryggingafélagaskrá, um yfirfærslu og yfirtöku vátryggingastofna og tilkynningu um að vátryggingafélag hafi verið máð úr vátryggingafélagaskrá og ástæður þess.
1)L. 84/1998, 5. gr.
III. kafli. Fjárhagsgrundvöllur. Vátryggingaskuld. Eignaraðild.
Gjaldþol og lágmarksgjaldþol.
29. gr. [Eftirtaldar fjárhæðir mynda grunn útreiknings á gjaldþoli vátryggingafélags:
1. a. Innborgað hlutafé að frádregnum eigin hlutabréfum félagsins.
b. Stofnfé að viðbættum framlögum eigenda gagnkvæms vátryggingafélags ef þau uppfylla það skilyrði að í stofnsamningi eða samþykktum sé kveðið á um að ekki sé heimilt að greiða eigendum þessi framlög ef það hefði í för með sér að gjaldþol færi niður fyrir tilskilið lágmark. Einnig er það skilyrði að við félagsslit skuli fyrst gera upp allar aðrar skuldir félagsins. Enn fremur skal í stofnsamningi eða samþykktum kveðið á um að Fjármálaeftirlitinu skuli tilkynnt um greiðslur slíkra skulda, nema þær tengist lokum aðildar einstakra félagsmanna að félaginu, með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara og að það geti lagt bann við útborgun innan þess frests. Umrædd ákvæði og breytingar á þeim öðlast ekki gildi nema með samþykki Fjármálaeftirlitsins.
2. Varasjóðir sem ekki eru til að mæta skuldbindingum félagsins og óráðstöfuð ágóðajöfnunarskuld líftryggingafélags.
3. Óráðstafaður hagnaður að frádregnu ójöfnuðu tapi og ráðgerðum arðgreiðslum.
4. Forgangshlutafé og víkjandi lán sem bindandi samkomulag er um að víki fyrir öllum skuldbindingum sem ekki eru víkjandi og að ekki komi til endurgreiðslu fyrr en þær skuldbindingar hafa verið gerðar upp við gjaldþrot eða slit vátryggingafélags. Víkjandi lán skal einnig uppfylla eftirtalin skilyrði:
a. Lánið skal vera innborgað og skuldfært í bókum félagsins.
b. Upphaflegur lánstími lána með föstum lánstíma skal ekki vera skemmri en fimm ár. Eigi síðar en einu ári áður en kemur að endurgreiðslu skal vátryggingafélagið leggja áætlun fyrir Fjármálaeftirlitið til samþykktar er sýni fram á fullnægjandi gjaldþol félagsins á gjalddaga nema eftirstöðvar lánsins hafi farið minnkandi sem hlutfall af gjaldþoli félagsins á minnst fimm ára tímabili fyrir umsaminn gjalddaga. Sæki vátryggingafélagið um að flýta endurgreiðslu slíkra lána getur Fjármálaeftirlitið heimilað það að því tilskildu að gjaldþol fari ekki niður fyrir tilskilið lágmark.
c. Lán sem eru ekki með föstum lánstíma skulu vera með a.m.k. fimm ára uppsagnarfresti, nema þau séu ekki lengur talin til gjaldþols félagsins eða að endurgreiðslur fyrir gjalddaga séu háðar samþykki Fjármálaeftirlitsins. Verður vátryggingafélagið þá að óska eftir slíku samþykki að minnsta kosti sex mánuðum fyrir áætlaðan greiðsludag og tilgreina áætlað gjaldþol og lágmarksgjaldþol bæði fyrir og eftir endurgreiðslu. Því aðeins skal heimila endurgreiðslu að gjaldþol vátryggingafélagsins fari ekki niður fyrir lágmarksgjaldþol.
d. Lánssamningurinn má ekki fela í sér ákvæði sem gera ráð fyrir endurgreiðslu fyrr en á gjalddaga, nema vátryggingafélaginu verði slitið.
e. Samþykki Fjármálaeftirlitsins þarf til að breyta lánssamningum.
Fjárhæð samkvæmt þessum tölulið má ekki fara yfir 50% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra. Þar af mega víkjandi lán með fastan lánstíma og heildarfjárhæð forgangshlutafjár ekki fara yfir 25% samanlagt.
5. Skuldabréf án tiltekins lánstíma og önnur bréf, svo sem forgangshlutafé sem ekki fellur undir 4. tölul., ef samningarnir uppfylla eftirtalin skilyrði:
a. Ekki má endurgreiða bréfin að frumkvæði handhafa og ekki án samþykkis Fjármálaeftirlitsins.
b. Samið er um að vátryggingafélagið megi fresta greiðslu á vöxtum.
c. Kröfur á hendur vátryggingafélaginu samkvæmt þessum tölulið víkja fyrir öllum öðrum kröfum sem ekki eru víkjandi.
d. Skjalfest er við útgáfu skuldabréfanna að eftirstöðvar og ógreidda vexti megi nota til að mæta tapi þannig að vátryggingafélagi sé kleift að halda áfram starfsemi sinni.
e. Aðeins skal telja með innborgaðar fjárhæðir.
Fjárhæð samkvæmt þessum tölulið og fjárhæð skv. 4. tölul. mega samanlagt ekki fara yfir 50% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra.
6. Helmingur óinnborgaðs hlutafjár eða stofnfjár, enda nemi innborgað fé minnst 25% heildarfjárins. Þessi fjárhæð má ekki fara yfir 50% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra.
7. Viðbótarframlög eða aukaiðgjöld sem gagnkvæm vátryggingafélög önnur en líftryggingafélög, eða félög hliðstæðrar gerðar með breytilegum framlögum, mega krefja félagsmenn um á reikningsárinu, allt að helmingi mismunar á hámarki þess sem krefjast má og þess sem þegar hefur verið krafist. Þessi fjárhæð má ekki fara yfir 50% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra.
8. Duldir sjóðir vegna vanmats eigna, enda séu þeir af varanlegum toga.
9. Allt að 50% áætlaðs framtíðarhagnaðar af líftryggingum. Framtíðarhagnað skal þá áætla með því að margfalda árlegan hagnað, eða lægri tölu, með stuðli sem svarar til gildistíma líftrygginganna sem eftir er í árum talið, þó ekki með hærri stuðli en 6. Með árlegum hagnaði er átt við meðaltal hagnaðar af líftryggingarekstri samkvæmt rekstrarreikningi fimm undangengin ár í viðkomandi greinum líftrygginga. Þessi fjárhæð má ekki fara yfir 25% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra.
10. Hluti iðgjaldaskuldar í líftryggingum með eða án Zillmer-aðferðar. Þegar Zillmer-aðferð er ekki beitt eða henni er beitt og kostnaðarálag vegna öflunar líftrygginga er lægra en álagið sem fólgið er í iðgjöldum vegna öflunar líftrygginganna má reikna til gjaldþols mismuninn á iðgjaldaskuld án Zillmer-aðferðar eða iðgjaldaskuld með Zillmer-aðferð að hluta og iðgjaldaskuld þar sem reiknað er samkvæmt Zillmer-aðferð með öflunarkostnaði að fullu eins og í reiknigrundvelli iðgjalda. Fjárhæðin sem færð er til gjaldþols samkvæmt þessum tölulið má þó aldrei vera hærri en 3,5% af mismun líftryggingarfjárhæða og iðgjaldaskuldar samanlagt vegna líftryggingarsamninga þar sem unnt er að beita Zillmer-aðferð. Frá þessum mismun skal draga allan óafskrifaðan eignfærðan öflunarkostnað.
11. Nauðsynlegar afskriftir og niðurfærslur. Sé nauðsynlegt að afskrifa eða niðurfæra eignaliði umfram það sem gert er í efnahagsreikningi skal það koma til lækkunar gjaldþoli. Meðal annars skal hafa hliðsjón af atriðum utan efnahags.
12. Lækkun tjónaskuldar sem stafar af núvirðingu hennar. Þó þarf ekki að draga frá gjaldþoli lækkun vegna núvirðingar tjóna í slysa- og sjúkratryggingum, né heldur vegna lífeyrisgreiðslna í öðrum greinaflokkum.
[13. a. Hlutdeild í hlutdeildarfélagi sem vátryggingafélag á í vátryggingafélögum, eignarhaldsfélögum á vátryggingasviði, fjármálafyrirtækjum eða fyrirtækjum á fjármálasviði.
b. Liðir sem taldir eru upp í 4. og 5. tölul. þessarar málsgreinar og vátryggingafélag á í krafti hlutdeildar í félögum sem getið er í a-lið hér á undan.] 1)
Gjaldþol vátryggingafélags er reiknað með því að leggja saman fjárhæðir skv. 1.–5. tölul. og draga frá fjárhæðir skv. [11.–13. tölul.] 1) Fjárhæðir skv. 6.–10. tölul. má leggja við framangreindar fjárhæðir hafi Fjármálaeftirlitið fallist á rökstudda ósk vátryggingafélags um það. Ef horfur eru á að gjaldþol verði einhvern tímann á næstu þremur árum lægra en gjaldþol reiknað skv. [1.–13. tölul.] 1) skal til viðbótar færa gjaldþolið niður um muninn á framantöldum liðum og áætluðu lægsta gjaldþoli á næstu þremur árum. [Þegar fjárfesting í hlutum í öðru fjármálafyrirtæki, fyrirtæki tengdu fjármálasviði, vátryggingafélagi eða eignarhaldsfélagi á vátryggingasviði er bráðabirgðaráðstöfun og ætluð sem fjárhagsaðstoð við endurskipulagningu eða til bjargar hlutaðeigandi fyrirtæki er Fjármálaeftirlitinu heimilt að veita undanþágu frá ákvæði þessarar málsgreinar um frádrátt liða samkvæmt tölulið 13. a og b.] 1)
Aðlagað gjaldþol vátryggingafélags, sem á annað vátryggingafélag að dótturfélagi eða hlutdeildarfélagi, er gjaldþol þess skv. 2. mgr. að frádregnum fjárhæðum sem verða til við að sömu eignir eru taldar beint eða óbeint hjá fleiri en einum aðila, svo og öllum eignum sem verða til við gagnkvæma fjármögnun. [Tekið skal tillit til allra dóttur- og hlutdeildarfélaga vátryggingafélagsins, eignarhaldsfélaga á vátryggingasviði, blandaðra eignarhaldsfélaga á vátryggingasviði, félaga sem eiga hlutdeild í vátryggingafélaginu og annarra dóttur- og hlutdeildarfélaga þeirra félaga.] 1) Fjármálaeftirlitið getur í sérstökum tilvikum krafist eða heimilað að önnur aðferð sé notuð við útreikning aðlagaðs gjaldþols.
[Sé vátryggingafélag dótturfélag annars vátryggingafélags eða eignarhaldsfélags á vátryggingasviði skal reikna aðlagað gjaldþol móðurfélagsins samkvæmt ákvæðum þessarar greinar auk útreiknings á gjaldþoli vátryggingafélagsins. Við útreikninginn skal taka tillit til allra hlutdeildarfélaga móðurfélagsins.
Ákvæði þessarar greinar gilda einnig um fjármálasamsteypur. Um útreikning á gjaldþoli fyrir fjármálasamsteypur skulu gilda reglur sem Fjármálaeftirlitið setur.] 1)
Nánar skal kveða á um útreikning á aðlöguðu gjaldþoli í reglugerð. 2) Þar má einnig tilgreina undanþágur frá skyldu til að reikna aðlagað gjaldþol. Taki útreikningurinn til fyrirtækja í öðrum ríkjum fer um samstarf eftirlitsstjórnvalda eftir alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og samstarfssamningum sem Fjármálaeftirlitið gerir á grundvelli þeirra.] 3)
1)L. 130/2004, 18. gr. 2)Rg. 954/2001. 3)L. 37/2003, 1. gr. Ákvæði greinarinnar koma til framkvæmda við eftirlit sem byggist á ársreikningum vegna reikningsársins 2004, sbr. 9. gr. s.l.
30. gr. [Gjaldþol vátryggingafélags, sem rekur aðra starfsemi en líftryggingastarfsemi, skal á hverjum tíma nema minnst þeirri fjárhæð sem hærri er samkvæmt eftirfarandi útreikningi og nefnist lágmarksgjaldþol félagsins, sbr. þó 33. gr.:
1. Við útreikning á lágmarksgjaldþoli á grundvelli iðgjalda skal nota þá fjárhæð sem hærri er af bókfærðum iðgjöldum og iðgjöldum ársins samkvæmt rekstrarreikningi. Byggt skal á iðgjöldum að frádregnum endurgreiðslum og niðurfellingum, en án frádráttar á hlut endurtryggjenda. Hækka skal iðgjöld í greinaflokkum skv. 11., 12. og 13. tölul. 1. mgr. 22. gr. um 50%. Í gagnkvæmum vátryggingafélögum skal telja með iðgjöldum þau framlög eigenda á reikningsárinu sem jafna má til iðgjalda.
Fjárhæð sem reiknuð er skv. 1. mgr. þessa töluliðar skal skipt í tvennt, þannig að fyrri hlutinn nemi allt að 4.250 millj. kr. og sá síðari því sem umfram er. Fjárhæð þessi skal taka árlegum breytingum með þeim hætti sem lýst er í 1. mgr. 33. gr. Leggja skal saman 18% af fyrri hlutanum og 16% af því sem umfram er. Niðurstaða þeirrar samlagningar er síðan margfölduð með hlutfallinu milli samanlagðra eigin tjóna síðustu þriggja reikningsára og samanlagðra tjóna í heild síðustu þrjú reikningsár samkvæmt rekstrarreikningi, en þó aldrei með lægri tölu en 0,5.
2. Við útreikning á lágmarksgjaldþoli á grundvelli tjóna skal byggt á meðalfjárhæð tjóna ársins síðustu þrjú reikningsár, að frádregnum yfirteknum vátryggðum fjármunum og réttindum sem félagið öðlast, en án frádráttar á hlut endurtryggjenda. Áður en meðaltal er reiknað skal hækka tjón í greinaflokkum skv. 11., 12. og 13. tölul. 1. mgr. 22. gr. um 50%. Reki vátryggingafélag starfsemi skv. 18. tölul. 1. mgr. 22. gr. skal leggja við tjónsfjárhæðir í þeirri grein allan kostnað sem félagið hefur borið vegna veittrar aðstoðar, jafnvel þótt hann kunni að falla undir aðra liði í rekstrarreikningi.
Fjárhæð sem reiknuð er skv. 1. mgr. þessa töluliðar skal skipt í tvennt, þannig að fyrri hlutinn nemi allt að 2.975 millj. kr. og sá síðari því sem umfram er. Fjárhæð þessi skal taka árlegum breytingum með þeim hætti sem lýst er í 1. mgr. 33. gr. Leggja skal saman 26% af fyrri hlutanum og 23% af því sem umfram er. Útkoma þeirrar samlagningar er síðan margfölduð með hlutfallinu milli samanlagðra eigin tjóna síðustu þriggja reikningsára og samanlagðra tjóna í heild síðustu þrjú reikningsár samkvæmt rekstrarreikningi en þó aldrei með lægri tölu en 0,5.
Í útreikningum skv. 1. mgr. skal miða við meðaltal sjö síðustu reikningsára í stað þriggja reki félagið aðallega starfsemi í óveðurs-, hagl- eða frostskaðatryggingum eða í greiðsluvátryggingum.
Ef lágmarksgjaldþol reynist vera lægra en á næstliðnu reikningsári skal það ekki lækka meira hlutfallslega en sem nemur hlutfallslegri lækkun eigin tjónaskuldar milli sömu ára.
Í sjúkratryggingum sem reknar eru samkvæmt tæknilegum reiknigrundvelli skal miða við 6% eða 5,33% bókfærðra iðgjalda í stað 18% eða 16% þegar reiknað er á grundvelli iðgjalda, og 8,67% eða 7,67% meðaltjónsfjárhæðar á síðustu þremur árum í stað 26% eða 23% þegar reiknað er á grundvelli tjóna og eftirfarandi skilyrðum er öllum fullnægt:
1. Iðgjöld eru reiknuð samkvæmt tryggingastærðfræðilegum aðferðum út frá sjúkratöflum.
2. Vátryggingaskuldin tekur m.a. mið af hækkandi aldri.
3. Kveðið er á um greiðslu viðbótariðgjalda til að koma upp hæfilegu öryggisálagi.
4. Vátryggingafélagið má segja vátryggingarsamningum upp fyrir lok 3. vátryggingarárs í síðasta lagi.
5. Vátryggingarsamningar kveða á um að hækka megi iðgjöld eða lækka bætur á vátryggingartímabilinu.
Í reglugerð er heimilt að kveða á um hvort og hvernig tekið skuli tillit til hliðarstarfsemi skv. 11. gr. við útreikning á lágmarksgjaldþoli.] 1)
1)L. 37/2003, 2. gr. Ákvæði greinarinnar koma til framkvæmda við eftirlit sem byggist á ársreikningum vegna reikningsársins 2004, sbr. 9. gr. s.l.
