Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2008. Útgáfa 135a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um bílaleigur
2000 nr. 64 20. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 26. maí 2000. Breytt með l. 76/2002 (tóku gildi 17. maí 2002), l. 26/2006 (tóku gildi 3. maí 2006) og l. 108/2006 (tóku gildi 1. nóv. 2006 skv. augl. C 1/2006).
1. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda um leigu á skráningarskyldum ökutækjum í atvinnuskyni án ökumanns. Lögin taka þó ekki til starfsemi kaupleigu- eða fjármögnunarfyrirtækja eða leigu í eigin þágu eða til tengdra aðila.
Samgönguráðherra er heimilt með reglugerð að ákveða að eigi þurfi leyfi til leigu á tilteknum flokkum ökutækja eða fyrir tiltekinni leigustarfsemi.
2. gr. Orðskýringar.
[ Bílaleiga er starfsemi sem rekin er í atvinnuskyni þar sem almenningi eða fyrirtækjum er boðið til leigu skráningarskylt ökutæki, að jafnaði um skemmri tíma, sbr. þó 2. mgr. 6. gr.] 1)
Leigusamningur er samningur milli bílaleigu og leigutaka um leigu á bifreið eða öðru ökutæki til afnota gegn gjaldi.
Starfsleyfi er leyfi til reksturs bílaleigu.
1)L. 26/2006, 1. gr.
3. gr. Starfsleyfi.
Hver sá sem vill reka bílaleigu skal hafa til þess starfsleyfi [Vegagerðarinnar]. 1) Starfsleyfi skal veitt til fimm ára í senn að fenginni umsögn lögreglustjóra í því umdæmi sem bílaleiga mun hafa fasta starfsstöð. Gjald fyrir útgáfu starfsleyfis skal vera [25.000 kr.] 1)
[Vegagerðin] 1) skal halda skrá yfir þá sem leyfi hafa samkvæmt lögum þessum og birta hana með aðgengilegum hætti.
Þeim einum er heimilt að hafa orðið bílaleiga í nafni starfsemi sinnar sem hlotið hefur starfsleyfi samkvæmt lögum þessum.
[Bílaleiga á grundvelli starfsleyfis skal rekin á fastri starfsstöð sem opin skal almenningi á tilgreindum tíma.] 1) [Afgreiðslutími skal auglýstur á skýran og ótvíræðan hátt og við hann skal staðið.] 1) Bílaleiga getur á grundvelli starfsleyfis sett á fót útibú. Á fastri starfsstöð skal framkvæmdastjóri eða yfirmaður fullnægja skilyrðum 4. gr. Fyrirsvarsmaður útibús skal einnig fullnægja skilyrðum 4. gr.
Heimilt er leyfishafa að leggja inn til [Vegagerðarinnar] 1) starfsleyfi sitt. Honum er óheimilt að segja upp starfsábyrgðartryggingu sinni skv. 4. gr. fyrr en að fenginni staðfestingu [Vegagerðarinnar] 1) á innlögn leyfisins.
1)L. 26/2006, 2. gr. Við gildistöku þeirra laga skulu starfsleyfi sem gefin hafa verið út halda gildi sínu í samræmi við leyfistímann, sbr. brbákv s.l.
4. gr. Skilyrði starfsleyfis.
Framkvæmdastjóri bílaleigu samkvæmt lögum þessum og fyrirsvarsmaður útibús skulu fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
1. Hafa búsetu á Íslandi.
2. Hafa náð tuttugu ára aldri.
3. Vera lögráða og mega ekki á síðustu þremur árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld, lögum um sölu notaðra ökutækja, né lögum þessum.
4. Hafa forræði á búi sínu.
Áður en starfsleyfi er veitt skal umsækjandi leggja fram skírteini um að hann hafi tekið starfsábyrgðartryggingu hjá viðurkenndu vátryggingafélagi, aflað sér bankatryggingar eða lagt fram aðra tryggingu sem [Vegagerðin] 1) metur gilda til að bæta leigutökum tjón er hann kann að baka þeim vegna vanefndar á leigusamningi. Nánari ákvæði um ábyrgðartrygginguna, m.a. um lágmarksfjárhæð og vátryggingarskilmála, skulu ákveðin með reglugerð.
Meiri hluti stjórnarmanna lögaðila skal fullnægja skilyrðum 1. mgr. [Þó er stjórnarmaður sem er ríkisborgari aðildarríkis Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu og búsettur í einhverju þessara ríkja undanþeginn búsetuskilyrðum 1. tölul. 1. mgr. [sem og stjórnarmaður sem er Færeyingur og búsettur í Færeyjum]. 2)] 3) Ráðherra getur veitt ríkisborgurum annarra ríkja sömu undanþágu.
1)L. 26/2006, 3. gr. 2)L. 108/2006, 50. gr. 3)L. 76/2002, 36. gr.
5. gr. Skyldur bílaleigu.
