Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2007. Útgáfa 133a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr
1998 nr. 66 15. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 1999. Breytt með l. 72/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003), l. 49/2004 (tóku gildi 14. júní 2004) og l. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006).
I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Lög þessi taka til hvers þess dýralæknis sem er skipaður, settur eða ráðinn til starfa í þágu ríkisins og þeirra dýralækna sem starfa samkvæmt leyfi þar að lútandi sem veitt er eftir lögum þessum.
2. gr. Dýralæknar skulu standa vörð um heilsu dýra í landinu, stuðla að bættu heilsufari þeirra, aukinni arðsemi búfjár og góðum aðbúnaði og meðferð dýra. Þeir skulu vera á verði gagnvart því að einstaklingar eða samfélagið í heild bíði tjón af völdum dýrasjúkdóma. Með starfi sínu skulu þeir leitast við að girða fyrir hættur sem stafað geta af sjúkum dýrum og neyslu spilltra búfjárafurða, af innflutningi lifandi dýra og búfjárafurða, efna, áhalda eða hluta sem borið geta með sér smitefni.
II. kafli. Yfirstjórn.
3. gr. Landbúnaðarráðherra fer með mál sem þessi lög varða.
4. gr. Landbúnaðarráðherra skipar dýralæknaráð sem skipað er fjórum dýralæknum til fimm ára í senn og er [Landbúnaðarstofnun] 1) til ráðuneytis. Skal einn tilnefndur af Bændasamtökum Íslands, annar af stjórn Dýralæknafélags Íslands, þriðji af stjórn Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og fjórði án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður ráðsins. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt.
Ráðið skal ávallt fjalla um innflutning búfjár og erfðaefnis þess sé hans óskað. Einnig skal ráðið fjalla um innflutning annarra dýra, búfjárafurða og aðra þætti er snerta heilbrigðismál dýra og dýraafurða þegar þess er óskað af ráðherra eða [Landbúnaðarstofnun]. 1) Ráðinu er heimilt, ef aðstæður krefja, að kalla sérfræðinga til ráðuneytis.
Sömu aðilar og taldir eru í 2. mgr. geta vísað ágreiningsmálum varðandi dýralæknisþjónustu til ráðsins. Við úrlausn þeirra ágreiningsmála skal ráðherra kalla til starfa með ráðinu lögfræðing sem fullnægir skilyrðum um skipan til starfa héraðsdómara.
Ráðið skal halda gerðabók um störf sín.
1)L. 76/2005, 1. gr.
5. gr. [Landbúnaðarstofnun er ráðherra og ríkisstjórn til ráðuneytis um allt er varðar heilbrigðismál dýra og hollustuhætti við framleiðslu og meðferð búfjárafurða.
Landbúnaðarstofnun skal m.a. annast:
a. yfirstjórn og eftirlit með störfum héraðsdýralækna, sérgreinadýralækna og annarra dýralækna sem leyfi hafa til að stunda dýralækningar,
b. yfirumsjón með öllu er varðar heilbrigðismál dýra, hollustu dýrafóðurs og eftirlit þar að lútandi,
c. yfirumsjón með heilbrigði sláturdýra, heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum og framleiðslu mjólkur auk yfirumsjónar með heilbrigði búfjár og afurða þess,
d. yfirumsjón með sjúkdómavörnum dýra, forvörnum, fræðslustarfi varðandi búfjársjúkdóma, innflutningi og útflutningi lifandi dýra, erfðaefnis og búfjárafurða og útgáfu opinberra heilbrigðisvottorða þar að lútandi,
e. skipulagningu, gagnaöflun og skýrslugerð varðandi dýrasjúkdóma, heilbrigðisskoðun sláturafurða og heilbrigðiseftirlit með framleiðslu mjólkur. Stofnunin skal einnig afla upplýsinga um heilbrigðisástand dýra og hollustu dýraafurða í öðrum löndum eftir því sem nauðsyn krefur og sjá um árlega útgáfu heilbrigðisskýrslna.] 1)
1)L. 76/2005, 2. gr.
III. kafli. Réttindi og skyldur.
6. gr. Þeir einir eru samkvæmt lögum þessum taldir dýralæknar er lokið hafa prófi frá dýralæknaháskóla sem er viðurkenndur af íslenskum stjórnvöldum.
Þeir einir mega stunda dýralækningar hér á landi sem hlotið hafa leyfi landbúnaðarráðherra samkvæmt ákvæðum sem ráðherra setur í reglugerð að fenginni umsögn [Landbúnaðarstofnunar]. 1)
Landbúnaðarráðherra gefur út leyfisbréf handa dýralækni til að stunda dýralækningar og dýralæknir undirritar eiðstaf þar að lútandi. [Landbúnaðarstofnun] 1) heldur skrá yfir dýralækna sem hafa leyfi til að stunda dýralækningar.