31. gr. [Gjaldþol vátryggingafélags sem rekur líftryggingastarfsemi skal á hverjum tíma nema minnst samanlögðum fjárhæðum skv. 1.–7. tölul. hér á eftir, en samtala þessi nefnist lágmarksgjaldþol félagsins, sbr. þó 33. gr.:
1. Hlutdeild áhættu- og söfnunarlíftrygginga án fjárfestingaráhættu skv. 1. tölul. 23. gr. er samtala þeirra fjárhæða sem koma út úr a-, b- og c-lið hér á eftir:
a. Reikna skal 4% af líftryggingaskuldinni í frumtryggingum samkvæmt reiknigrundvelli án frádráttar á hlut endurtryggjenda, en að viðbættri líftryggingaskuld vegna móttekinna lífendurtrygginga. Sú fjárhæð er margfölduð með hlutfallinu milli líftryggingaskuldar að frádregnum hlut endurtryggjenda og heildarlíftryggingaskuldar eins og hlutfallið var á næstliðnu reikningsári, en hlutfall þetta má þó aldrei vera lægra en 0,85.
b. Reikna skal 0,3% af samanlögðum þeim hluta líftryggingarfjárhæða vegna dánaráhættu sem líftryggingafélagið ber áhættu af gagnvart hinum líftryggðu í lok reikningsárs án frádráttar á hlut endurtryggjenda. Sú fjárhæð er margfölduð með hlutfallinu milli samanlagðra líftryggingarfjárhæða að frádregnum hlut endurtryggjenda og heildarlíftryggingarfjárhæða eins og hlutfallið var á næstliðnu reikningsári, en hlutfall þetta má þó aldrei vera lægra en 0,50.
c. Beita skal aðferð 30. gr. til þess að reikna gjaldþolskröfu vegna viðbótartrygginga sem falla undir f- til h-lið 1. tölul. 23. gr.
Sé um að ræða tímabundnar dánaráhættulíftryggingar með gildistíma í þrjú ár eða skemur skal stuðullinn í b-lið vera 0,1% í stað 0,3% og 0,15% sé gildistími lengri en þrjú ár en mest fimm ár.
2. Hlutdeild hjóna- og barnalíftrygginga skv. 2. tölul. 23. gr. er reiknuð eins og í 1. tölul. þessarar málsgreinar.
3. Hlutdeild áhættu- og söfnunarlíftrygginga með fjárfestingaráhættu skv. 3. tölul. 23. gr. er samtala fjárhæða samkvæmt eftirfarandi:
a. Ef líftryggingafélagið ber fjárfestingaráhættu skal reikna 4% af líftryggingaskuldinni í frumtryggingum skv. a-lið 1. tölul.
b. Ef kostnaðarhluti iðgjalda er bundinn til að minnsta kosti fimm ára án þess að líftryggingafélagið beri fjárfestingaráhættu skal reikna 1% af líftryggingaskuldinni skv. a-lið 1. tölul.
c. Ef líftryggingafélagið ber ekki fjárfestingaráhættu og kostnaðarhluti iðgjalda er ekki bundinn til að minnsta kosti fimm ára skal reikna 25% af skrifstofu- og stjórnunarkostnaði við rekstur þeirrar starfsemi á síðasta reikningsári.
d. Vegna dánaráhættu skal reikna hlutfall líftryggingarfjárhæða skv. b-lið 1. tölul.
4. Hlutdeild varanlegra heilsutrygginga án uppsagnarréttar skv. 4. tölul. 23. gr. er samtala tveggja liða sem ákvarðast annars vegar af vátryggingaskuldinni, sbr. a-lið 1. tölul., og hins vegar af lágmarksgjaldþoli eins og það er reiknað skv. 30. gr. Þó má falla frá kröfu 2. tölul. 4. mgr. þeirrar greinar þegar um hópvátryggingar er að ræða.
5. Hlutdeild annarra líftrygginga skv. 5. tölul. 23. gr. í lágmarksgjaldþoli skal ákveðin með reglugerð.
6. Hlutdeild endurtrygginga líftrygginga skv. 6. tölul. 23. gr. skal ákveðin skv. 1.–5. tölul. í samræmi við eðli þeirra líftryggingarsamninga sem endurtryggðir eru. Sé endurtryggingarsamningur ekki til lengri tíma en eins árs er þó heimilt að beita aðferð 30. gr.
7. Hlutdeild slysa- og sjúkratrygginga skv. 1.–2. tölul. 1. mgr. 22. gr. skal ákvörðuð skv. 30. gr.
Í reglugerð er heimilt að kveða á um hvort og hvernig tekið skuli tillit til hliðarstarfsemi skv. 11. gr. við útreikning á lágmarksgjaldþoli.] 1)
1)L. 37/2003, 3. gr. Ákvæði greinarinnar koma til framkvæmda við eftirlit sem byggist á ársreikningum vegna reikningsársins 2004, sbr. 9. gr. s.l.
32. gr. … 1)
1)L. 37/2003, 4. gr.
33. gr. [Þrátt fyrir ákvæði 30. og 31. gr. skal lágmarksgjaldþol vátryggingafélags aldrei vera lægra en 255 millj. kr. Stundi vátryggingafélagið eingöngu starfsemi skv. 1.–9. eða 16.–18. tölul. 1. mgr. 22. gr. má lágmarksgjaldþol ekki vera lægra en 170 millj. kr. Fjárhæðir þessar skulu taka breytingum hinn 31. desember ár hvert í samræmi við breytingar á samræmdri vísitölu neysluverðs í aðildarríkjum EES frá gildinu 111,2 og breytingar á opinberu viðmiðunargengi evru frá genginu 85 kr. Nánar skal kveðið á um útreikning fjárhæða þessara í reglugerð. 1)
Að minnsta kosti þriðjungur lágmarksgjaldþols, þó ekki lægri fjárhæð en segir í 1. mgr., skal myndaður af gjaldþolsliðum skv. 1.–5. tölul. í 1. mgr. 29. gr. Einnig er heimilt að telja þar með gjaldþolsliði skv. 8. tölul. 1. mgr. 29. gr. að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið getur heimilað að lágmarksfjárhæðir skv. 1. mgr. séu lægri í gagnkvæmu vátryggingafélagi en í vátryggingahlutafélagi að teknu tilliti til ábyrgðar vátryggingartaka samkvæmt samþykktum félagsins, sbr. 42. gr. Lágmarksfjárhæðir mega þó aldrei vera lægri en þrír fjórðu hlutar þess sem krafist er í vátryggingahlutafélagi.
Við stofnun vátryggingafélags og meðan félag starfar á grundvelli framlagðrar áætlunar um starfsemina, sbr. 24. gr. eða 90. gr., skal tilskilið lágmarksgjaldþol reiknað á grundvelli áætlunarinnar og endurskoðunar hennar ef forsendur áætlunarinnar breytast.] 2)
1)Rg. 459/2003. 2)L. 37/2003, 5. gr. Ákvæði greinarinnar koma til framkvæmda við eftirlit sem byggist á ársreikningum vegna reikningsársins 2004, sbr. 9. gr. s.l.
Vátryggingaskuld.
34. gr. Vátryggingaskuldin skal metin þannig að hún samsvari óuppgerðum heildarskuldbindingum vátryggingafélags vegna gerðra vátryggingasamninga. Í reglugerð um ársreikning og samstæðureikningsskil vátryggingafélaga skulu sett nánari ákvæði um mat vátryggingaskuldarinnar.
Vátryggingafélag skal, auk þess að uppfylla á hverjum tíma gjaldþolsskilyrði samkvæmt lögum þessum, sjá til þess að á hverjum tíma séu fyrir hendi eignir, sérstaklega tilgreindar til jöfnunar vátryggingaskuldinni. Eignirnar skulu valdar með tilliti til öryggis, ávöxtunar og markaðsaðstæðna og skal félagið tryggja fjölbreytni og dreifingu eignanna. Skal í hverju tilviki fyrir sig meta þá áhættu sem felst í þeim eignum sem ætlað er að mæta vátryggingaskuldinni og sérstaklega með tilliti til dreifingar þannig að vægi einstakra tegunda og eignaliða verði takmarkað. Taka skal tillit til þeirrar áhættu sem felst í fjárfestingu af tiltekinni tegund og takmarka fjárhæðir til jöfnunar vátryggingaskuldinni í samræmi við það.
Setja skal nánari ákvæði í reglugerð 1) um þær tegundir eigna sem telja má til jöfnunar vátryggingaskuld félags, samsetningu þeirra og vægi.
1)Rg. 646/1995, sbr. 581/1997 og 699/2003.
35. gr. Eignir til jöfnunar vátryggingaskuld vegna vátryggingaáhættu sem er í aðildarríki skulu ávaxtaðar í aðildarríki nema [Fjármálaeftirlitið] 1) veiti undanþágu frá því skilyrði sérstaklega.
Velja skal eignir til jöfnunar vátryggingaskuldinni með tilliti til gengisáhættu þannig að dregið sé úr vægi hennar svo sem kostur er. Vátryggingafélagi er heimilt að ávaxta eignir á móti allt að 20% vátryggingaskuldbindinga, sem eru í tilteknum gjaldmiðli, í öðrum gjaldmiðli.
Vátryggingafélagi skal frjálst að ávaxta eignir sem ekki er þörf til jöfnunar vátryggingaskuldinni að teknu tilliti til varfærnissjónarmiða og að uppfylltum skilyrðum um fullnægjandi gjaldþol félagsins.
1)L. 84/1998, 5. gr.
36. gr. Stjórn vátryggingafélags, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, skal sjá til þess að félagið hafi yfir að ráða nægilegri sérþekkingu til þess að meta og reikna út vátryggingaskuld félagsins og til að sjá um tryggingatæknilega útreikninga og athuganir fyrir félagið. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur gert kröfu um að aðili með sérfræðikunnáttu á því sviði verði ráðinn að vátryggingafélagi telji það slíka þekkingu ekki í nægilegum mæli fyrir hendi hjá félaginu.
1)L. 84/1998, 5. gr.
37. gr. Líftryggingafélag skal tryggja sér þjónustu tryggingastærðfræðings, eða sérfræðings með sambærilega þekkingu, sem hefur á hendi nauðsynlega tryggingatæknilega útreikninga og athuganir fyrir félagið. Sá einn má taka að sér slíkt starf fyrir líftryggingafélag sem hlotið hefur viðurkenningu [Fjármálaeftirlitsins]. 1)
Tryggingastærðfræðingur líftryggingafélags skal reikna út vátryggingaskuld (líftryggingaskuld) félagsins. Hann skal fylgjast með því að farið sé eftir reiknigrundvelli iðgjalda, iðgjaldasjóðs og ágóðaúthlutunar og að fylgt sé settum reglum um ákvörðun endurkaupsverðs og fjárhæða gjaldfrjálsra líftrygginga. Sama gildir um sjúkra- og heilsutryggingar sem reknar eru samkvæmt tæknilegum grundvelli.
Tryggingastærðfræðingur líftryggingafélags getur krafist allra gagna og upplýsinga af félaginu til að hann geti innt starf sitt af hendi. Hann getur krafist þess að stjórnin sé kölluð saman og hefur að jafnaði rétt til þess að vera viðstaddur og tjá sig á fundum stjórnarinnar. Sé hann ekki sammála ákvörðun stjórnar hefur hann rétt til að láta skrá álit sitt í gerðabók félagsins.
Komist tryggingastærðfræðingur að því í starfi sínu að líftryggingafélag, sem hann starfar fyrir, fari ekki eftir settum reglum varðandi framangreind atriði skal hann tafarlaust tilkynna það [Fjármálaeftirlitinu]. 1) [Fjármálaeftirlitið] 1) getur krafið tryggingastærðfræðing líftryggingafélags um þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna eftirlits með iðgjaldagrundvelli, líftryggingaskuld og fjárhagsstöðu líftryggingafélags.
1)L. 84/1998, 5. gr.
38. gr. Vátryggingafélag skal halda skrá yfir þær eignir sem eru til jöfnunar vátryggingaskuld eða líftryggingaskuld á hverjum tíma og sjá til þess að nýjar eignir verði skráðar á reikningsárinu þegar breytingar eiga sér stað. Afrit skrárinnar, staðfest af löggiltum endurskoðanda og þegar við á tryggingastærðfræðingi, skal sent [Fjármálaeftirlitinu] 1) með ársreikningi og á öðrum tíma ef [Fjármálaeftirlitið] 1) telur ástæðu til.
1)L. 84/1998, 5. gr.
Eignaraðild.
39. gr. [Aðilar sem hyggjast eignast virkan eignarhlut í vátryggingafélagi skulu leita samþykkis Fjármálaeftirlitsins fyrir fram. Með virkum eignarhlut er átt við beina eða óbeina hlutdeild sem nemur 10% eða meira af eigin fé eða atkvæðisrétti eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi fyrirtækis. Samþykkis Fjármálaeftirlitsins skal enn fremur aflað þegar einstaklingur eða lögaðili eykur svo við eignarhlut sinn að bein eða óbein hlutdeild hans í eigin fé eða atkvæðisrétti fer yfir 20%, 33% eða 50% eða nemur svo stórum hluta að vátryggingafélag verði talið dótturfyrirtæki hans.
Þeir sem hyggjast eignast svo stóran eignarhlut í vátryggingafélagi sem um ræðir í 1. mgr. skulu beina skriflegri umsókn til Fjármálaeftirlitsins. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um eftirfarandi:
1. Nafn og heimili umsækjanda.
2. Nafn þess vátryggingafélags sem umsækjandi hyggst fjárfesta í.
3. Stærð þess hlutar eða atkvæðisréttar sem umsækjandi hyggst fjárfesta í.
4. Áform um breytingar á verkefnum vátryggingafélags.
5. Fjármögnun fjárfestingarinnar.
6. Fjárhagsstöðu umsækjanda.
7. Fyrirhuguð viðskiptatengsl umsækjanda við vátryggingafélag.
8. Reynslu umsækjanda af fjármálastarfsemi.
9. Eignarhald, stjórnarsetu eða aðra þátttöku umsækjanda í starfsemi lögaðila.
10. Refsingar sem umsækjandi hefur verið dæmdur til að sæta og hvort hann sæti opinberri rannsókn.
11. Náin tengsl umsækjanda við aðra lögaðila, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði.
12. Aðrar upplýsingar sem Fjármálaeftirlitið fer fram á að umsækjandi veiti og máli skipta við mat á hæfi eigenda virkra eignarhluta.
Sé umsækjandi lögaðili skal framangreind upptalning eiga við um lögaðilann sjálfan, stjórnarmenn hans, framkvæmdastjóra og þá einstaklinga og lögaðila sem eiga virkan eignarhlut í lögaðilanum. Skal þá enn fremur upplýst um endurskoðanda lögaðilans. Skulu upplýsingarnar studdar gögnum eftir því sem það á við. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að veita undanþágur frá skilum á upplýsingum skv. 2. mgr. hafi lögaðili ekki tök á að afla þeirra eða ef umsækjandi lýtur opinberu fjármálaeftirliti í öðru ríki og unnt sé að afla sambærilegra upplýsinga frá fjármálaeftirliti heimaríkis umsækjanda.
Fjármálaeftirlitið leggur mat á hvort umsækjandi sé hæfur til að eiga eignarhlutinn með tilliti til heilbrigðs og trausts reksturs vátryggingafélags og skal gæta meðalhófs við það mat. Við mat á hæfi umsækjenda skal m.a. höfð hliðsjón af eftirfarandi:
1. Fjárhagsstöðu umsækjanda og aðila sem hann er í nánum tengslum við.
2. Þekkingu og reynslu umsækjanda.
3. Hvort eignarhald umsækjanda skapar hættu á hagsmunaárekstrum á fjármálamarkaði.
4. Stærð þess hlutar eða atkvæðisréttar sem umsækjandi hyggst fjárfesta í.
5. Hvort ætla megi að eignarhald umsækjanda muni torvelda eftirlit með hlutaðeigandi vátryggingafélagi. Við mat á því skal m.a. horft til fyrri samskipta umsækjanda við Fjármálaeftirlitið eða önnur stjórnvöld, til þess hvort náin tengsl umsækjanda við einstaklinga eða lögaðila geta að mati Fjármálaeftirlitsins hindrað það í eðlilegum eftirlitsaðgerðum og hvort lög og reglur, sem gilda um umsækjanda, hindra eðlilegt eftirlit.
6. Hvort umsækjandi hefur gefið Fjármálaeftirlitinu umbeðnar upplýsingar ásamt fylgigögnum og þær upplýsingar hafa reynst réttar.
7. Refsingum sem umsækjandi hefur verið dæmdur til að sæta og hvort hann sæti opinberri rannsókn.
Telji Fjármálaeftirlitið umsækjanda ekki hæfan til þess að eiga eignarhlutinn með tilliti til heilbrigðs og trausts reksturs vátryggingafélagsins skal það synja umsækjanda um leyfi til þess. Fjármálaeftirlitinu er þó heimilt að fallast á umsókn, þrátt fyrir að umsækjandi teljist ekki hæfur til að eiga eignarhlutinn, gegn því að umsækjandinn grípi til ráðstafana í því skyni að takmarka skaðleg áhrif af eignarhaldi hans, t.d. að fela eignarhaldið sérstöku eignarhaldsfélagi sem hafi ekki aðra starfsemi með höndum eða tilnefna einstaklinga sem Fjármálaeftirlitið metur hæfa sem fulltrúa sína í félagsstjórn.
Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins skv. 5. mgr. skal vera skrifleg og hafa borist umsækjanda innan eins mánaðar frá þeim degi er því bárust fullnægjandi upplýsingar ásamt fylgigögnum. Berist ákvörðun Fjármálaeftirlitsins umsækjanda ekki innan þess tíma telst það hafa samþykkt umsóknina. Rökstuðningur skal fylgja synjun Fjármálaeftirlitsins á umsókn.
Heimild til að eignast eða auka við virkan eignarhlut í vátryggingafélagi gildir í sex mánuði eftir að samþykki Fjármálaeftirlitsins liggur fyrir. Nýti umsækjandi ekki heimildina á þeim tíma ber honum að afla samþykkis Fjármálaeftirlitsins á nýjan leik, sbr. 1. og 2. mgr.