Leyfishafi skal í hvívetna leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Hann skal gæta þess að viðskiptamenn hans njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör, svo og þess að aðila séu eigi settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir skilmálar í samningum. Leyfishafi ber ábyrgð á verkum starfsmanna sinna við leigu bíla sem væru þau verk hans sjálfs.
Skylt er að leyfisbréf til starfseminnar liggi frammi á starfsstöð og afrit þess í útibúum.
[Bílaleigu er óheimilt að leigja út ökutæki nema það sé sérstaklega skráð hjá Umferðarstofu sem ökutæki sem leigt er í atvinnuskyni án ökumanns.] 1)
Bílaleiga skal tryggja að skráningarskyld ökutæki til útleigu séu ætíð í góðu ásigkomulagi og fullnægi kröfum sem gerðar eru um þau.
Bílaleiga skal bjóða upp á bifreiðar til útleigu jafnt til almennings sem fyrirtækja. Ráðherra er heimilt með reglugerð að ákveða að bifreiðar bílaleigna skuli merktar sérstaklega.
1)L. 26/2006, 4. gr.
6. gr. Leigusamningur.
Leyfishafi skal sjá um að gengið sé frá leigusamningi. Leigusamningur skal vera undirritaður af báðum aðilum og skal hvor halda sínu eintaki. Í samningnum skal greina helstu atriði varðandi leigu ökutækisins eftir því sem nánar skal ákveðið í reglugerð. Samgönguráðherra getur með reglugerð birt form leigusamnings og kveðið á um skyldu bílaleigna til að nota það.
[Leigusamningur milli bílaleigu og leigutaka skal að jafnaði takmarkast við þrjár vikur ef ökutæki sem leigt er hefur notið lægri vörugjalda, sbr. 5. tölul. 2. mgr. 5. gr. laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o. fl., nr. 29/1993, með síðari breytingum. Ef ökutæki hefur ekki notið lægri vörugjalda eða 15 mánuðir eru liðnir frá nýskráningu ökutækis sem notið hefur lægri vörugjalda, sbr. 1. málsl., er bílaleigu heimilt að leigja það til lengri tíma.] 1)
Leyfishafi skal upplýsa erlenda leigutaka um íslenskar umferðarreglur, umferðarmerki og reglur um bann við umferð utan vega. Jafnframt skal leyfishafi vekja sérstaka athygli á hættu sem stafar af dýrum á vegum.
Varðveita skal leigusamning í a.m.k. eitt ár frá undirritun hans.
1)L. 26/2006, 5. gr.
7. gr. Leigutaki.
Óheimilt er að leigja bifreið eða annað ökutæki öðrum en þeim sem hafa réttindi til að stjórna bifreiðinni eða ökutækinu sem leigja á. Bílaleigu er þó heimilt að gera leigusamning við aðila sem ekki hefur tilskilin ökuréttindi, enda tilnefni hann ökumann skriflega og má sá aka bifreiðinni eða ökutækinu. Skal ökumaður uppfylla framangreind skilyrði.
8. gr. Reglugerð.
Samgönguráðherra setur með reglugerð 1) nánari ákvæði um leigustarfsemina og framkvæmd laganna að öðru leyti.
1)Rg. 790/2006.
9. gr. Refsiákvæði o.fl.
[Brot gegn 3., 5., 6. og 7. gr. laga þessara og reglugerðum settum samkvæmt þeim geta varðað sektum, nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum, og skal farið með mál út af slíkum brotum að hætti opinberra mála.] 1)
[Vegagerðin] 1) afturkallar starfsleyfi bílaleigu ef umsækjandi hefur veitt rangar eða villandi upplýsingar til að fá leyfið eða fullnægir ekki lengur skilyrðum laga þessara.
Nú rekur aðili starfsemi sem starfsleyfi þarf til samkvæmt lögum þessum án slíks leyfis og skal þá lögreglustjóri þegar í stað stöðva starfsemina, þar á meðal með lokun starfsstöðvar.
[Vegagerðin skal hafa eftirlit með því að ákvæðum laganna sé fylgt. Bílaleigu er skylt að veita Vegagerðinni allar upplýsingar sem varða starfsleyfi hennar. Vegagerðin getur afturkallað starfsleyfi bílaleigu veiti hún Vegagerðinni ekki umbeðnar upplýsingar. Vegagerðinni er heimilt að fela faggiltum skoðunarstofum að sinna eftirlitshlutverki sínu samkvæmt lögunum.] 1)
1)L. 26/2006, 6. gr.
[10. gr. Stjórnsýslukæra.
Ákvörðunum Vegagerðarinnar samkvæmt lögum þessum verður skotið til samgönguráðherra. Um málsmeðferð fer eftir ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.] 1)
1)L. 26/2006, 7. gr.
[11. gr.]1) Gildistaka o.fl.
Lög þessi öðlast þegar gildi. …
1)L. 26/2006, 7. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. Þær bílaleigur sem starfa við gildistöku laga þessara skulu uppfylla skilyrði laganna og afla sér starfsleyfis fyrir 1. september 2000.