Dýralækni er skylt að tilkynna [Landbúnaðarstofnun]: 1)
1. þegar hann hyggst hefja dýralæknisstörf og aðsetur starfsemi sinnar,
2. flutning aðseturs,
3. starfslok sem dýralæknir.
Dýralæknum, sem hefja störf á Íslandi, ber að kynna sér íslensk lög og reglur um dýralækningar og þeir sem starfa í opinberri þjónustu skulu hafa vald á íslenskri tungu.
Heimilt er að fela dýralæknanemum á síðari hluta námsferils að gegna tímabundið ákveðnum dýralæknisstörfum undir stjórn dýralæknis ef [Landbúnaðarstofnun] 1) mælir með því.
1)L. 76/2005, 1. gr.
7. gr. Eingöngu þeir dýralæknar sem hafa leyfi til að stunda dýralækningar mega framkvæma læknisaðgerðir á dýrum. Undanþegnar eru þó minni háttar aðgerðir og lyfjameðferð í samráði við dýralækni.
8. gr. Dýralækni er einungis heimilt að afhenda eða ávísa lyfseðilsskyldum lyfjum handa dýri þegar hann hefur greint sjúkdóminn.
9. gr. Dýralækni ber að sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og halda við þekkingu sinni. Dýralæknir ber ábyrgð á greiningu sjúkdóms og meðferð sjúklinga sinna.
Dýralækni ber sem kostur er að upplýsa eiganda eða umráðamann dýrs sem hann fær til meðferðar um ástand, meðferð, horfur og væntanlegan kostnað af meðhöndlun og lyfjameðferð sé þess óskað. Einnig skal hann upplýsa eiganda eða umráðamann um þær hættur sem geta fylgt viðkomandi aðgerð, algengar aukaverkanir lyfja sem notuð eru og lyfjamengun afurða.
Dýralækni ber, sé til hans leitað eða hann nærstaddur og náist ekki í vakthafandi dýralækni, að veita fyrstu nauðsynlega læknishjálp í skyndilegum sjúkdóms- eða slysatilfellum, nema þeim mun alvarlegri forföll hamli.
Dýralæknar, sem stunda almennar dýralækningar, eiga rétt á og þeim ber skylda til að taka þátt í vaktafyrirkomulagi sem skipulagt er á viðkomandi vaktsvæði, sbr. 12. gr., nema þeir séu sjálfir sjúkir eða hindraðir af öðrum meira aðkallandi embættisstörfum. Dýralækni er heimilt að semja við annan dýralækni um að taka við vaktskyldunni.
Verði dýralæknir var við eða hafi hann grun um að upp sé kominn alvarlegur smitsjúkdómur í dýrum á starfssvæði hans skal hann gera nauðsynlegar bráðabirgðaráðstafanir til að staðfesta gruninn, hefta útbreiðslu sjúkdómsins og koma í veg fyrir tjón sem af honum getur leitt. [Hann skal tafarlaust tilkynna Landbúnaðarstofnun um sjúkdóminn og gera í samráði við stofnunina ráðstafanir sem þurfa þykir.] 1)
Dýralækni ber að gera árlega skýrslu um læknisstörf sín og senda [Landbúnaðarstofnun]. 2) [Landbúnaðarstofnun] 2) setur reglur um hvaða upplýsingar skýrslurnar skuli geyma.
Dýralækni ber að sýna nákvæmni í útgáfu vottorða og læknisyfirlýsinga. Hann er bundinn þagnarskyldu um þá vitneskju sem hann öðlast í starfi sínu og honum er trúað fyrir og varðar ekki almannaheill.
Dýralækni er einungis heimilt að auglýsa læknisstarfsemi sína með efnislegum og látlausum auglýsingum.
1)L. 76/2005, 3. gr. 2)L. 76/2005, 1. gr.
10. gr. [Dýralæknir hefur leyfi til að kalla sig sérfræðing og starfa sem slíkur hér á landi hafi hann fengið til þess leyfi landbúnaðarráðherra, fengið viðurkenningu til að starfa sem sérfræðingur í ríki sem er aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eða í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu.
Umsóknir um sérfræðingsleyfi skulu lagðar fyrir dýralæknaráð til umsagnar þegar menntunar er aflað utan Evrópska efnahagssvæðisins eða utan aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu. Við afgreiðslu einstakra umsókna er heimilt að kveðja til sérfróðan dýralækni úr þeirri sérgrein sem sótt er um viðurkenningu á.] 1)
1)L. 72/2003, 33. gr.