Sæki aðili ekki um leyfi Fjármálaeftirlitsins í tilefni af kaupum eða aukningu á virkum eignarhlut, þrátt fyrir að honum sé það skylt skv. 1. mgr., fellur niður atkvæðisréttur sem fylgir þeim hlutum sem eru umfram leyfileg mörk. Skulu þeir þá ekki taldir með við útreikning á því hve miklum hluta hlutafjár farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundum. Fjármálaeftirlitið tilkynnir viðkomandi vátryggingafélagi um brottfall atkvæðisréttarins. Skal Fjármálaeftirlitið gera hlutaðeigandi aðila að leggja fram umsókn ásamt fylgigögnum skv. 2. mgr. Berist umbeðin gögn innan tilskilins frests tekur Fjármálaeftirlitið ákvörðun um afgreiðslu umsóknar skv. 5. mgr. Berist umbeðin gögn ekki innan fjögurra vikna frá því að um þau var beðið eða Fjármálaeftirlitið synjar viðkomandi aðila um leyfi til að eiga eða auka við virkan eignarhlut skal honum skylt að selja þann hluta eignarhlutarins sem er umfram leyfileg mörk. Skal Fjármálaeftirlitið setja tímamörk í því skyni og skal fresturinn ekki vera skemmri en tveir mánuðir. Sé hlutur ekki seldur á tilskildum tíma er Fjármálaeftirlitinu heimilt að beita aðila dagsektum samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Heimili Fjármálaeftirlitið viðkomandi aðila að eignast eða auka við virkan eignarhlut fá hlutirnir atkvæðisrétt að nýju.
Eignist aðili eða auki við virkan eignarhlut þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi hafnað umsókn hans um það fellur niður atkvæðisréttur sem fylgir þeim hlutum sem eru umfram leyfileg mörk. Skulu þeir þá ekki taldir með við útreikning á því hve miklum hluta hlutafjár farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundum. Fjármálaeftirlitið tilkynnir viðkomandi vátryggingafélagi um brottfall atkvæðisréttarins. Skal viðkomandi aðila að því búnu skylt að selja þann hluta eignarhlutarins sem er umfram leyfileg mörk. Skal Fjármálaeftirlitið setja tímamörk í því skyni og skal fresturinn ekki vera skemmri en tveir mánuðir. Sé hlutur ekki seldur á tilskildum tíma er Fjármálaeftirlitinu heimilt að beita aðila dagsektum samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Hyggist eigandi virks eignarhlutar draga svo úr hlutafjáreign sinni að hann eigi ekki virkan eignarhlut eftir það skal hann tilkynna það Fjármálaeftirlitinu fyrir fram og einnig hver eignarhlutur hans muni verða. Fari eignarhluturinn niður fyrir 20%, 33%, 50% eða svo mikið að vátryggingafélagið hættir að vera dótturfyrirtæki hlutaðeigandi skal það einnig tilkynnt.
Þegar tilkynning hefur borist um aðilaskipti að hlutabréfum í vátryggingafélagi sem valda því að hlutafjáreign fer yfir eða undir þau mörk sem tilgreind eru í 1. mgr. skal félagsstjórn þess tilkynna Fjármálaeftirlitinu um það án ástæðulauss dráttar.
Eigi sjaldnar en einu sinni á ári skal vátryggingafélag tilkynna Fjármálaeftirlitinu um þá hluthafa sem eiga virkan eignarhlut í því og um hlutafjáreign hvers þeirra.
Ákvæði þessarar greinar gilda um náin tengsl eftir því sem við getur átt. Ekki má mynda náin tengsl nema sýnt sé að þau hindri ekki eftirlit með starfsemi félagsins.] 1)
1)L. 69/2001, 11. gr.
40. gr. [Sé aðila, sem á virkan eignarhlut í vátryggingafélagi, svo farið eða fari hann þannig með hlut sinn að skaði heilbrigðan og traustan rekstur þess getur Fjármálaeftirlitið gripið til eftirfarandi ráðstafana:
1. Ákveðið að þeim hlutum fylgi ekki atkvæðisréttur.
2. Lagt fyrir hlutaðeigandi vátryggingafélag að grípa til ráðstafana sem draga úr skaðlegum áhrifum hluthafans.
3. Lagt fyrir félagsstjórn hlutaðeigandi vátryggingafélags að boða til hluthafafundar þar sem háttsemi hluthafans skal tekin fyrir. Skal fulltrúa Fjármálaeftirlitsins heimilt að sækja fundinn og taka þar til máls.
Við mat á því hvort gripið skuli til ráðstafana skv. 1. mgr. skal m.a. höfð hliðsjón af þeim atriðum sem greinir í 4. mgr. 39. gr. Að auki skal höfð sérstök hliðsjón af því hvort staða eða háttsemi viðkomandi aðila væri til þess fallin að rýra traust almennings á hlutaðeigandi vátryggingafélagi, væri hún opinber.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að grípa í senn til fleiri en einnar af þeim ráðstöfunum sem tilgreindar eru í 1. mgr., þyki það nauðsynlegt.
Telji Fjármálaeftirlitið að náin tengsl hindri eftirlit með starfsemi vátryggingafélags skal það fara fram á að tengslin verði strax rofin, nema það telji aðrar ráðstafanir fullnægjandi.] 1)
1)L. 69/2001, 12. gr.
41. gr. Vátryggingahlutafélag má sjálft aldrei eiga meira en 10% hlutafjárins. Atkvæðisréttur fylgir ekki hlutabréfum sem vátryggingahlutafélag á sjálft.
Gagnkvæmt vátryggingafélag má ekki afla eigin stofnfjárhluta til eignar eða að veði gegn greiðslu. Dótturfélag slíks félags má ekki afla stofnfjárhluta í móðurfélaginu til eignar eða að veði gegn greiðslu.
Megi greiða nýja hluti með skuldajöfnuði eða á annan hátt en með reiðufé við hækkun hlutafjár eða stofnfjár skulu reglur þar að lútandi koma fram í ákvörðun félagsfundar um hækkunina og gildir ákvæði 16. gr. eftir því sem við getur átt. Ákvörðun um að innborgun nýrra hluta geti farið fram með skuldajöfnuði skal hljóta samþykki [Fjármálaeftirlitsins]. 1)
Allar ákvarðanir um lækkun hlutafjár eða stofnfjár í vátryggingafélagi skulu háðar samþykki [Fjármálaeftirlitsins]. 1) Stofnfé gagnkvæms vátryggingafélags má ekki lækka eða endurgreiða nema samþykki eftirlitsins liggi fyrir.
Í gagnkvæmum vátryggingafélögum og félögum sem starfa samkvæmt sérlögum skal halda bók um stofnfjárhluti. Stofnfjárhlutirnir skulu skráðir í bókina með upplýsingum um nafn og heimilisfang ábyrgðarmanns. Stofnfjárhluturinn skal hafa áritun félagsins um skrásetninguna.
1)L. 84/1998, 5. gr.
42. gr. Hver sá sem vátryggir hjá gagnkvæmu vátryggingafélagi er sameigandi þess. Settar skulu reglur um ábyrgð vátryggingataka á skuldbindingum félagsins í samþykktum þess.
Undanþiggja má vátryggingafélag sem endurtryggir hjá gagnkvæmu félagi slíkri ábyrgð samkvæmt heimild í samþykktum félagsins. Endurtryggingaiðgjöld, sem undanþegin eru, mega ekki nema meira en 10% af heildariðgjöldum félagsins án samþykkis [Fjármálaeftirlitsins]. 1)
Ábyrgð vátryggingataka skal miða við almanaksár og fellur hún niður miðað við hver áramót ef eigi er krafa gerð á hendur vátryggingataka innan tveggja ára frá lokum þess almanaksárs er vátrygging féll úr gildi.
Einungis skiptastjóri þrotabús eða skilastjórn gagnkvæms vátryggingafélags getur krafið vátryggingataka um greiðslu samkvæmt ábyrgðarskuldbindingum þeirra en ekki einstakir kröfuhafar félagsins. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur þó heimilað stjórn gagnkvæms vátryggingafélags að krefja vátryggingataka um slíka greiðslu, enda sé slíks þörf til þess að félagið geti staðið við skuldbindingar sínar. Slíka heimild má þó einungis veita til eins árs í senn.
Á hverju vátryggingaskírteini, sem gagnkvæmt vátryggingafélag gefur út, skal koma skýrt fram hvernig ábyrgð vátryggingataka er háttað.
1)L. 84/1998, 5. gr.
IV. kafli. Stjórn. Endurskoðun og reikningsskil.
Stjórn.
43. gr. Stjórn vátryggingafélags, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, skal kjörin á aðalfundi samkvæmt ákvæðum samþykkta félagsins og skal skipuð þremur mönnum hið fæsta. Stjórnin hefur almennt eftirlit með því að starfsemi félagsins fari að lögum og samþykktum, þar á meðal eftirlit með bókhaldi og ráðstöfun fjármuna félagsins. [Stjórnin ber ásamt framkvæmdastjóra ábyrgð á því að skipulag félagsins og innra eftirlit sé fullnægjandi og á því að félagið geti lagt fram upplýsingar sem þörf er á til eftirlits með því. Fjármálaeftirlitið getur sett almennar reglur um fyrirkomulag innra eftirlits í vátryggingafélögum.] 1)
[Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar skulu vera búsettir hér á landi, vera lögráða, hafa óflekkað mannorð og mega ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota eða í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld, svo og löggjöf um vátryggingastarfsemi. [Ríkisborgarar þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, svo og ríkisborgarar aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu, eru undanþegnir búsetuskilyrðum enda séu viðkomandi ríkisborgarar búsettir í EES-ríki eða aðildarríki stofnsamningsins.] 2) Ráðherra er heimilt að veita undanþágu frá búsetuskilyrðum. Menntun, starfsreynsla og starfsferill framkvæmdastjóra skal vera með þeim hætti að tryggt sé talið að hann geti gegnt stöðu sinni á viðhlítandi hátt.] 3)
Stjórnin boðar til aðalfunda. Sé ekki boðað til aðalfundar sem halda skal í samræmi við lög, samþykktir eða ákvörðun aðalfundar boðar [Fjármálaeftirlitið] 4) til hans að kröfu stjórnarmanns, framkvæmdastjóra, endurskoðanda eða aðila sem atkvæðisbær er á aðalfundi. [Fjármálaeftirlitið] 4) tilnefnir fundarstjóra og skal stjórnin afhenda honum skrá yfir þá sem atkvæðisbærir eru, gerðabók aðalfunda og endurskoðunarbók. Félagið greiðir kostnað við aðalfundinn.
Fái stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar þóknun eða aðrar tekjur af vátryggingum, sem félagið yfirtekur eða lætur af hendi, vegna þátttöku í umboðs- eða miðlunarstarfsemi eða vegna fjárhagslegra hagsmuna í slíkri starfsemi skal [Fjármálaeftirlitinu] 4) send tilkynning þar að lútandi.
Stjórn móðurfélags ber að tilkynna [Fjármálaeftirlitinu] 4) þegar mynduð er félagasamstæða og vátryggingafélag öðlast yfirráð í öðru félagi. [Einnig skal tilkynna verulegar breytingar á skipulagi samstæðu þegar þær ganga í gildi.] 3)
[Stjórn vátryggingafélags skal setja verklagsreglur um verðbréfaviðskipti félagsins, stjórnar þess og starfsmanna. Verklagsreglurnar skulu staðfestar af Fjármálaeftirlitinu.] 5)
Stjórn og framkvæmdastjóri skulu án tafar gera [Fjármálaeftirlitinu] 4) viðvart hafi þeir vitneskju um málefni sem hafa úrslitaþýðingu fyrir áframhaldandi starfsemi félagsins.
1)L. 97/2000, 4. gr. 2)L. 76/2002, 53. gr. 3)L. 63/1997, 12. gr. 4)L. 84/1998, 5. gr. 5)L. 11/2000, 16. gr.
44. gr. Ársreikning skal semja fyrir hvert reikningsár. Ársreikningur skal hafa að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, skýringar og upplýsingar um liði utan efnahagsreiknings. Einnig skal semja skýrslu stjórnar sem ásamt ársreikningi myndar eina heild. Reikningsár vátryggingafélags er almanaksárið. Ársreikningur skal gefa glögga mynd af fjárhagsstöðu og rekstrarafkomu vátryggingafélags og skal gerður í samræmi við lög, reglur og góða reikningsskilavenju.
Ársreikningur og skýrsla stjórnar skulu undirrituð af stjórn og framkvæmdastjóra. Hafi stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri mótbárur fram að færa skal viðkomandi undirrita með fyrirvara og gera grein fyrir því í skýrslu stjórnar hvað felst í fyrirvaranum.
Ársreikningur ásamt skýrslu stjórnar skal liggja frammi til afhendingar á afgreiðslustað vátryggingafélags eftir samþykkt hans á aðalfundi.
Ef ársreikningur vátryggingafélags er ekki í samræmi við lög og reglugerðir eða samþykktir félagsins getur [Fjármálaeftirlitið] 1) krafist breytinga á reikningnum og að hann verði tekinn á ný til umfjöllunar á félagsfundi og skal félaginu þá settur hæfilegur frestur. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal birta meginniðurstöður ársreiknings í Lögbirtingablaði.
Ráðherra setur nánari ákvæði um form og innihald ársreiknings og um samstæðureikningsskil með reglugerð. 2)
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)Rg. 612/1996, rg. 613/1996, sbr. 956/2001; rg. 677/1996.
Endurskoðun og reikningsskil.
45. gr. Ársreikningur vátryggingafélags skal endurskoðaður af löggiltum endurskoðanda. Aðalfundur kýs endurskoðendur í samræmi við samþykktir félags. Sé vátryggingafélagið hluti félagasamstæðu skal löggiltur endurskoðandi vera sameiginlegur fyrir samstæðuna í heild. Ef um er að ræða félag af því tagi sem getið er í 2. mgr. 11. gr. getur [Fjármálaeftirlitið] 1) gert kröfu um að a.m.k. einn löggiltur endurskoðandi sé sameiginlegur fyrir öll félögin.
Endurskoðandi má ekki eiga sæti í stjórn, vera starfsmaður vátryggingafélags eða starfa í þágu þess að öðru en endurskoðun. Hann má ekki vera skuldugur félaginu, hvorki sem skuldari né ábyrgðarmaður, og sama gildir um maka hans.
Endurskoðendur félags eiga rétt á að sitja stjórnar- og félagsfundi í vátryggingafélagi og er skylt að mæta á aðalfundi æski stjórn eða atkvæðisbær maður þess.
1)L. 84/1998, 5. gr.
46. gr. Endurskoðandi skal endurskoða ársreikning vátryggingafélags í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Hann skal með endurskoðun sinni komast að rökstuddri niðurstöðu um áreiðanleika þeirra upplýsinga sem ársreikningurinn veitir og ganga úr skugga um að ársreikningurinn sé gerður í samræmi við lög, reglur, samþykktir og góða reikningsskilavenju. Endurskoðandi skal árita ársreikning, greina frá niðurstöðum endurskoðunarinnar og láta í ljósi álit sitt. Telji endurskoðandi að skýrsla stjórnar hafi ekki að geyma þær upplýsingar sem ber að veita eða sé ekki í samræmi við ársreikninginn skal hann vekja athygli á þeim atriðum í áritun sinni sem hann telur eðlilegt og rétt að komi fram.
[Endurskoðendum vátryggingafélags er skylt að veita [Fjármálaeftirlitinu] 1) þær upplýsingar um framkvæmd og niðurstöður endurskoðunar er það óskar. Þeim er einnig skylt að gera [Fjármálaeftirlitinu] 1) tafarlaust viðvart fái þeir í starfi sínu fyrir félagið eða þá sem vátryggingafélagið er í nánum tengslum við vitneskju um:
a. líkleg brot á þeirri löggjöf sem gildir um starfsemi félagsins,
b. málefni sem kunna að hafa úrslitaþýðingu fyrir áframhaldandi starfsemi félagsins,
c. athugasemdir eða fyrirvara í áritun á ársreikning.
Upplýsingar, sem endurskoðandi veitir [Fjármálaeftirlitinu] 1) samkvæmt ákvæðum þessarar greinar, teljast ekki brot á lögbundinni eða samningsbundinni þagnarskyldu.] 2)
Birti félag eða samstæða félaga ársreikning opinberlega skal form og orðalag vera í samræmi við hinn áritaða og endurskoðaða ársreikning og með áritun löggilts endurskoðanda. Ef ársreikningur er birtur opinberlega í styttri útgáfu skal auk upplýsinga um fyrirvara við undirritun, ef einhverjir eru, einnig koma fram að um stytta útgáfu sé að ræða.
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 63/1997, 13. gr.
47. gr. Vátryggingafélag sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi skal innan 10 daga frá undirritun og innan fjögurra mánaða frá lokum reikningsárs senda [Fjármálaeftirlitinu] 1) endurskoðaðan og undirritaðan ársreikning félagsins. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal setja nánari reglur um þau gögn sem fylgja eiga ársreikningi um starfsemina og nauðsynleg eru til að unnt sé að framfylgja eftirliti í samræmi við lög þessi.
1)L. 84/1998, 5. gr.
48. gr. Reki vátryggingafélag, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, útibú eða veiti þjónustu erlendis skal það láta [Fjármálaeftirlitinu] 1) í té upplýsingar um iðgjaldamagn, tjónakostnað og umboðslaun án frádráttar á hlut endurtryggjenda með skiptingu á einstök ríki og starfsemi þar sem útibú er rekið og þar sem þjónusta er veitt. Einnig skal skipting gerð eftir greinaflokkum samkvæmt nánari reglum sem [Fjármálaeftirlitið] 1) setur. Upplýsingar þessar um starfsemi í aðildarríkjum skulu sendar hlutaðeigandi eftirlitsstjórnvöldum gistiríkja óski þau þess sérstaklega.
[Fjármálaeftirlitið] 1) skal afla hliðstæðra upplýsinga um starfsemi erlendra vátryggingafélaga aðildarríkja hérlendis frá eftirlitsstjórnvöldum hlutaðeigandi heimaríkja.
1)L. 84/1998, 5. gr.
49. gr. Einungis er heimilt að úthluta sem arði hagnaði samkvæmt samþykktum ársreikningi síðasta reikningsárs, yfirfærðum hagnaði frá fyrri árum og óbundnu fé eftir að dregið hefur verið frá tap sem ekki hefur verið jafnað, svo og það fé sem samkvæmt lögum og samþykktum skal lagt í sérstaka sjóði, enda sé ljóst að félagið uppfylli kröfur um tilskilið lágmarksgjaldþol, þess hafi verið gætt að leggja til hliðar nægilegt fé fyrir vátryggingaskuld félagsins, svo og að settum reglum um mat á eignum félagsins og fyrningu þeirra hafi verið fylgt.
V. kafli. Stjórnsýsla. Eftirlit.
Stjórnsýsla.
50. gr. Ráðherra vátryggingamála fer með yfirstjórn þeirra málefna sem falla undir lög þessi.
… 1)
1)L. 84/1998, 5. gr.
51.–52. gr. … 1)
1)L. 84/1998, 5. gr.
Eftirlit.
53. gr. [Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með þeim er reka starfsemi sem háð er ákvæðum laga þessara og útibúum erlendra vátryggingafélaga sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi. Um eftirlitið fer samkvæmt lögum þessum og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.] 1)
1)L. 84/1998, 5. gr.
54. gr. [Fjármálaeftirlitið skal a.m.k. árlega kanna gjaldþol og greiðsluþol vátryggingafélaga á grundvelli ársreiknings fyrir næstliðið reikningsár og annarra nauðsynlegra gagna og upplýsinga um starfsemina. Einnig skal kanna aðlagað gjaldþol vátryggingafélaga og móðurfélaga þeirra ef við á. Fjármálaeftirlitið getur snúið sér til dóttur- og hlutdeildarfélaga vátryggingafélags, félaga sem hafa yfirráð yfir eða eiga hlutdeild í vátryggingafélaginu og til dóttur- og hlutdeildarfélaga þeirra félaga til að afla nauðsynlegra gagna hafi vátryggingafélagið sjálft ekki staðið Fjármálaeftirlitinu skil á þeim. Viðkomandi fyrirtæki skal þegar verða við beiðni um slík gögn. Einu gildir hvort eignaraðild er bein eða óbein. Gögnin má sannreyna með athugun á staðnum, hjá vátryggingafélaginu sjálfu eða öðrum félögum í sömu félagasamstæðu. Fjármálaeftirlitið getur í könnun sinni lækkað gjaldþolsliði frá mati vátryggingafélags, einkum þegar markaðsverð þeirra hefur lækkað eða er óvissu undirorpið. Einnig má draga úr áhrifum endurtrygginga við útreikning lágmarksgjaldþols skv. 30. og 31. gr. hafi orðið veruleg breyting á endurtryggingarvernd frá því tímabili sem útreikningur lágmarksgjaldþols miðast við, eða ef óveruleg vátryggingaráhætta er flutt til endurtryggjenda. Fjármálaeftirlitið metur hvort skilyrði 29.–33. gr., eftir því sem við á, séu uppfyllt. Hafi Fjármálaeftirlitið athugasemdir fram að færa skal það tilkynnt félaginu. Sé nauðsynlegt að grípa til sérstakra ráðstafana vegna þessa eiga ákvæði XI. kafla við.] 1)
[Fjármálaeftirlitið] 2) leggur árlega mat á vátryggingaskuld vátryggingafélaga, þar á meðal hvort tekið sé á fullnægjandi hátt tillit til óvissu í mati með nauðsynlegu álagi og að skilyrðum um það sem lagt er fram til jöfnunar vátryggingaskuldinni sé fullnægt, sbr. 34. og 35. gr. Vátryggingafélög skulu í gögnum til [Fjármálaeftirlitsins] 2) með ársreikningi gera grein fyrir því hvernig vátryggingaskuldin er ákveðin og hvaða eignir eru tilgreindar til að mæta henni. [Fjármálaeftirlitið] 2) getur sett almennar reglur 3) um mat á vátryggingaskuldinni og hvaða gögn skuli fylgja í því sambandi auk ársreiknings.
[Fjármálaeftirlitið fylgist með viðskiptum vátryggingafélags við dóttur- og hlutdeildarfélög þess, félög sem hafa yfirráð yfir eða eiga hlutdeild í vátryggingafélaginu og við önnur dóttur- og hlutdeildarfélög þeirra félaga. Jafnframt skal Fjármálaeftirlitið fylgjast með viðskiptum vátryggingafélags við einstaklinga sem eiga 20% hlut eða stærri í framangreindum félögum. Sérstaklega skal fylgjast með lánum, ábyrgðum og liðum utan efnahagsreiknings, efnahagsliðum sem myndað geta hluta af gjaldþoli, fjárfestingum, endurtryggingaviðskiptum og samningum um kostnaðarskiptingu.
Árlega skulu vátryggingafélög skila Fjármálaeftirlitinu skýrslu um slík viðskipti eftir nánari ákvörðun þess. Séu viðskiptin við fyrirtæki eða einstaklinga í öðrum ríkjum fer um samstarf eftirlitsstjórnvalda eftir alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og samstarfssamningum sem Fjármálaeftirlitið gerir á grundvelli þeirra.] 4)
[Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með að fjármálasamsteypur fari að ákvæðum laga þessara. Fjármálaeftirlitið setur nánari reglur um tilgreiningu á fjármálasamsteypum og eftirlit með þeim. Fjármálaeftirlitið getur og sett almennar reglur um tilhögun innra eftirlits í fjármálasamsteypum. Fjármálaeftirlitið getur að ósk eftirlitsstjórnvalda í öðru ríki staðreynt upplýsingar frá aðilum hér á landi sem falla undir eftirlit með fjármálasamsteypum. Viðkomandi eftirlitsstjórnvöldum er heimilt að taka þátt í vinnu við að staðreyna slíkar upplýsingar.] 5)
1)L. 37/2003, 6. gr. Ákvæði greinarinnar koma til framkvæmda við eftirlit sem byggist á ársreikningum vegna reikningsársins 2004, sbr. 9. gr. s.l. 2)L. 84/1998, 5. gr. 3) Rgl. 903/2004. 4)L. 97/2000, 5. gr. 5)L. 130/2004, 19. gr.
55. gr. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal, eftir því sem kostur er, fylgjast með vátryggingaskilmálum sem í boði eru hér á landi og gæta þess að þeir séu í samræmi við lög sem hér gilda og góða viðskiptaháttu. Telji [Fjármálaeftirlitið] 1) að svo sé ekki skal það gera kröfu um að slíkum ákvæðum verði breytt eða þau verði afnumin. Skylt er að senda [Fjármálaeftirlitinu] 1) skilmála lögboðinna vátrygginga fyrir fram, svo og breytingar á þeim, og áður en þeir eru boðnir á vátryggingamarkaði.
[Fjármálaeftirlitið] 1) skal einnig fylgjast með iðgjaldagrundvelli vátrygginga með það fyrir augum að iðgjöld, sem í boði eru hér á landi, séu sanngjörn í garð vátryggingataka og í samræmi við þá áhættu sem í vátryggingum felst og eðlilegan rekstrarkostnað. Telji [Fjármálaeftirlitið] 1) að svo sé ekki skal með rökstuddum hætti gerð athugasemd. Fullnægjandi gögn um reiknigrundvöll líftrygginga og heilsutrygginga, svo og breytingar á þeim, skulu lögð fyrir [Fjármálaeftirlitið] 1) fyrir fram og áður en þessir greinaflokkar eru boðnir á vátryggingamarkaði.
[Fjármálaeftirlitið] 1) hefur eftirlit með viðskiptaháttum vátryggingafélaga sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi, sölustarfsemi þeirra og tjónsuppgjöri. Einnig skal [Fjármálaeftirlitið] 1) hafa eftirlit með rekstrarfyrirkomulagi, bókhaldi og innra eftirliti vátryggingafélaga. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal gera þær kannanir sem það telur nauðsynlegar í þessu efni hjá vátryggingafélögum. Það skal einnig að þessu leyti fylgjast með starfsemi vátryggingafélaga aðildarríkja sem á grundvelli starfsleyfis heimaríkis fá heimild til að bjóða vátryggingar hér á landi og koma á framfæri athugasemdum við hlutaðeigandi félag eða eftirlitsstjórnvöld heimaríkis ef með þarf til úrbóta vegna þess sem [Fjármálaeftirlitið] 1) telur að úrskeiðis hafi farið.
… 1)
[Fjármálaeftirlitið] 1) skal ávallt hafa heimild til könnunar á því hjá vátryggingafélögum sem hér reka vátryggingastarfsemi hvort vátryggingaskilmálar, iðgjaldagrundvöllur eða önnur atriði, er snerta starfsemi þeirra eða rekstur, samrýmist lögum og reglum er hér gilda og á rétt á hvers konar gögnum frá vátryggingafélögum þar að lútandi.
[Fjármálaeftirlitið getur krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá einstaklingum eða lögaðilum sem eiga eða hyggjast eignast eða fara með eignarhlut í vátryggingafélagi í því skyni að meta hvort þeir falli undir tilkynningarskyldu skv. 39. gr. og hvort þeir teljist hæfir til að fara með virkan eignarhlut skv. 39. og 40. gr.
Fjármálaeftirlitið getur krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá dótturfyrirtækjum eða hlutdeildarfyrirtækjum eða öðrum aðilum sem teljast í nánum tengslum við vátryggingafélag, enda telji Fjármálaeftirlitið upplýsingarnar nauðsynlegar í eftirliti sínu með vátryggingafélaginu.
Telji Fjármálaeftirlitið að starfsemi samkvæmt lögum þessum sé stunduð án tilskilinna leyfa getur það krafist gagna og upplýsinga hjá viðkomandi aðilum sem nauðsynleg eru til að ganga úr skugga um hvort svo sé. Getur það krafist þess að slíkri starfsemi sé hætt þegar í stað. Jafnframt er því heimilt að birta opinberlega nöfn aðila sem taldir eru bjóða þjónustu án tilskilinna leyfa.
Heimilt er að beita ákvæðum laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi um dagsektir, stjórnvaldssektir og leit og hald á gögnum við upplýsingaöflun og eftirlit samkvæmt þessari grein.] 2)
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 11/2000, 17. gr.
VI. kafli. Upplýsingaskylda. Val á löggjöf um vátryggingasamninga.
Upplýsingaskylda.
56. gr.1) Áður en gengið er frá vátryggingasamningi, og einstaklingur á í hlut, skal vátryggingafélag eða sá sem gerir samninginn fyrir hönd þess gefa vátryggingataka ítarlegar upplýsingar um efni þeirrar löggjafar sem samningsaðilar hyggjast semja um að gildi um samninginn. Einnig skal upplýsa um hvaða aðilar hafi með höndum þjónustu vegna kvörtunar- eða ágreiningsmála vegna vátryggingasamninga við vátryggingafélög án þess að skerða rétt hlutaðeigandi til að skjóta málum til dómstóla.
Val á löggjöf um vátryggingasamning ásamt staðfestingu á að vátryggingataki hafi fengið ítarlegar upplýsingar um efni þeirrar löggjafar skal koma fram í samningnum sjálfum eða í fylgigögnum með honum.
1)Greinin fellur úr gildi 1. janúar 2006 við gildistöku l. 30/2004, um vátryggingarsamninga, sbr. 147. gr. þeirra laga.
57. gr.1) Vátryggingataki skal ávallt upplýstur um heiti og aðsetur þess vátryggingafélags sem vátrygginguna býður og vátryggingaáhættuna ber áður en hann er skuldbundinn samkvæmt vátryggingasamningi. Upplýsingarnar skulu ávallt koma fram á bréfum og öðrum tilkynningum til vátryggingataka, svo og heiti og aðsetur aðalstöðva félagsins þegar um útibú er að ræða. Víkja má frá upplýsingaskyldunni skv. 2. málsl. þegar vátryggingaáhættan telst stóráhætta, sbr. 8. gr.
Öll bindandi tilboð, vátryggingasamningar og ígildi þeirra skulu hafa að geyma upplýsingar um heiti og aðsetur þess félags sem ber vátryggingaáhættuna og aðalstöðvar þess. Þegar um ábyrgðartryggingu ökutækja er að ræða og veitt er þjónusta án starfsstöðvar skal nafn og heimilisfang þess fulltrúa félagsins sem annast tjónsuppgjör einnig koma fram.
Vátryggingafélögum með aðalstöðvar í aðildarríki skal heimilt að auglýsa þjónustu sína hér á landi með sama hætti og félög sem hafa fengið starfsleyfi hér á landi enda sé fylgt lögum og reglum sem hér gilda um auglýsingar.
1)1. og 2. mgr. greinarinnar falla úr gildi 1. janúar 2006 við gildistöku l. 30/2004, um vátryggingarsamninga, sbr. 147. gr. þeirra laga.
58. gr.1) Vátryggingaskilmálar lögboðinna vátrygginga skulu látnir [Fjármálaeftirlitinu] 2) í té áður en þeir eru boðnir vátryggingatökum þegar vátryggingaáhættan er hér á landi, sbr. 8. gr., og sama gildir um tæknilegan grundvöll líf- og heilsutrygginga, sbr. 21. gr. Félög, sem fá starfsleyfi skv. 71. gr., skulu með sama hætti láta í té sýnishorn skilmála og iðgjaldagrundvallar annarra vátryggingagreina.
Hver sá sem hefur með höndum sölu vátrygginga á vegum vátryggingafélaga skal framvísa skilríkjum við störf sín sem útgefin eru og undirrituð af því vátryggingafélagi eða félögum sem hann starfar fyrir. Vátryggingaumboðsmenn og vátryggingasölumenn skulu, svo sem unnt er áður en vátryggingasamningur er gerður, upplýsa hlutaðeigandi um iðgjöld og vátryggingaskilmála.
Vátryggingafélög skulu sjá til þess að starfsemi aðila skv. 2. mgr. sé þannig að öflun vátrygginga fari fram með hag vátryggingataka og vátryggðra fyrir augum. Þau skulu einnig sjá til þess að tjónþolar fái fullnægjandi upplýsingar um bótarétt sinn og sundurliðun á því hvernig bætur til þeirra eru ákveðnar.
1)2. og 3. mgr. greinarinnar falla úr gildi 1. janúar 2006 við gildistöku l. 30/2004, um vátryggingarsamninga, sbr. 147. gr. þeirra laga. 2)L. 84/1998, 5. gr.
59. gr.1) Vátryggingaskilmálar frumtrygginga, annarra en líftrygginga, sbr. 60. gr., sem boðnir eru vegna vátryggingaáhættu sem hér er og ekki er stóráhætta skv. 8. gr., skulu vera á íslensku eða öðru tungumáli sem vátryggingataki samþykkir og gerir honum kleift, áður en gengið er frá vátryggingasamningi, að tileinka sér þau ákvæði skilmálanna sem skipta máli um innihald þeirra, vátryggingavernd og þau kjör sem í boði eru.
1)Greinin fellur úr gildi 1. janúar 2006 við gildistöku l. 30/2004, um vátryggingarsamninga, sbr. 147. gr. þeirra laga.
60. gr.1) Áður en vátryggingasamningur er gerður í greinaflokkum líftrygginga og öðrum sem leyfi er veitt fyrir skv. 23. gr. og á samningstímanum skal, þegar skuldbinding komst á hér á landi, sbr. 8. gr., vátryggingataki upplýstur skriflega á íslensku um eftirfarandi atriði:
1. Heiti líftryggingafélagsins og félagsform.
2. Heimilisfang aðalstöðva líftryggingafélagsins og, þegar við á, þess útibús sem samningurinn er gerður við.
3. Allar tegundir bóta sem í samningnum felast og um rétt til breytinga á þeim á samningstímanum.
4. Gildistíma líftryggingarinnar.
5. Hvernig samningnum verði sagt upp.
6. Hvernig iðgjöld skuli greidd, hve lengi og hvernig þeim verði breytt á samningstímanum.
7. Hvernig ágóðahluti er reiknaður og hvernig og hvenær hann verði greiddur.
8. Reglur um endurkaup og frítryggingu og að hvaða marki ábyrgst er að réttur til þess sé fyrir hendi.
9. Sundurliðun iðgjalda á hverja grein líftrygginga (bótategunda) og vegna aukagreina þegar þær eru innifaldar.
10. Um líftryggingar tengdar fjárfestingum: Skilgreiningu á þeim hlutaeiningum sem tengdar eru bótum.
11. Um líftryggingar tengdar fjárfestingum: Hvers eðlis þær eignir eru sem að baki hlutaeiningum eru.
12. Hvernig háttað er rétti vátryggingataka til að hætta við að taka líftrygginguna.
13. Almennar upplýsingar um skatta sem ber að greiða vegna líftryggingarinnar.
Auk líftryggingaskilmála, bæði almennra skilmála og sérskilmála, sem látnir skulu í té, skal vátryggingataki á samningstíma líftryggingar upplýstur skriflega um eftirfarandi:
1. Sérhverjar breytingar varðandi atriði er snerta 1.–2. tölul. 1. mgr.
2. Sérhverjar breytingar varðandi vátryggingaskilmála eða breytingar á lögum er snerta 3.–11. tölul. 1. mgr.
3. Um stöðu inneignar vegna ágóðahluta árlega.
Heimilt er að veita upplýsingar skv. 1. og 2. mgr. á öðru tungumáli en segir í 1. mgr. að fenginni skriflegri beiðni líftryggingataka eða þegar líftryggingataki getur valið um þá löggjöf sem gildir um samninginn.