IV. kafli. [Umdæmi héraðsdýralækna.]1)
1)L. 76/2005, 5. gr.
11. gr. Umdæmi héraðsdýralækna eru sem hér greinir:
1. Gullbringu- og Kjósarumdæmi: Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Gullbringu- og Kjósarsýsla.
2. Borgarfjarðar- og Mýraumdæmi: Borgarfjarðarsýsla, Mýrasýsla, Akranes, Borgarbyggð.
3. Snæfellsnesumdæmi: Stykkishólmur, Snæfellsbær, Eyrarsveit, Helgafellssveit, Hnappadalssýsla, Flatey og býli í gamla Flateyjarhreppi, Skógarstrandarhreppur.
4. Dalaumdæmi: Dalabyggð, Saurbæjarhreppur, Austur-Barðastrandarsýsla, að undanskilinni Flatey og býlum í Flateyjarhreppi hinum gamla.
5. Vestfjarðaumdæmi: Vestur-Barðastrandarsýsla, Ísafjörður, Bolungarvík, Vestur- og Norður-Ísafjarðarsýsla, Strandasýsla að Bæjarhreppi.
6. Vestur-Húnaþingsumdæmi: Vestur-Húnavatnssýsla, Bæjarhreppur í Strandasýslu.
7. Austur-Húnaþingsumdæmi: Blönduós, Austur-Húnavatnssýsla.
8. Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi: Akureyri, Ólafsfjörður, Dalvík, Siglufjörður, Sauðárkrókur, Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslur, Svalbarðsstrandar-, Grýtubakka- og Hálshreppar í Suður-Þingeyjarsýslu.
9. Þingeyjarumdæmi: Húsavík, Suður-Þingeyjarsýsla, að undanskildum Svalbarðsstrandar-, Grýtubakka- og Hálshreppum, Norður-Þingeyjarsýsla.
10. Austurlandsumdæmi nyrðra: Egilsstaðir og nágrenni, Eskifjörður, Mjóifjörður, Neskaupstaður, Reyðarfjörður, Seyðisfjörður, Norður-Múlasýsla.
11. Austurlandsumdæmi syðra: Fáskrúðsfjarðarhreppur, Búðahreppur, Stöðvarhreppur, Breiðdalshreppur, Djúpavogshreppur.
12. Austur-Skaftafellsumdæmi: Hornafjarðarbær, Austur-Skaftafellssýsla.
13. Vestur-Skaftafellsumdæmi: Vestur-Skaftafellssýsla, að undanskildum Mýrdalshreppi.
14. Suðurlandsumdæmi: Árnes- og Rangárvallasýslur, Mýrdalshreppur, [Vestmannaeyjabær]. 1)
[Ráða skal einn héraðsdýralækni í hvert umdæmi, að undanskildu Vestfjarðaumdæmi, Þingeyjarumdæmi og Austurlandsumdæmi nyrðra, en í hvert þeirra skal ráða tvo héraðsdýralækna.] 2)
Héraðsdýralæknar skulu hver í sínu umdæmi hafa eftirlit með sláturdýrum, sláturafurðum og afurðastöðvum, eftirlit með heilbrigði, hirðingu, aðbúnaði og aðstöðu nautgripa á búum þar sem framleidd er mjólk til sölu og hafa með höndum framkvæmd sóttvarnaaðgerða. Einnig ber þeim að hafa eftirlit með búfé og öðrum dýrum eftir því sem lög ákveða. Ávallt skal aðskilja sem kostur er eftirlitsstörf dýralækna og almenna dýralæknisþjónustu.
Héraðsdýralæknar í Gullbringu- og Kjósar-, Skagafjarðar- og Eyjafjarðar- og Suðurlandsumdæmum sinna eingöngu eftirlitsstörfum, en héraðsdýralæknar í öðrum dýralæknisumdæmum annast jafnframt eftirlitsstörfum almenna dýralæknisþjónustu í umdæminu, þar með er talin vaktþjónusta.
Heimilt er að ráða dýralækna til aðstoðar ef þess er þörf vegna eftirlits og sjúkdómavarna í einstökum umdæmum.
[Forstjóri Landbúnaðarstofnunar ræður héraðsdýralækna og setur þeim erindisbréf. Í erindisbréfinu skal kveðið á um starfsskyldur, eftirlitsstörf og heimild til annarra dýralæknastarfa. Héraðsdýralæknar skulu ráðnir samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.] 2)
Gjald, sem nemur kostnaði, skal innheimta fyrir eftirlit og skoðanir samkvæmt reglum sem ráðherra setur að fengum tillögum [Landbúnaðarstofnunar]. 3)
[Landbúnaðarstofnun] 2) skal sjá héraðsdýralæknum fyrir skrifstofuaðstöðu í samræmi við umfang starfseminnar.
1)L. 49/2004, 1. gr. 2)L. 76/2005, 4. gr. 3)L. 76/2005, 1. gr.
12. gr. Vaktsvæði dýralækna eru sem hér greinir:
1. Gullbringu- og Kjósarumdæmi.
2. Borgarfjarðar- og Mýraumdæmi.
3. Snæfellsnesumdæmi.
4. Dalaumdæmi.
5. Vestfjarðaumdæmi.
6. Austur- og Vestur-Húnaþingsumdæmi.
7. Skagafjörður og Siglufjörður.
8. Eyjafjörður, Dalvík og Ólafsfjörður.
9. Þingeyjarumdæmi.
10. Austurlandsumdæmi nyrðra.
11. Austurlandsumdæmi syðra.
12. Austur-Skaftafellsumdæmi.
13. Vestur-Skaftafellsumdæmi.
14. Rangárvallasýsla og Mýrdalshreppur.
15. Árnessýsla [og Vestmannaeyjabær]. 1)
Héraðsdýralæknar skulu skipuleggja vaktir í samráði við starfandi dýralækna innan sinna vaktsvæða þannig að dýralæknir sé þar jafnan á vakt og auðvelt sé að afla vitneskju um hvaða dýralæknir er á vakt hverju sinni. Heimilt er að skipta vakt innan sama vaktsvæðis milli fleiri dýralækna samtímis.
Við skipulagningu vakta er ætlast til að tekið sé mið af vegalengdum og umfangi þjónustu innan viðkomandi vaktsvæða.
Komi upp ágreiningur um skiptingu vakta innan vaktsvæða skal leita úrskurðar [Landbúnaðarstofnunar]. 2)
Fyrir vaktþjónustu greiðist samkvæmt samningi Dýralæknafélags Íslands við landbúnaðar- og fjármálaráðuneyti.
1)L. 49/2004, 2. gr. 2)L. 76/2005, 1. gr.
13. gr. Í því skyni að tryggja byggðum fjarri aðsetri dýralæknis reglubundna þjónustu og bráðaþjónustu skal landbúnaðarráðherra setja reglur um greiðslu hluta ferðakostnaðar dýralæknis í samráði við [Landbúnaðarstofnun], 1) Dýralæknafélag Íslands og Bændasamtök Íslands.
1)L. 76/2005, 1. gr.
V. kafli. Sérgreinadýralæknar.
14. gr. Ráða skal sérmenntaða dýralækna, einn á hverju eftirtalinna sérsviða: Sviði alifuglasjúkdóma, fisksjúkdóma, hrossasjúkdóma, nautgripa- og sauðfjársjúkdóma, júgursjúkdóma, loðdýrasjúkdóma og svínasjúkdóma. Auk þess skal ráða dýralækni með sérþekkingu í heilbrigðiseftirliti sláturdýra og sláturafurða og dýralækni sem hafi eftirlit með inn- og útflutningi búfjárafurða. Sérgreinadýralæknar starfa undir stjórn [Landbúnaðarstofnunar] 1) sem setur þeim erindisbréf.
Sérgreinadýralæknar skulu vinna að bættu heilbrigði búfjár og sjúkdómavörnum, hver á sínu sviði, í samráði við héraðsdýralækna, með sértækum aðgerðum, almennri fræðslu, leiðbeiningar- og forvarnastarfi. Sérgreinadýralæknum má fela önnur verkefni, enda komi slíkt fram í erindisbréfi. Sérgreinadýralækni er óheimilt að stunda almennar dýralækningar á sínu sérsviði.
Sérgreinadýralæknar skulu hafa frumkvæði að framkvæmd nauðsynlegra rannsókna og sýnatöku í samvinnu við héraðsdýralækna, rannsóknastofnanir og afurðastöðvar og hafa eftirlit með framkvæmd sóttvarnaaðgerða.
1)L. 76/2005, 1. gr.
15. gr. [Landbúnaðarstofnun] 1) skal hafa aðgang að viðunandi aðstöðu, búnaði og sérþekkingu til greiningar dýrasjúkdóma vegna sjúkdómsvarna og forvarnastarfa.
1)L. 76/2005, 1. gr.
16. gr. … 1) Sérgreinadýralæknar skulu ráðnir samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
1)L. 76/2005, 6. gr.