Hafi samningur um líftryggingu til a.m.k. sex mánaða komist á og sé um einstaklingslíftryggingu að ræða skal félagið tilkynna vátryggingataka skriflega um gildistöku samningsins. Vátryggingataki skal hafa 30 daga frest til að segja vátryggingunni upp frá þeim tíma er honum barst tilkynningin. Skrifleg uppsögn leysir aðila undan öllum skyldum sem síðar hefði leitt af samningnum. Réttaráhrif og skilyrði uppsagnar fara að öðru leyti eftir þeim lögum sem um samninginn gilda.
Almenningi skal heimill aðgangur að upplýsingum um þann grundvöll sem útreikningur líftryggingaskuldar og ágóðahlutar er reistur á.
1)Greinin fellur úr gildi 1. janúar 2006 við gildistöku l. 30/2004, um vátryggingarsamninga, sbr. 147. gr. þeirra laga.
Val á löggjöf um vátryggingasamninga.
61. gr.1) Þegar lög þessi kveða á um að löggjöf ríkis skuli beitt er átt við að réttarreglur þess ríkis gildi, að frátöldum reglum um val á löggjöf um vátryggingasamninga.
Ef ríki er meira en ein svæðisbundin eining sem hver um sig hefur eigin réttarreglur um skuldbindingar samkvæmt samningum skal litið á hverja svæðisbundna einingu sem eitt ríki þegar ákveðið er hvaða löggjöf skuli beitt.
Ófrávíkjanlegum réttarreglum, sem gilda hér á landi, skal beitt enda þótt löggjöf annars ríkis sé að öðru leyti lögð til grundvallar vátryggingasamningnum.
Þegar vátrygging er lögboðin gilda um vátryggingasamninginn ófrávíkjanlegar réttarreglur þess ríkis sem leggur á vátryggingaskylduna.
Ólögfestum alþjóðlegum reglum um val á löggjöf, er eiga við um skuldbindingar samkvæmt samningum, skal beitt því aðeins að þær stríði ekki gegn ákvæðum þessara laga.
1)Greinin fellur úr gildi 1. janúar 2006 við gildistöku l. 30/2004, um vátryggingarsamninga, sbr. 147. gr. þeirra laga.
62. gr.1) Lög þess ríkis þar sem skuldbindingin komst á gilda um vátryggingasamning um líftryggingu. Vátryggingafélag eða sá sem gerir samninginn fyrir þess hönd og vátryggingataki geta þó samið um að löggjöf heimaríkis vátryggingafélagsins gildi um skuldbindinguna, enda heimili löggjöf þess ríkis slíka samninga, sbr. þó 3. og 4. mgr. 61. gr.
Þegar vátryggingataki líftryggingar er einstaklingur og ekki ríkisborgari þess ríkis þar sem hann hefur að jafnaði aðsetur geta aðilar valið lög þess ríkis þar sem ríkisborgararétturinn er.
Þegar vátryggingataki líftryggingar er lögaðili og skuldbindingin komst á hér á landi en hinn líftryggði hefur að jafnaði aðsetur í öðru ríki eða er ríkisborgari þess ríkis geta aðilar einnig valið löggjöf þess ríkis.
Þegar skuldbindingin komst á annars staðar en á Íslandi og lög þess ríkis leyfa víðtækari samningsrétt en skv. 1. og 2. mgr. geta aðilar valið löggjöf að svo miklu leyti sem löggjöf þess ríkis leyfir.
1)Greinin fellur úr gildi 1. janúar 2006 við gildistöku l. 30/2004, um vátryggingarsamninga, sbr. 147. gr. þeirra laga.
63. gr.1) Í öðrum frumtryggingum en líftryggingum gildir um vátryggingasamninginn löggjöf þess ríkis þar sem vátryggingaáhættan er þegar það er einnig ríkið þar sem vátryggingatakinn hefur að jafnaði aðsetur. Vátryggingafélag eða sá sem gerir samninginn fyrir þess hönd og vátryggingataki geta þó samið um að löggjöf heimaríkis vátryggingafélagsins gildi um skuldbindinguna, enda heimili löggjöf þess ríkis slíka samninga, sbr. þó 3. og 4. mgr. 61. gr.
Þegar vátryggingaáhættan er annars staðar en þar sem vátryggingataki hefur að jafnaði aðsetur geta aðilar valið hvort sem er um vátryggingasamninginn, löggjöf þess ríkis þar sem vátryggingaáhættan er eða löggjöf þess ríkis þar sem vátryggingatakinn hefur aðsetur að jafnaði.
Þegar vátryggingataki hefur með höndum atvinnustarfsemi og vátryggingaáhættan vegna hennar er í fleiri en einu ríki og vátryggingasamningurinn nær til fleiri en einnar tegundar áhættu geta aðilar valið um löggjöf þessara ríkja eða löggjöf þess ríkis þar sem vátryggingatakinn hefur aðsetur að jafnaði.
Þegar vátryggingaáhættan er annars staðar en á Íslandi og lög þess ríkis leyfa víðtækari samningsrétt en skv. 2. og 3. mgr. geta aðilar valið löggjöf að svo miklu leyti sem löggjöf þess ríkis leyfir.
Þegar áhættan, sem samningurinn tekur til, takmarkast við tjónsatburði sem eiga sér stað í öðru ríki en því þar sem vátryggingaáhættan er geta aðilar ávallt valið löggjöf þess ríkis þar sem tjónsatburðirnir eiga sér stað.
Þegar áhætta í vátryggingum er stóráhætta, sbr. 8. gr., geta aðilar ávallt valið þá löggjöf sem beita skal um vátryggingasamninginn, sbr. þó 3. og 4. mgr. 61. gr.
Hafi aðilar samnings um aðra vátryggingu en líftryggingu ekki samið um val á löggjöf svo að gilt sé og val á löggjöf leiðir ekki af ákvæðum þessara laga gilda réttarreglur þess ríkis sem best telst eiga við um samninginn samkvæmt þessari grein. Þegar ekkert annað er tekið fram skal lagt til grundvallar að ríkið, þar sem vátryggingaáhættan er, eigi best eigi við um samninginn.
Þegar valið hefur verið skv. 7. mgr. en annað ríki meðal þeirra sem til greina geta komið telst eiga betur við um hluta samningsins má velja löggjöf þess ríkis um þann hluta samningsins þegar sérstakar ástæður mæla með því.
1)Greinin fellur úr gildi 1. janúar 2006 við gildistöku l. 30/2004, um vátryggingarsamninga, sbr. 147. gr. þeirra laga.
VII. kafli. Starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi.
Erlend vátryggingafélög með aðalstöðvar á Evrópsku efnahagssvæði.
64. gr. Erlend vátryggingafélög með aðalstöðvar í aðildarríki sem hlotið hafa starfsleyfi hlutaðeigandi eftirlitsstjórnvalda geta stofnsett útibú hér á landi enda sé þeim heimilt að reka vátryggingastarfsemi í sömu greinaflokkum vátrygginga og vátryggingagreinum í heimaríki sínu. [Svissnesk vátryggingafélög geta stofnsett útibú hér á landi með þeim hætti sem segir í ákvæðum þessa kafla, enda séu sömu kröfur gerðar til þeirra og til vátryggingafélaga með staðfestu í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins og gerður hafi verið samstarfssamningur á milli Fjármálaeftirlitsins og lögbærra svissneskra yfirvalda.] 1)
Óski slíkt félag eftir að stofna útibú hér á landi, sbr. 6. gr., skal [Fjármálaeftirlitið] 2) afla eftirfarandi upplýsinga og gagna hjá eftirlitsstjórnvöldum heimaríkis:
1. Áætlunar um fyrirhugaða starfsemi og skipulag útibúsins hér á landi og staðfestingar þess að félagið hafi starfsleyfi í þeim greinaflokkum og vátryggingagreinum sem fyrirhugað er að reka hér á landi.
2. Heimilisfangs útibúsins þar sem skipaður fulltrúi félagsins hefur aðsetur og gagna er aflað um starfsemina og öll gögn eru send til.
3. Nafns skipaðs fulltrúa útibúsins sem hefur heimild til að skuldbinda félagið gagnvart þriðja aðila og kemur fram fyrir þess hönd gagnvart dómstólum hér á landi.
4. [Staðfestingar á aðild að Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf. og á þátttöku í starfsemi tjónsuppgjörsmiðstöðvar og upplýsingamiðstöðvar samkvæmt umferðarlögum sé sótt um leyfi skv. 10. tölul. 1. mgr. 22. gr. Jafnframt skal upplýst um tjónsuppgjörsfulltrúa í sérhverju aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og Fríverslunarsamtaka Evrópu.] 3)
5. Vottorðs eftirlitsstjórnvalda um að skilyrði um gjaldþol vegna starfsemi félagsins í heild séu uppfyllt og athugasemda vegna fyrirhugaðrar starfsemi ef einhverjar eru.
6. Vátryggingaskilmála lögboðinna vátrygginga sem útibúið hyggst reka hér á landi og þegar við á tæknilegs grundvallar líftrygginga og heilsutrygginga.
Áður en útibú hefur starfsemi hér á landi skal [Fjármálaeftirlitið] 2) upplýsa eftirlitsstjórnvöld heimaríkis um almenn skilyrði ef einhver eru sem um vátryggingastarfsemi útibúsins eiga að gilda hér á landi og um ákvæði er varða almannaheill.
[Fjármálaeftirlitið] 2) skal innan tveggja mánaða frá því að framangreind gögn hafa borist tilkynna að félaginu sé heimilt að setja á stofn útibúið og má það að því búnu hefja starfsemi.
Allar breytingar varðandi liði 2. mgr. að 5. tölul. undanskildum skal félagið tilkynna [Fjármálaeftirlitinu] 2) skriflega með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. [Fjármálaeftirlitið] 2) skal a.m.k. árlega afla vottorðs skv. 5. tölul. um gjaldþol félagsins.
1)L. 76/2002, 54. gr. 2)L. 84/1998, 5. gr. 3)L. 28/2003, 2. gr. Um skyldur vátryggingafélaga sem þegar hafa hlotið starfsleyfi skv. 26. gr., sjá brbákv.
65. gr. Erlend vátryggingafélög með aðalstöðvar í aðildarríki sem hlotið hafa starfsleyfi eftirlitsstjórnvalda geta veitt þjónustu hér á landi án starfsstöðvar enda sé þeim heimilt að reka vátryggingastarfsemi í sömu greinaflokkum og vátryggingagreinum í heimaríki sínu. [Svissnesk vátryggingafélög geta veitt þjónustu án starfsstöðvar hérlendis með þeim hætti sem segir í ákvæðum þessa kafla, enda séu sömu kröfur gerðar til þeirra og til vátryggingafélaga með staðfestu í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins og gerður hafi verið samstarfssamningur á milli Fjármálaeftirlitsins og lögbærra svissneskra yfirvalda.] 1)
Óski félag eftir að veita þjónustu hér á landi án starfsstöðvar skal [Fjármálaeftirlitið] 2) afla eftirfarandi upplýsinga og gagna hjá eftirlitsstjórnvöldum heimaríkis:
1. Vottorðs eftirlitsstjórnvalda um að skilyrði um gjaldþol vegna starfsemi félagsins í heild séu uppfyllt.
2. Skrár yfir þá greinaflokka vátrygginga og vátryggingagreinar sem félagið hefur leyfi til að reka.
3. Skrár yfir þær tegundir áhættu sem félagið hyggst vátryggja hér á landi.
4. [Staðfestingar á aðild að Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf. og á þátttöku í starfsemi tjónsuppgjörsmiðstöðvar og upplýsingamiðstöðvar samkvæmt umferðarlögum sé sótt um leyfi skv. 10. tölul. 1. mgr. 22. gr. Jafnframt skal upplýst um tjónsuppgjörsfulltrúa í sérhverju aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og Fríverslunarsamtaka Evrópu og um nafn og aðsetur fulltrúa hér á landi sem hefur með höndum tjónsuppgjör, sbr. 5. mgr.] 3)
5. Sýnishorna vátryggingaskilmála lögboðinna vátrygginga sem félagið hyggst reka hér á landi og þegar við á tæknilegs grundvallar líftrygginga og heilsutrygginga.
Félagið má veita þjónustu hér á landi þegar [Fjármálaeftirlitið] 2) hefur tilkynnt að öll gögn skv. 2. mgr. hafi borist eftirlitinu.
Allar breytingar varðandi 2.–5. tölul. 2. mgr. skal félagið tilkynna [Fjármálaeftirlitinu] 2) með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. [Fjármálaeftirlitið] 2) skal afla vottorðs skv. 1. tölul. 2. mgr. a.m.k. árlega.
Félag, sem veitir þjónustu án starfsstöðvar skv. 10. tölul. 1. mgr. 22. gr., skal sjá til þess að þeir sem kröfu eiga á bótum vegna tjóns hér á landi séu ekki lakar settir en aðrir vegna þess að starfsstöð er ekki fyrir hendi. Fulltrúi skv. 4. tölul. 2. mgr. skal afla allra nauðsynlegra gagna vegna tjóns og hafa allar heimildir til að greiða bætur og koma fram fyrir hönd félagsins hér á landi. Honum skal einnig skylt að veita lögbærum aðilum hér á landi upplýsingar um hvort lögmæltar ökutækjatryggingar séu fyrir hendi og um gildistíma. Fulltrúinn hefur ekki með höndum önnur verkefni fyrir félagið hér á landi en tilgreind eru í þessari málsgrein.
1)L. 76/2002, 55. gr. 2)L. 84/1998, 5. gr. 3)L. 28/2003, 3. gr. Um skyldur vátryggingafélaga sem þegar hafa hlotið starfsleyfi skv. 26. gr., sjá brbákv.
66. gr. Eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja eða fulltrúum sem þau tilnefna er heimilt, eftir að hafa tilkynnt það [Fjármálaeftirlitinu], 1) að gera þær vettvangskannanir hjá vátryggingafélögum sem þau hafa veitt starfsleyfi og hér reka starfsemi og sem nauðsynlegar eru til þess að unnt sé að framfylgja lögmæltu eftirliti með starfsemi útibúa aðildarríkja hér á landi. [Fjármálaeftirlitið] 1) hefur heimild til að taka þátt í þessum könnunum. Kostnaður vegna þessa greiðist af eftirlitsstjórnvöldum heimaríkis.
1)L. 84/1998, 5. gr.
67. gr. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal veita eftirlitsstjórnvöldum hlutaðeigandi heimaríkja upplýsingar um starfsemi útibúa hér á landi til að þau geti lagt heildarmat á gjaldþol vátryggingafélaga sem hér starfa og eru undir eftirliti þeirra.
[Fjármálaeftirlitið] 1) getur gripið til allra ráðstafana sem nauðsynlegar eru til að tryggja hagsmuni vátryggingataka og vátryggðra uppfylli félagið ekki tilskilin skilyrði um gjaldþol eða vátryggingaskuldina. Það skal, þegar þörf krefur, gera ráðstafanir til að banna félaginu frjálsa ráðstöfun eigna sem er að finna hér á landi eða takmarka í samræmi við ákvæði gildandi laga þar að lútandi að höfðu samráði við eftirlitsstjórnvöld heimaríkis ef kostur er.
[Fjármálaeftirlitið] 1) getur bannað erlendu vátryggingafélagi sem hér rekur útibú eða veitir þjónustu að starfa áfram ef það með grófum hætti og ítrekað brýtur ákvæði laga þessara eða reglugerða settra samkvæmt þeim eða ákvæði annarra laga sem eiga við um fjármálastarfsemi og ekki hefur verið unnt með kröfum eða aðgerðum samkvæmt þessum lögum að fá úr því bætt sem úrskeiðis hefur farið.
1)L. 84/1998, 5. gr.
68. gr. Óski vátryggingafélag, sem hér rekur útibú eða veitir þjónustu, eftir því að flytja vátryggingastofn sinn að nokkru eða öllu leyti til annars félags sem hefur starfsstöð á Evrópsku efnahagssvæði geta eftirlitsstjórnvöld heimaríkis hins fyrrnefnda heimilað flutning stofnsins að fenginni staðfestingu eftirlitsstjórnvalda heimaríkis hins síðarnefnda um að tilskildar kröfur um gjaldþol séu uppfylltar að lokinni yfirtöku stofnsins og að höfðu samráði við [Fjármálaeftirlitið]. 1) Þegar vátryggingaáhættan er hér á landi þarf ávallt samþykki [Fjármálaeftirlitsins] 1) til að flutningurinn geti átt sér stað. Ákvæði 2. mgr. 86. gr. gilda um tilkynningar í Lögbirtingablað vegna vátryggingastofns sem fluttur er þegar vátryggingaáhættan er hér. Um réttindi og skyldur vátryggingataka, vátryggðra og annarra samkvæmt vátryggingasamningum fer skv. 4. mgr. 86. gr.
[Fjármálaeftirlitið] 1) skal láta í té álit sitt innan þriggja mánaða frá því að beiðni um flutninginn barst, ella skal litið svo á að afstaða þess til flutningsins sé jákvæð.
1)L. 84/1998, 5. gr.
69. gr. Afturkalli eftirlitsstjórnvöld heimaríkis starfsleyfi félags sem hefur útibú eða veitir þjónustu hér á landi skal [Fjármálaeftirlitið] 1) að fenginni tilkynningu þar um gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að félagið stofni til frekari vátryggingasamninga hér á landi. Skal haft samstarf við hlutaðeigandi eftirlitsstjórnvöld í því skyni að tryggja hagsmuni vátryggingataka og vátryggðra svo sem kostur er og eiga ákvæði 67. gr. við um takmörkun eða bann á frjálsri ráðstöfun eigna þegar nauðsyn krefur.
1)L. 84/1998, 5. gr.
70. gr. Vátryggingafélag, sem hér rekur útibú eða veitir þjónustu, skal tilkynna til vátryggingafélagaskrár allar breytingar á þeim atriðum sem kveðið er á um í 22. gr. og við geta átt. Sé gerð ný rekstraráætlun skv. 24. gr. skal hún einnig send.
[Fjármálaeftirlitið] 1) getur gert kröfu um að öll gögn, sem ber að senda eftirlitinu vegna starfseminnar hér á landi, séu á íslensku í þýðingu löggilts skjalaþýðanda.
1)L. 84/1998, 5. gr.
Erlend vátryggingafélög hér á landi með aðalstöðvar utan Evrópsks efnahagssvæðis.
71. gr. Erlend vátryggingafélög með aðalstöðvar utan Evrópsks efnahagssvæðis sem leyfi hafa til að reka vátryggingastarfsemi í heimalandi sínu geta fengið leyfi til að reka starfsemi í útibúi hér á landi í samræmi við lög þessi enda hafi íslensk vátryggingafélög ekki lakari rétt í heimalandi þeirra.
Áður en vátryggingafélög með aðalstöðvar utan svæðisins fá starfsleyfi hér á landi skulu aðilar að samningnum um Evrópskt efnahagssvæði hafa samráð um leyfisveitinguna.
Félagið skal skráð hér á landi og það skal tilnefna einn aðalumboðsmann sem [Fjármálaeftirlitið] 1) samþykkir er komi fram fyrir þess hönd í málefnum er varða starfsemina og hafi heimild til að skuldbinda félagið vegna starfsemi þess hér á landi. [Hann skal vera búsettur hér á landi, vera lögráða, hafa óflekkað mannorð og má ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaður gjaldþrota eða í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld, svo og löggjöf um vátryggingastarfsemi.] 2)
Félagið skal hafa varnarþing hér á landi að því er varðar starfsemi þess hér og má lögsækja það fyrir dómstólum á Íslandi til fullnustu á kröfum sem stofnast hafa vegna starfseminnar.
[Bókhaldsgögn og önnur gögn viðvíkjandi starfsemi útibúsins skulu varðveitt í útibúinu sjálfu.
Ákveða má með samningum við eitt eða fleiri þriðju ríki að beita öðrum ákvæðum um eftirlit með starfsemi útibúsins en segir í lögum þessum að því tilskildu að hinum vátryggðu sé tryggð nægileg og sambærileg vernd. Ekki má í slíkum samningum veita útibúum félaga með aðalstöðvar utan Evrópska efnahagssvæðisins rýmri skilyrði en útibúum vátryggingafélaga með aðalstöðvar þar. Samráð skal haft við önnur aðildarríki um samninga af þessu tagi og þau upplýst um þá áður en þeir eru gerðir.] 2)
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 63/1997, 16. gr.
72. gr. Umsókn um starfsleyfi og um skráningu í vátryggingafélagaskrá skal send [Fjármálaeftirlitinu] 1) og gögn samkvæmt 21.–24. gr. skulu fylgja umsókn eftir því sem við getur átt og nauðsynleg eru til þess að það geti metið umsóknina. Sýnishorn vátryggingaskilmála og iðgjaldagrundvallar í þeim greinum sem félagið hyggst reka hér á landi skulu einnig fylgja umsókn.
[Félagið skal uppfylla skilyrði III. kafla um gjaldþol er miðast við starfsemi þess hér eftir því sem við á, þó þannig að gjaldþol þess nemi aldrei minna en helmingi viðeigandi fjárhæðar skv. 33. gr. Skal félagið hafa hér á landi fjármuni er nema helmingi fjárhæðarinnar skv. 33. gr. eða þriðjungi lágmarksgjaldþols, hvort sem hærra er, en fjármunir þar umfram upp að lágmarksgjaldþoli skulu varðveittir í aðildarríki. Sameiginlegt eftirlit eins aðildarríkis með gjaldþoli fyrir öll útibú félagsins á Evrópska efnahagssvæðinu getur komið í stað þeirrar aðferðar sem lýst er í þessari málsgrein og skal setja um það nánari ákvæði í reglugerð. Gilda þá ákvæði 66. gr. um eftirlit með gjaldþoli útibúanna eftir því sem við á.
Fjárhæð samsvarandi fjórðungi þess lágmarks sem krafist er í 33. gr. skal lögð fram sem geymslufé í upphafi og varðveitt á stað sem [Fjármálaeftirlitið] 1) samþykkir. Geymsluféð skal einungis notað til að tryggja að félagið geti staðið við skuldbindingar sínar vegna gerðra vátryggingasamninga hér á landi. Einstakir vátryggðir geta ekki gert kröfu um fullnustu greiðslu nema að því marki sem það að mati [Fjármálaeftirlitsins] 1) skerðir ekki rétt annarra vátryggðra til fullnustu á vátryggingaskuldbindingum félagsins.] 2)
Félagið skal ávaxta hér á landi fjármuni er samsvara vátryggingaskuld þess vegna starfseminnar hér eins og þær eru samkvæmt útreiknings- og matsreglum er gilda hér á landi. Enn fremur skal fullnægt skilyrðum laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.
[Fjármálaeftirlitið] 1) skal upplýsa aðildarríki um það, áður en afstaða er tekin til umsóknarinnar, þegar dótturfélag móðurfélags með aðalstöðvar í þriðja ríki sækir um starfsleyfi hér á landi og ef aðilar öðlast, beint eða óbeint, hlut í vátryggingafélagi með starfsleyfi hér á landi þannig að hið síðarnefnda verði dótturfélag hins fyrrnefnda.
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 63/1997, 17. gr.
73. gr. Aðalumboðsmaður skal senda [Fjármálaeftirlitinu] 1) ársreikning hins erlenda félags, svo og ársreikning vegna starfseminnar hér á landi, eigi síðar en mánuði eftir að þeir hafa verið samþykktir ásamt ársskýrslu með undirritun stjórnar og áritun endurskoðanda. Ársreikningur vegna starfseminnar hér á landi skal berast eigi síðar en fjórum mánuðum eftir lok hvers reikningsárs. Tilskilin gögn samkvæmt reglum sem [Fjármálaeftirlitið] 1) setur skulu fylgja, þar á meðal gögn skv. 34. og 35. gr. um þær eignir sem koma eiga á móti vátryggingaskuldinni. [Ákvæði IV. kafla gilda eftir því sem við getur átt um útibúið.] 2)
Aðalumboðsmaður skal án tafar tilkynna [Fjármálaeftirlitinu] 1) skriflega geri eftirlitsstjórnvöld í heimalandi félagsins athugasemd við starfsemi þess, hafi greiðslustöðvun verið ákveðin, ákvörðun verið tekin um að slíta félaginu eða bú þess tekið til gjaldþrotaskipta.
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 63/1997, 18. gr.
74. gr. Brjóti félagið lög og reglugerðir um vátryggingastarfsemi eða vanræki skyldur sínar samkvæmt þeim þannig að hagsmunum vátryggingataka og vátryggðra sé stefnt í hættu, skal [Fjármálaeftirlitið] 1) veita félaginu tiltekinn frest til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til úrbóta. Hafi fullnægjandi ráðstafanir ekki verið gerðar innan þess frests og telji [Fjármálaeftirlitið] 1) að hagsmunir vátryggingataka og vátryggðra séu í hættu getur eftirlitið útnefnt nýjan aðalumboðsmann til að ljúka viðskiptum og uppgjöri vegna starfseminnar hér á landi. Hefur hann í því skyni leyfi til ráðstöfunar á eignum félagsins hér á landi að því marki er [Fjármálaeftirlitið] 1) heimilar.
[Ákvæði X. og XI. kafla gilda eftir því sem við getur átt um útibúið.] 2)
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 63/1997, 19. gr.
75. gr. Ráðherra getur að fenginni tillögu [Fjármálaeftirlitsins] 1) afturkallað starfsleyfi félagsins uppfylli félagið ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfinu eða vanræki gróflega skyldur sínar samkvæmt lögum þessum.
Þegar starfsleyfi félags er afturkallað tekur [Fjármálaeftirlitið] 1) ákvörðun um hvort þess skuli freistað að yfirfæra vátryggingastofninn til eins eða fleiri vátryggingafélaga sem reka vátryggingastarfsemi hér á landi eða hvort félagið skuli á annan hátt reyna að ljúka skuldbindingum sínum vegna vátryggingasamninga sem gerðir hafa verið. Þegar rekin er líftryggingastarfsemi getur [Fjármálaeftirlitið] 1) ákveðið að líftryggingastofninum verði komið undir sérstaka stjórn, sbr. 94. gr.
Við afturköllun á starfsleyfi félags getur [Fjármálaeftirlitið] 1) takmarkað eða bannað félaginu yfirráð yfir fjármunum sínum og eignum.
1)L. 84/1998, 5. gr.
76. gr. Félagið skal máð úr vátryggingafélagaskrá missi það starfsleyfi skv. 75. gr., enda sé viðskiptum þess og uppgjöri skuldbindinga hér á landi að fullu lokið.
Tilkynni félag að það óski eftir að hætta starfsemi hér á landi og að starfsstöð þess verði máð úr vátryggingafélagaskrá skal það því aðeins gert að [Fjármálaeftirlitið] 1) álíti að starfsstöðin þurfi ekki að starfa áfram vegna skuldbindinga sem á henni hvíla. Sama gildir sé enginn aðalumboðsmaður félagsins hér á landi og enginn hafi verið útnefndur innan frests sem [Fjármálaeftirlitið] 1) hefur sett. Getur eftirlitið þá útnefnt aðalumboðsmann í samræmi við ákvæði 74. gr.
Leysa má geymslufé sem lagt er til hliðar skv. 72. gr. þá fyrst er starfsleyfi félagsins hefur verið afturkallað og félagið getur sannað að staðið hafi verið við allar skuldbindingar félagsins hér á landi, eða að nógu há trygging fyrir skuldbindingum hafi að mati [Fjármálaeftirlitsins] 1) verið lögð fram.
1)L. 84/1998, 5. gr.
VIII. kafli. Starfsemi vátryggingafélaga erlendis sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi.
77. gr. Vátryggingafélag, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi og óskar eftir að starfrækja útibú í öðru aðildarríki Evrópsks efnahagssvæðis [eða aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu], 1) skal tilkynna það [Fjármálaeftirlitinu] 2) og leggja fram eftirfarandi gögn:
1. Heiti og heimilisfang útibúsins þar sem skipaður fulltrúi félagsins hefur aðsetur.
2. Nafn skipaðs fulltrúa útibúsins sem hefur heimild til að skuldbinda félagið gagnvart þriðja aðila og koma fram á þess vegum gagnvart dómstólum í aðildarríkinu.
3. Áætlun um fyrirhugaða starfsemi og skipulag útibúsins.
4. Skrá yfir þá greinaflokka vátrygginga og vátryggingagreinar sem félagið hyggst reka.
5. Yfirlýsingu um að félagið sé aðili að landsskrifstofu og ef við á að sérstökum ábyrgðarsjóði í viðkomandi aðildarríki þegar fyrirhugað er að reka starfsemi skv. 10. tölul. í 1. mgr. 22. gr.
Hafi [Fjármálaeftirlitið] 2) ekki athugasemdir fram að færa varðandi fyrirhugaða starfsemi, fjárhagsstöðu eða hæfi og faglega kunnáttu stjórnenda eða hins skipaða fulltrúa útibúsins skal [Fjármálaeftirlitið], 2) innan þriggja mánaða frá því að öll framangreind gögn hafa borist, senda eftirlitsstjórnvöldum gistiríkis gögnin ásamt vottorði um að félagið uppfylli skilyrði um gjaldþol skv. 29.–33. gr. eftir því sem við á. Jafnframt skal félaginu send tilkynning um að umrædd gögn hafi verið send.
[Fjármálaeftirlitið] 2) getur látið hjá líða að senda gögn skv. 1. og 2. mgr. hafi það ástæðu til að draga í efa að rekstrarleg uppbygging eða fjárhagsstaða sé viðhlítandi sem undirstaða fyrirhugaðrar starfsemi. Tilkynning um að framangreind gögn verði ekki send eftirlitsstjórnvöldum viðkomandi aðildarríkis skal send félaginu innan þriggja mánaða og ástæður þess tilgreindar skriflega.
Félagið má stofnsetja útibúið og hefja starfsemi þegar orðsending hefur borist frá eftirlitsstjórnvöldum gistiríkis eða ef engin slík orðsending hefur borist tveimur mánuðum eftir að öll gögn skv. 1. og 2. mgr. hafa borist til þeirra.
Allar breytingar varðandi atriði 1. mgr. skal félagið tilkynna [Fjármálaeftirlitinu] 2) skriflega með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara.
1)L. 76/2002, 56. gr. 2)L. 84/1998, 5. gr.
78. gr. Óski vátryggingafélag, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, eftir því að veita þjónustu í öðru aðildarríki [Evrópsks efnahagssvæðis eða aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu] 1) án þess að hafa þar starfsstöð skal félagið tilkynna það [Fjármálaeftirlitinu] 2) ásamt upplýsingum um í hvaða greinaflokkum vátrygginga eða vátryggingagreinum fyrirhugað er að veita þjónustu. [Fjármálaeftirlitið] 2) skal innan mánaðar senda eftirlitsstjórnvöldum hlutaðeigandi aðildarríkis eftirtalin gögn og skal félaginu jafnframt tilkynnt að upplýsingarnar hafi verið sendar:
1. Vottorð um að gjaldþol vegna starfsemi félagsins í heild sé fullnægjandi.
2. Skrá yfir þá greinaflokka vátrygginga og vátryggingagreinar sem félagið hefur leyfi til að reka.
3. Skrá yfir greinaflokka og vátryggingagreinar sem félagið hyggst reka í aðildarríkinu.
4. Yfirlýsingu um að félagið sé aðili að landsskrifstofu og ef við á að sérstökum ábyrgðarsjóði í viðkomandi aðildarríki þegar fyrirhugað er að veita þjónustu skv. 10. tölul. 1. mgr. 22. gr. og nafn og heimilisfang sérstaks fulltrúa sem annast tjónsuppgjör í þeirri grein.
Félagið má veita þjónustu frá þeim tíma er það hefur fengið tilkynningu um að upplýsingar skv. 1. mgr. hafi verið sendar og móttaka þeirra hefur verið staðfest.
Sendi [Fjármálaeftirlitið] 2) ekki framangreindar upplýsingar á tilskildum tíma skal það greina félaginu frá ástæðum þess innan sömu tímamarka.
Allar breytingar skal félagið tilkynna [Fjármálaeftirlitinu] 2) skriflega með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara.
1)L. 76/2002, 57. gr. 2)L. 84/1998, 5. gr.
79. gr. Hafi vátryggingafélag, sem hefur fengið starfsleyfi hér á landi, í hyggju að hefja starfsemi í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins skal það tilkynnt [Fjármálaeftirlitinu] 1) fyrir fram ásamt lýsingu á fyrirhugaðri starfsemi og öðrum upplýsingum sem [Fjármálaeftirlitið] 1) óskar eftir og telur nauðsynlegar.
Ákvæði 77. og 78. gr. gilda einnig um vátryggingafélög með aðalstöðvar utan hins Evrópska efnahagssvæðis sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi til að reka útibú en hafa í hyggju að hefja starfsemi í aðildarríki. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur þó tekið sér lengri fresti til afgreiðslu mála en þar eru tilgreindir. Skal það hafa samráð við eftirlitsstjórnvöld aðildarríkja áður en tekin er afstaða til umsóknarinnar.
1)L. 84/1998, 5. gr.
IX. kafli. …1)
1)L. 32/2005, 65. gr.
X. kafli. Yfirfærsla vátryggingastofna. Samruni félaga.
Yfirfærsla.
86. gr. Óski vátryggingafélag, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, eftir að flytja vátryggingastofn sinn að nokkru eða öllu leyti til annars félags sem einnig hefur fengið starfsleyfi hér á landi skulu bæði félögin senda [Fjármálaeftirlitinu] 1) umsókn um færsluna ásamt drögum að samkomulagi milli félaganna og þeim gögnum sem eftirlitið telur nauðsynleg. [Fjármálaeftirlitið] 1) kannar umsóknina með hliðsjón af hag beggja félaganna og hvort ástæða sé til að ætla að færslan geti skaðað vátryggingataka og vátryggða hjá félögunum.