VI. kafli. Viðurlög, gildistaka o.fl.
17. gr. Landbúnaðarráðherra setur með reglugerð 1) nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
1) Augl. 10/1964 (notkun matarleifa til skepnufóðurs). Rg. 290/1980 (um varnir gegn hundaæði). Rg. 444/1982 (um loðdýrarækt og innflutning loðdýra), sbr. 393/1984, 340/1986 og 859/2002. Rg. 21/1983 (um veitingu leyfis til dýralækninga). Rg. 403/1986, sbr. 597/1989 og 148/1992 (um varnir gegn fisksjúkdómum o.fl.). Rg. 156/1987 (sæðingar loðdýra). Rg. 251/1995 (um aðbúnað og sjúkdómavarnir á alifuglabúum), sbr. 904/2001 og 701/2002. Rg. 557/1998 (kanínurækt). Rg. 782/1999 (um embætti yfirdýralæknis). Rg. 60/2000 (um eftirlit með aðbúnaði og heilbrigði sauðfjár og geitfjár o.fl.). Rg. 651/2001 (um útrýmingu á riðuveiki o.fl.), sbr. 726/2004 og 807/2006. Rg. 653/2001 (um hámark dýralyfjaleifa í sláturafurðum, eggjum og mjólk), sbr. 866/2002, 580/2003, 639/2003, 480/2004 og 578/2005. Rg. 279/2002 (um dýratilraunir). Rg. 438/2002 (um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur o.fl.). Rg. 859/2002 (um innflutning loðdýra). Rg. 432/2003 (um einangrunarstöðvar og sóttkvíar fyrir gæludýr). Rg. 509/2004 (um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins). Rg. 935/2004 (um innflutning gæludýra og hundasæðis), sbr. 817/2005. Rg. 289/2005 (um merkingar búfjár), sbr. 972/2005. Rg. 160/2006 (um aðbúnað, umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa). Rg. 773/2006 (um leyfi til að stunda dýralækningar á Íslandi fyrir dýralækna sem hlotið hafa menntun í ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins).
18. gr. [Verði Landbúnaðarstofnun þess vör að dýralæknir, sem hefur starfsleyfi, vanræki skyldur sínar og störf, fari út fyrir verksvið sitt eða brjóti alvarlega í bága við fyrirmæli sem dýralæknum er skylt að starfa eftir ber Landbúnaðarstofnun að áminna hann um að bæta ráð sitt.] 1)
Nú kemur ítrekuð áminning ekki að haldi eða sé um óhæfu í læknisstörfum að ræða og ber þá [Landbúnaðarstofnun] 2) að kæra málið til ráðherra. Getur þá ráðherra úrskurðað að viðkomandi skuli sviptur lækningaleyfi að fullu eða um tiltekinn tíma.
Uppfylli dýralæknir, sem hefur læknisleyfi, ekki lengur þær kröfur sem gerðar voru er læknisleyfi var veitt, svo sem vegna bilunar á andlegri eða líkamlegri heilsu eða misnotkunar vímuefna, ber [Landbúnaðarstofnun] 2) að greina ráðherra frá málavöxtum. Ráðherra skal leita álits dýralæknaráðs um slík mál. Svipta má viðkomandi dýralækni lækningaleyfi ef dýralæknaráð leggur það til.
1)L. 76/2005, 7. gr. 2)L. 76/2005, 1. gr.
19. gr. Brot gegn lögum þessum, reglugerðum og fyrirmælum gefnum samkvæmt þeim varða sektum eða fangelsi ef sakir eru miklar. Með mál vegna brota skal farið að hætti opinberra mála.
20. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999. … 1)
1)Sbr. þó ákvæði l. 158/1998, 2. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I. Meðan ekki hafa tekist samningar milli Dýralæknafélags Íslands og fjármálaráðuneytisins um endurmenntun gildir eftirfarandi ákvæði: Fyrir hver tíu ár, sem héraðsdýralæknir hefur gegnt þjónustu, á hann rétt á að hljóta sex mánaða frí frá störfum með fullum launum til framhaldsnáms í samráði við [Landbúnaðarstofnun]. 1) Greiðir ríkissjóður fargjaldskostnað til þess lands þar sem hann hyggst dveljast og heim til Íslands að dvöl lokinni.
1)L. 76/2005, 1. gr.
II. Sé starf lagt niður á dýralæknir sem skipaður hefur verið eða ráðinn í þjónustu ríkisins fyrir gildistöku laga þessara rétt til biðlauna í samræmi við ákvæði í 34. gr. laga nr. 70/1996.