Telji [Fjármálaeftirlitið] 1) að synja beri um leyfi til yfirfærslunnar skal það án tafar tilkynnt félögunum. Að öðrum kosti, og sé um að ræða vátryggingaáhættu hér á landi, sbr. 8. gr., skal [Fjármálaeftirlitið] 1) birta tilkynningu í Lögbirtingablaði vegna yfirfærslubeiðninnar og óska eftir skriflegum athugasemdum vátryggingataka og vátryggðra innan tiltekins frests sem eigi má vera skemmri en einn mánuður. Félagið skal auglýsa fyrirhugaða yfirfærslu og hvenær tilkynningin var birt í Lögbirtingablaði.
[Fjármálaeftirlitið] 1) veitir leyfi til færslunnar að liðnum fresti skv. 2. mgr. telji það, að teknu tilliti til þeirra athugasemda sem fram hafa komið, að orðið skuli við yfirfærslubeiðninni.
Réttindi og skyldur vátryggingataka, vátryggðra og annarra samkvæmt vátryggingasamningum halda sjálfkrafa gildi sínu við flutninginn. Vátryggingatakar geta sagt upp vátryggingasamningi sínum við félagið frá þeim degi er flutningur stofnsins á sér stað tilkynni þeir uppsögn skriflega innan mánaðar frá flutningsdegi.
1)L. 84/1998, 5. gr.
87. gr. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur heimilað vátryggingafélagi, sem hér hefur fengið starfsleyfi og óskar eftir, að flytja vátryggingastofn sinn hér að nokkru eða öllu leyti til annars félags með starfsstöð á Evrópsku efnahagssvæði staðfesti eftirlitsstjórnvöld heimaríkis þess félags sem tekur við stofninum að tilskildar kröfur um gjaldþol séu uppfylltar að teknu tilliti til hins yfirfærða stofns. Skilyrði er ávallt að eftirlitsstjórnvöld í því aðildarríki þar sem vátryggingaáhættan er, sbr. 8. gr., veiti samþykki sitt fyrir yfirfærslunni. Ákvæði 86. gr. gilda um yfirfærsluna.
[Fjármálaeftirlitið] 1) getur einnig heimilað útibúi vátryggingafélags með aðalstöðvar utan hins Evrópska efnahagssvæðis, sem hefur starfsleyfi hér á landi, að flytja vátryggingastofn sinn hér að nokkru eða öllu leyti til annars vátryggingafélags og gilda þá einnig ákvæði 86. gr. um yfirfærsluna.
Um yfirfærslu vegna stofna vátryggingafélaga með aðalstöðvar á Evrópsku efnahagssvæði, sem hér reka útibú eða veita þjónustu, fer samkvæmt ákvæðum 68. gr.
1)L. 84/1998, 5. gr.
Samruni.
88. gr. Óski vátryggingafélög, sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi, eftir því að samruni eigi sér stað með yfirtöku eins eða fleiri vátryggingafélaga með slitum þeirra, þannig að allar eignir og skuldir verði yfirfærðar að öllu leyti án þess að til skiptameðferðar komi, skulu öll félögin senda [Fjármálaeftirlitinu] 1) umsókn ásamt drögum að samkomulagi milli félaga um samrunann og með þeim gögnum sem eftirlitið telur nauðsynleg. Sama gildir óski tvö eða fleiri vátryggingafélög eftir því að samruni með stofnun nýs vátryggingafélags eigi sér stað með slitum án skiptameðferðar þannig að allar eignir og skuldir verði yfirfærðar til hins nýja félags. Skilyrði samruna er að leyfi til yfirfærslu vátryggingastofna sé veitt, sbr. 86. gr.
Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við um félög skv. 11. gr. sem óska eftir að yfirfæra eignir og skuldir að öllu leyti án skiptameðferðar til vátryggingafélags.
Heimila má að samruni með yfirtöku eða með stofnun nýs félags geti farið fram þótt eitt eða fleiri félaga sem yfirtekin eru, eða lögð verða niður, gangist undir skiptameðferð, að því tilskildu að sá kostur sé bundinn við félög sem hafa ekki enn hafist handa við að úthluta eignum sínum til eigenda.
1)L. 84/1998, 5. gr.
89. gr. Í drögum að samkomulagi um samruna, sem fylgja skulu umsókn, skal m.a. koma fram hvernig greiðslum er háttað fyrir hluti í félögum sem hætta vátryggingastarfsemi, hvenær hlutir sem kunna að vera notaðir sem greiðsla veiti rétt til arðs og annarra réttinda, hvaða réttindi eigendur hluta í félagi sem hættir starfsemi öðlast í því félagi sem tekur við eignum og skuldum, svo og aðrar ráðstafanir sem kunna að hafa í för með sér breytingar á réttindum eigenda. Einnig skal koma fram hvort stjórnarmenn, fulltrúaráðsmenn eða framkvæmdastjórar skuli njóta sérstakra hlunninda og þá hverra.
Lögð skulu fram staðfest reikningsuppgjör sem sýna eignir og skuldir hvers félags á þeim degi þegar samruni er fyrirhugaður ásamt sameiginlegri upphafsstöðu eftir samrunann og má uppgjörið ekki vera meira en sex mánaða gamalt þegar ákvörðun er tekin um að samruni eigi sér stað. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur þó heimilað að miðað sé við ársuppgjör félaganna í lok síðasta reikningsárs.
Eigi samruni sér stað með stofnun nýs félags skulu drög að nýjum samþykktum þess einnig lögð fram. Sama gildir verði gerðar breytingar á samþykktum félaga, aðrar en breytingar á nafni.
[Fjármálaeftirlitið] 1) veitir leyfi til samrunans. Starfsleyfi félags eða félaga, sem hætta vátryggingastarfsemi, skulu afturkölluð frá þeim degi er [Fjármálaeftirlitið] 1) tiltekur og félagið eða félögin máð úr vátryggingafélagaskrá.
1)L. 84/1998, 5. gr.
XI. kafli. [Sérstakar ráðstafanir. Endurskipulagning fjárhags. Brottfall starfsleyfis. Félagsslit.]1)
1)L. 34/2003, 7. gr.
Sérstakar ráðstafanir.
90. gr. [Uppfylli vátryggingafélag, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, ekki lágmarkskröfur um gjaldþol við ársuppgjör eða á öðrum tíma skal félagið þegar í stað gera áætlun um hvenær og á hvern hátt markinu verði náð og skal áætlunin lögð fyrir Fjármálaeftirlitið sem ákveður hvort þær ráðstafanir sem gera á teljist fullnægjandi. Slík áætlun skal ekki taka til skemmri tíma en næstu þriggja reikningsára og innihalda m.a.:
1. Áætlaðan rekstrarkostnað, m.a. við núverandi yfirstjórn, og umboðslaun.
2. Sundurliðaða áætlun um tekjur og gjöld í frumtryggingum, endurtryggingum sem félagið kann að taka að sér og vegna endurtryggingarverndar þess.
3. Áætlaðan efnahagsreikning.
4. Greinargerð um fjármagn sem ætlað er að mæta vátryggingaskuldbindingum og lágmarksgjaldþoli.
5. Ráðgerða endurtryggingarvernd.
Meðan slík áætlun er í gildi skal hvorki gefa út gjaldþolsvottorð vegna ráðagerða um starfsemi erlendis, sbr. 1. mgr. 77. gr. og 1. mgr. 78. gr., né heimila félaginu að veita viðtöku vátryggingarstofni, sbr. 1. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 86. gr.
Sé gjaldþol vátryggingafélags minna en þriðjungur þess sem tilskilið er eða minna en sú lágmarksfjárhæð sem tilgreind er fyrir þá starfsemi sem félagið rekur, sbr. 33. gr., hvort sem hærra er, skal áætlun skv. 1. mgr. miða að því að rétta við fjárhag félagsins á skömmum tíma og skal Fjármálaeftirlitið setja félaginu ákveðinn frest í því efni.
Sé vátryggingaskuld félags vanmetin við ársuppgjör eða á öðrum tíma að mati Fjármálaeftirlitsins eða hafi fjárhagsstaða þess með öðrum hætti versnað þannig að tilskildar kröfur um gjaldþol eru ekki uppfylltar skal með sama hætti grípa til viðeigandi ráðstafana.
Sé vátryggingaskuld vanmetin skal vanmatið koma til lækkunar gjaldþoli.
Sé aðlagað gjaldþol vátryggingafélags eða móðurfélags þess minna en lágmarksgjaldþol skv. 30., 31. og 33. gr. að viðbættri hlutdeild í lágmarksgjaldþoli allra hlutdeildar- og dótturfélaga sem eru vátryggingafélög skal vátryggingafélagið þegar í stað gera áætlun um hvenær og hvernig markinu verði náð og skal áætlunin lögð fyrir Fjármálaeftirlitið sem ákveður hvort hún telst fullnægjandi. Lágmarksgjaldþol hlutdeildar- og dótturfélaga skal reiknað samkvæmt tilvísuðum greinum, jafnvel þótt aðrar reglur gildi í heimaríki þeirra.
Telji Fjármálaeftirlitið fjárhag vátryggingafélags vera með þeim hætti að réttindum vátryggingartaka sé stefnt í hættu getur það krafist áætlunar eins og gjaldþol væri ófullnægjandi, sbr. 1. mgr.
Fjármálaeftirlitið getur takmarkað eða bannað ráðstöfun vátryggingafélags, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, á fjármunum sínum og eignum sé það liður í aðgerðum til að koma fjárhag þess á réttan kjöl, sbr. 1.–5. mgr. Ákvörðun þessa efnis skal tilkynna eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja eftir því sem við á.
Starfi félagið eftir áætlun skv. 24. gr. eða skv. 1. mgr. þessarar greinar og hafi fjárhagsstaða félagsins versnað miðað við þá áætlun skal Fjármálaeftirlitið taka ákvörðun um nauðsynlegar ráðstafanir og gera kröfu um að ný rekstraráætlun til þriggja ára verði lögð fram ef þörf er á.] 1)
1)L. 37/2003, 7. gr. Ákvæði greinarinnar koma til framkvæmda við eftirlit sem byggist á ársreikningum vegna reikningsársins 2004, sbr. 9. gr. s.l.
[Endurskipulagning fjárhags.]1)
1)L. 34/2003, 2. gr.
[90. gr. A. Með endurskipulagningu fjárhags vátryggingafélags er átt við ráðstöfun sem felur í sér íhlutun dómstóls og er ætlað að tryggja eða endurreisa fjárhagslega stöðu vátryggingafélags og hafa áhrif á réttindi aðila annarra en vátryggingafélagsins sjálfs. Til slíkra ráðstafana teljast greiðslustöðvun og nauðasamningar.
Lög um gjaldþrotaskipti o. fl., nr. 21/1991, gilda um heimild vátryggingafélags til greiðslustöðvunar og til að leita nauðasamnings enda sé ekki á annan veg mælt í lögum þessum.
Dómstóll skal sjá til þess að Fjármálaeftirlitinu verði tilkynnt þegar í stað um framkomna beiðni vátryggingafélags um heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna öðrum eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja ef vátryggingafélagi er veitt heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings.
Úrskurður dómstóls í öðru aðildarríki um endurskipulagningu fjárhags vátryggingafélags með aðalstöðvar í því aðildarríki tekur til útibúa vátryggingafélagsins hér á landi.
Tilkynna skal lánardrottnum úrskurð um heimild vátryggingafélags til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings skv. 13. og 44. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.
Í tilkynningu skv. 5 mgr. til vátryggingataka, vátryggðra og annarra sem eiga kröfu á vátryggingafélag vegna vátryggingasamninga og hafa lögheimili, fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki skal sérstaklega tekið fram hver áhrif úrskurður um heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings hafi á vátryggingasamning og upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra. Skal tilkynningin vera á tungumáli þess ríkis þar sem viðkomandi á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar.
Lánardrottni sem á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki er heimilt að lýsa kröfu skv. 45. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. á tungumáli þess ríkis. Fyrirsögn kröfulýsingar skal þó vera á íslensku.
Um heimild útibús vátryggingafélags með aðalstöðvar utan aðildarríkja til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings fer eftir íslenskum lögum. Hafi félagið útibú í fleiri en einu aðildarríki skal litið á hvert útibú sem sjálfstæðan lögaðila. Eftirlitsstjórnvöld skulu þó samræma aðgerðir og það sama á við um aðstoðarmenn skuldara við greiðslustöðvun og umsjónarmenn með nauðasamningum.] 1)
1)L. 34/2003, 2. gr.
[90. gr. B. Íslensk lög skulu gilda um endurskipulagningu fjárhags vátryggingafélags nema á annan veg sé fyrir mælt í þessari grein.
Vinnusamningur skal fara eftir lögum þess ríkis sem um vinnusamninginn og vinnusambandið gilda.
Samningur um notkun eða kaup fasteignar skal fara eftir lögum þess ríkis þar sem fasteignin er staðsett.
Réttur vátryggingafélags vegna fasteignar, skips eða flugvélar skal fara eftir lögum þess ríkis þar sem opinber skráning hefur farið fram.
Heimild vátryggingafélags til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings skal ekki hafa áhrif á rétt veðhafa vegna eignarréttinda sem eru í öðru aðildarríki þegar heimildin er veitt. Íslensk lög gilda þó um réttindi og skyldur aðila sem lúta opinberu eftirliti hérlendis.
Hafi vátryggingafélag keypt eign með eignarréttarfyrirvara hefur heimild vátryggingafélagsins til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings ekki áhrif á réttindi seljanda sem byggjast á fyrirvaranum sé eign í öðru aðildarríki. Heimild vátryggingafélagsins til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings hefur ekki áhrif á sölu vátryggingafélags á eign hafi afhending þegar farið fram og eignin verið í öðru aðildarríki þegar heimildin var veitt.
Þrátt fyrir ákvæði 5. og 6. mgr. er heimilt að beita ákvæðum III. kafla laga um samningsgerð, umboð og ógilda gerninga, nr. 7/1936, um ógilda löggerninga, nema lög gistiríkis heimili ekki slíkt.
Hafi vátryggingafélag eftir að heimild hefur verið fengin til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings selt fasteign, skip eða flugvél sem háð er opinberri skráningu eða framseljanleg verðbréf eða önnur verðbréf skráð í verðbréfamiðstöð skulu lög þess ríkis þar sem eign er eða þar sem hin opinbera skráning hefur farið fram gilda um lögmæti löggerningsins.
Um áhrif heimildar vátryggingafélags til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings á málshöfðun vegna eignar eða annarra réttinda sem vátryggingafélag hefur látið af hendi fer eftir lögum þess aðildarríkis þar sem málið var höfðað.
Úrræði þau sem aðstoðarmaður skuldara við greiðslustöðvun og umsjónarmaður með nauðasamningi geta beitt samkvæmt íslenskum lögum hafa þeir jafnframt í öðrum aðildarríkjum. Við beitingu slíkra úrræða í öðru aðildarríki skulu þeir þó fara eftir lögum þess aðildarríkis eftir því sem við á.] 1)
1)L. 34/2003, 2. gr.
Brottfall starfsleyfis.
91. gr. Sinni vátryggingafélag ítrekað ekki tilmælum [Fjármálaeftirlitsins] 1) um ráðstafanir til að meta á fullnægjandi hátt vátryggingaskuld sína eða að tryggja örugga ávöxtun fjármuna sem ætlað er að mæta henni, brjóti lög og reglugerðir um vátryggingastarfsemi eða samþykktir sem það starfar eftir skal [Fjármálaeftirlitið] 1) setja félaginu ákveðinn frest til að gera nauðsynlegar úrbætur.
Hafi fullnægjandi ráðstafanir ekki verið gerðar innan settra tímamarka getur [Fjármálaeftirlitið] 1) lagt til við ráðherra að starfsleyfi félagsins verði afturkallað. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur þó veitt frekari frest telji það líkur benda til að þær ráðstafanir, sem félagið hefur þegar gert, muni innan skamms tíma hafa í för með sér tilskildar úrbætur.
Einnig má afturkalla starfsleyfi nýti félag leyfið ekki innan tólf mánaða frá útgáfu þess eða starfsemin hafi legið niðri í sex mánuði eða meira.
1)L. 84/1998, 5. gr.
92. gr. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal leggja til við ráðherra að starfsleyfi vátryggingafélags verði afturkallað hafi félagið ekki gert nauðsynlegar ráðstafanir til að rétta við fjárhag sinn, uppfylli félagið ekki lengur skilyrði starfsleyfis eða vanræki gróflega skyldur sínar samkvæmt lögum og reglugerðum um vátryggingastarfsemi þannig að hagsmunum vátryggingataka og vátryggðra sé stefnt í hættu.
Afturköllun starfsleyfis skal ávallt studd ítarlegum rökum og tilkynnt hlutaðeigandi félagi skriflega.
Afturkalli ráðherra starfsleyfi skal [Fjármálaeftirlitið] 1) tilkynna það eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja er gera skulu allar viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að félagið stofni til nýrra vátryggingaskuldbindinga innan lögsögu þeirra, í útibúi eða með því að veita þar þjónustu. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal með hagsmuni vátryggingataka og vátryggðra fyrir augum og í samráði við önnur hlutaðeigandi eftirlitsstjórnvöld takmarka, eftir því sem nauðsyn krefur, frjálsa ráðstöfun eigna félagsins þegar vátryggingaskuldin er vanmetin, skilyrðum um gjaldþol er ekki fullnægt og hætta er á versnandi fjárhagsstöðu félagsins sé ekki gripið til ráðstafana.
1)L. 84/1998, 5. gr.
Félagsslit.
93. gr. Verði starfsleyfi vátryggingafélags afturkallað skal ráðherra, að fengnum tillögum [Fjármálaeftirlitsins], 1) skipa þriggja manna skilastjórn í félagið. Skilastjórn tekur við öllum heimildum félagsstjórnar og jafnframt falla niður heimildir hennar. Skilastjórn skal þegar kalla saman félagsfund og kynna félagsmönnum hvernig komið er.
[Fjármálaeftirlitið] 1) skal, að höfðu samráði við skilastjórn, taka ákvörðun um hvort félagið skuli leitast við að flytja vátryggingastofn sinn til eins eða fleiri vátryggingafélaga eða hvort félagið skuli freista þess að ljúka uppgjöri vegna hans með öðrum hætti. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur, þegar um líftryggingafélag er að ræða, ákveðið að líftryggingastofninn sæti sérstakri meðferð skv. 94. gr.
Skilastjórn skal í samráði við [Fjármálaeftirlitið] 1) taka ákvörðun um hvort óska skuli gjaldþrotaskipta á félaginu eða hvort það skuli rekið áfram. [Fjármálaeftirlitið] 1) getur takmarkað eða bannað ráðstöfun félags yfir fjármunum sínum og gert kröfu um að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta telji það líkur á að hagsmunum vátryggingataka og vátryggðra sé að öðrum kosti stefnt í hættu.
Laun skilastjórnar og kostnaður hennar skal greiðast af eignum hlutaðeigandi vátryggingafélags sem krafa utan skuldaraðar.
1)L. 84/1998, 5. gr.
94. gr. Ef skipuð er skilastjórn í líftryggingafélagi og ákveðið er að líftryggingastofninn skuli sæta sérstakri meðferð skal [Fjármálaeftirlitið] 1) þegar í stað taka í sínar vörslur þær eignir sem mæta eiga líftryggingaskuldinni, láta endurreikna hana og leggja mat á verðmæti eigna. Ljúka skal greiðslu áfallinna og tilkynntra líftryggingakrafna samkvæmt reglum sem giltu áður en skilastjórn var skipuð. Líftryggingakröfur, sem falla til útborgunar síðar, má greiða út að því marki er [Fjármálaeftirlitið] 1) telur forsvaranlegt með tilliti til eignarstöðu. Endurkaup eru óheimil nema sem greiðsla á lánum gegn veði í líftryggingum hjá félaginu.
Þegar að loknu endurmati skv. 1. mgr. skal [Fjármálaeftirlitið] 1) leita til annarra líftryggingafélaga um yfirtöku líftryggingastofns og líftryggingaskuldar. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal meta framkomin tilboð og velja það sem það telur hagkvæmast fyrir vátryggða. [Fjármálaeftirlitið] 1) skal með tilkynningu í Lögbirtingablaði greina frá helstu atriðum tilboðsins sem það hefur valið og skal jafnframt auglýst eftir athugasemdum frá vátryggingatökum og vátryggðum sem berast skulu skriflega innan eins mánaðar frá birtingu tilkynningarinn ar. Að fengnum athugasemdum getur [Fjármálaeftirlitið] 1) framselt stofninn líftryggingafélagi því er [Fjármálaeftirlitið] 1) valdi ásamt eignum sem mæta eiga líftryggingaskuldinni, enda tekur viðtakandi þá við öllum skuldbindingum vegna líftrygginganna.
Þeir vátryggingatakar eða vátryggðir, sem athugasemdir hafa gert og eigi vilja samþykkja yfirfærsluna, eiga rétt á að fá endurgreitt verðmæti líftrygginga sinna að svo miklu leyti sem hlutfallsleg eign hrekkur til.
Berist ekki tilboð í líftryggingastofn eða komi ekki fram þau tilboð er [Fjármálaeftirlitið] 1) vill mæla með skulu eignir hinna vátryggðu greiddar þeim í réttu hlutfalli við verðmæti líftrygginga þeirra.
1)L. 84/1998, 5. gr.
95. gr. [Verði ákveðið að beiðast gjaldþrotaskipta á líftryggingafélagi gilda lög um gjaldþrotaskipti sé ekki á annan veg mælt í lögum þessum.
Ákvæði 94. gr. um sérstaka meðferð líftryggingastofnsins gilda og getur Fjármálaeftirlitið krafist allra gagna frá þrotabúinu sem nauðsynleg eru til að unnt sé að ljúka uppgjöri hans og ráðstöfun. Auk tilkynningar í Lögbirtingablaði skv. 2. mgr. 94. gr. skal Fjármálaeftirlitið tilkynna vátryggingatökum, vátryggðum og öðrum, sem kröfu eiga á vátryggingafélag vegna vátryggingasamninga og hafa lögheimili, fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki, um fyrirhugaðan flutning vátryggingastofnsins. Slík tilkynning skal vera á tungumáli þess ríkis þar sem viðkomandi á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar. Hafi sérstök meðferð líftryggingastofns verið ákveðin áður en beiðst er gjaldþrotaskipta hefur það ekki áhrif á framkvæmd samkvæmt þessari grein og 94. gr.
Við gjaldþrotaskipti líftryggingafélags skal hvorki telja eignir sem mæta eiga líftryggingaskuldinni með eignum þrotabúsins né líftryggingaskuldina með skuldum þess. Hafi ekki tekist að ljúka greiðslu líftryggingakröfu með eignum þeim sem mæta eiga líftryggingaskuldinni fer um líftryggingakröfuna á hendur þrotabúi félagsins skv. 11. mgr. 96. gr.
Dómstóll skal sjá til þess að Fjármálaeftirlitinu verði tilkynnt þegar í stað um framkomna kröfu um gjaldþrotaskipti líftryggingafélags. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna öðrum eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja ef bú líftryggingafélags hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Úrskurður dómstóls í öðru aðildarríki um að bú líftryggingafélags með aðalstöðvar í því ríki sé tekið til gjaldþrotaskipta tekur til útibúa félagsins hér á landi.
Heimild líftryggingafélags til greiðslustöðvunar eða nauðasamningsumleitana kemur ekki í veg fyrir að unnt sé að óska gjaldþrotaskipta á félaginu.
Þegar bú líftryggingafélags hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta skal skilastjórn skv. 93. gr. birta í Lögbirtingablaðinu ákvörðun um skipun skilastjórnar, innköllun vegna gjaldþrotaskiptanna og upplýsingar um hvaða lög gildi um gjaldþrotaskiptin. Útdrátt tilkynningarinnar skal jafnframt birta í Stjórnartíðindum ESB.
Skilastjórn skal tilkynna lánardrottni sem á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki um gjaldþrotaskipti líftryggingafélags. Fyrirsögn tilkynningarinnar skal vera Innköllun vegna gjaldþrotaskipta, kröfulýsingarfrestur á öllum tungumálum aðildarríkja.
Í tilkynningu skilastjórnar skv. 8. mgr. til vátryggingataka, vátryggðra og annarra sem kröfu eiga á líftryggingafélag vegna líftryggingasamninga og hafa lögheimili, fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki skal sérstaklega tekið fram hver áhrif úrskurður um gjaldþrotaskipti hafi á líftryggingasamning og upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra. Skal tilkynningin vera á tungumáli þess ríkis þar sem viðkomandi á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar.
Lánardrottni sem á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki en líftryggingafélag skal heimilt að leggja fram kröfulýsingu á tungumáli þess ríkis. Fyrirsögn kröfulýsingar skal þó vera á íslensku.
Eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja er heimilt að óska upplýsinga um meðferð þrotabús líftryggingafélags hjá Fjármálaeftirlitinu.
Um gjaldþrotaskipti útibús líftryggingafélags með aðalstöðvar utan aðildarríkja fer eftir íslenskum lögum. Hafi félagið útibú í fleiri en einu aðildarríki skal litið á hvert útibú sem sjálfstæðan lögaðila. Eftirlitsstjórnvöld skulu þó samræma aðgerðir og það sama á við um skilastjórn.] 1)
1)L. 34/2003, 3. gr.
96. gr. [Verði ákveðið að beiðast gjaldþrotaskipta á vátryggingafélagi sem rekur aðra starfsemi en líftryggingastarfsemi gilda lög um gjaldþrotaskipti sé ekki á annan veg mælt í lögum þessum.
Dómstóll skal sjá til þess að Fjármálaeftirlitinu verði tilkynnt þegar í stað um framkomna kröfu um gjaldþrotaskipti vátryggingafélags. Fjármálaeftirlitið skal tilkynna öðrum eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja ef bú vátryggingafélags hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Úrskurður dómstóls í öðru aðildarríki um að bú vátryggingafélags með aðalstöðvar í því ríki sem rekur aðra starfsemi en líftryggingastarfsemi sé tekið til gjaldþrotaskipta tekur einnig til útibúa félagsins hér á landi.
Heimild vátryggingafélags til greiðslustöðvunar eða nauðasamnings kemur ekki í veg fyrir að unnt sé að óska gjaldþrotaskipta á félaginu.
Fjármálaeftirlitið skal jafnskjótt og búið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta meta hvort hagsmuna vátryggingataka og vátryggðra verði best gætt með því að yfirfæra vátryggingastofna að öllu leyti eða að hluta til annars eða annarra vátryggingafélaga.
Berist tilboð er Fjármálaeftirlitið metur hagkvæmt fyrir vátryggingataka og vátryggða skal það leggja fram tillögu um flutning stofnsins og tilkynna í Lögbirtingablaðinu um helstu efnisatriði slíks samkomulags. Einnig skal auglýsa eftir athugasemdum vátryggingataka og vátryggðra er berast skulu skriflega innan eins mánaðar frá birtingu tilkynningarinnar. Fjármálaeftirlitið skal jafnframt tilkynna vátryggingatökum, vátryggðum og öðrum, sem kröfu eiga á vátryggingafélag vegna vátryggingasamninga og hafa lögheimili, fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki, um fyrirhugaðan flutning vátryggingastofnsins. Sú tilkynning skal vera á tungumáli þess ríkis þar sem viðkomandi hefur lögheimili, fasta búsetu eða aðalstöðvar. Að teknu tilliti til athugasemda skal Fjármálaeftirlitið að frestinum loknum taka ákvörðun um hvort unnt sé að yfirfæra vátryggingastofna á þann hátt sem lagt er til.
Þegar bú vátryggingafélags hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta skal skilastjórn skv. 93. gr. birta í Lögbirtingablaðinu ákvörðun um skipun skilastjórnar, innköllun vegna gjaldþrotaskiptanna og upplýsingar um hvaða lög gildi um gjaldþrotaskiptin. Útdrátt tilkynningarinnar skal jafnframt birta í Stjórnartíðindum ESB.
Skilastjórn skal tilkynna lánardrottni sem á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki um gjaldþrotaskipti vátryggingafélags. Fyrirsögn tilkynningarinnar skal vera Innköllun vegna gjaldþrotaskipta, kröfulýsingarfrestur á öllum tungumálum aðildarríkja.
Í tilkynningu skilastjórnar skv. 8. mgr. til vátryggingataka, vátryggðra og annarra sem kröfu eiga á vátryggingafélag vegna vátryggingasamninga og hafa lögheimili, fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki skal sérstaklega tekið fram hver áhrif úrskurður um gjaldþrotaskipti hafi á vátryggingasamning og upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra. Skal tilkynningin vera á tungumáli þess ríkis þar sem viðkomandi á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar.
Lánardrottni sem á lögheimili, hefur fasta búsetu eða aðalstöðvar í öðru aðildarríki en vátryggingafélag skal heimilt að leggja fram kröfulýsingu á tungumáli þess ríkis. Fyrirsögn kröfulýsingar skal þó vera á íslensku.
Vátryggingakröfur á hendur þrotabúi vátryggingafélagsins skulu ganga næst á undan kröfum skv. 113. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.
Eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja er heimilt að óska upplýsinga um meðferð þrotabús vátryggingafélags hjá Fjármálaeftirlitinu.
Um gjaldþrotaskipti útibús vátryggingafélags með aðalstöðvar utan aðildarríkja fer eftir íslenskum lögum. Hafi félagið útibú í fleiri en einu aðildarríki skal litið á hvert útibú sem sjálfstæðan lögaðila. Eftirlitsstjórnvöld skulu þó samræma aðgerðir og það sama á við um skilastjórn.] 1)
1)L. 34/2003, 4. gr.
[96. gr. A. Íslensk lög skulu gilda um gjaldþrotaskipti vátryggingafélags nema á annan veg sé fyrir mælt í þessari grein.
Vinnusamningur skal fara eftir lögum þess ríkis sem um vinnusamninginn og vinnusambandið gilda.
Samningur um notkun eða kaup fasteignar skal fara eftir lögum þess ríkis þar sem fasteignin er staðsett.
Réttur vátryggingafélags vegna fasteignar, skips eða flugvélar skal fara eftir lögum þess ríkis þar sem opinber skráning hefur farið fram.
Úrskurður um að bú vátryggingafélags sé tekið til gjaldþrotaskipta skal ekki hafa áhrif á rétt veðhafa vegna eignarréttinda sem voru í öðru aðildarríki þegar úrskurðurinn var kveðinn upp. Íslensk lög gilda þó um réttindi og skyldur aðila sem lúta opinberu eftirliti hérlendis.
Hafi vátryggingafélag keypt eign með eignarréttarfyrirvara hefur úrskurður um að bú vátryggingafélags sé tekið til gjaldþrotaskipta ekki áhrif á réttindi seljanda sem byggjast á fyrirvaranum sé eign í öðru aðildarríki. Gjaldþrot vátryggingafélags hefur ekki áhrif á sölu vátryggingafélags á eign hafi afhending þegar farið fram og eignin verið í öðru aðildarríki þegar úrskurður um gjaldþrotaskipti var kveðinn upp.
Þrátt fyrir ákvæði 5. og 6. mgr. er heimilt að beita ákvæðum III. kafla laga um samningsgerð, umboð og ógilda gerninga, nr. 7/1936, eða ákvæðum XX. kafla laga um gjaldþrotaskipti o. fl., nr. 21/1991, nema lög gistiríkis heimili ekki slíkt.
Hafi vátryggingafélag eftir úrskurð um að bú vátryggingafélags skuli tekið til gjaldþrotaskipta selt fasteign, skip eða flugvél sem háð er opinberri skráningu eða framseljanleg verðbréf eða önnur verðbréf skráð í verðbréfamiðstöð skulu lög þess ríkis þar sem eign er eða þar sem hin opinbera skráning hefur farið fram gilda um lögmæti löggerningsins.
Um áhrif úrskurðar um að bú vátryggingafélags skuli tekið til gjaldþrotaskipta á málshöfðun vegna eignar eða annarra réttinda sem vátryggingafélag hefur látið af hendi fer eftir lögum þess aðildarríkis þar sem málið var höfðað.
Úrræði sem skilastjórn getur beitt samkvæmt íslenskum lögum hefur hún jafnframt í öðrum aðildarríkjum. Við beitingu slíkra úrræða í öðru aðildarríki skal skilastjórn þó fara eftir lögum þess aðildarríkis eftir því sem við á.] 1)
1)L. 34/2003, 5. gr.
97. gr. Þegar tekin er ákvörðun um frjáls slit samkvæmt samþykktum vátryggingafélags sem hér hefur fengið starfsleyfi skal félagið leggja fyrir [Fjármálaeftirlitið] 1) greinargerð um óuppgerðar vátryggingaskuldbindingar félagsins og á hvern hátt ætlunin sé að ljúka þeim.
[Fjármálaeftirlitið] 1) skal meta og taka ákvörðun um hvort hagsmunum vátryggingataka og vátryggðra teljist best borgið með flutningi vátryggingastofns til annars eða annarra félaga, svo og þegar um líftryggingastofn er að ræða hvort stofninn skuli sæta sérstakri meðferð, sbr. 94. gr.
[Um frjáls slit vátryggingafélags gilda ákvæði 95., 96. og 96. gr. A eftir því sem við á.] 2)
1)L. 84/1998, 5. gr. 2)L. 34/2003, 6. gr.
XII. kafli. Ýmis ákvæði.
98. gr. Ráðherra vátryggingamála er heimilt að setja reglugerðir 1) um þau efni sem í lögum þessum greinir.
1)Rg. 573/1995, rg. 350/1997, sbr. 643/2000; rg. 352/1997, rg. 494/1997, rg. 99/1998, rg. 853/1999, rg. 459/2003.
99. gr. Brot gegn lögum þessum varða fésektum eða [fangelsi allt að 2 árum] 1) nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum.
1)L. 82/1998, 213. gr.
100. gr. …
Lögin öðlast gildi 1. apríl 1994 nema ákvæði 34. og 35. gr. um eignir til jöfnunar vátryggingaskuldinni sem gilda frá [1. júlí 1995]. 1)
1)L. 139/1994, 1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. [Þau vátryggingafélög sem hlotið hafa starfsleyfi skv. 26. gr. laganna við gildistöku laga þessara skulu þegar í stað grípa til viðeigandi ráðstafana til þess að uppfylla skilyrði laga þessara.] 1)
[Þau vátryggingafélög sem ekki uppfylla ákvæði 33. gr. um lágmarksfjárhæðir 1. janúar 2003 hafa frest til ársloka 2007 til þess að uppfylla þau, enda verði gjaldþol þeirra fram til þess aldrei lægra en krafist var 31. desember 2001. Hafi markið ekki náðst á tilskildum tíma getur Fjármálaeftirlitið heimilað að félag starfi í tvö ár til viðbótar á grundvelli áætlunar skv. 90. gr.
Hinn 31. desember 2009 fellur 9. tölul. 1. mgr. 29. gr. brott.] 2)
1)L. 28/2003, brbákv. 2)L. 37/2003, 8. gr.