Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2009. Útgáfa 136a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru
1994 nr. 22 29. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 11. apríl 1994. EES-samningurinn: I. viðauki tilskipun 70/524/EBE og 73/103/EBE, II. viðauki tilskipun 76/116/EBE og 77/535/EBE og I. viðauki tilskipun 87/153/EBE. Breytt með l. 73/1996 (tóku gildi 19. júní 1996), l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006), l. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008) og l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008).
I. kafli. Tilgangur, gildissvið og yfirstjórn.
1. gr. Tilgangur laga þessara er að tryggja bændum og öðrum notendum fullnægjandi vöru í samræmi við vörulýsingar og kröfur til landbúnaðarafurða um hollustuhætti.
2. gr. Lög þessi gilda um eftirlit með framleiðslu, geymslu og sölu á fóðri sem ætlað er búfé sem haldið er til matvælaframleiðslu og sölufóðri annarra dýra, svo og alla sáðvöru, tilbúinn áburð og önnur jarðvegsbætandi efni.
3. gr. [[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 1) fer með yfirstjórn þeirra mála sem lög þessi taka til. [Matvælastofnun] 1) fer með umsjón með framkvæmd laganna og reglugerða sem settar verða samkvæmt þeim.] 2)
Til aðstoðar [Matvælastofnun] 1) skipar [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 1) tvær nefndir til fjögurra ára í senn sem hafa það hlutverk að vera ráðgefandi um framkvæmd eftirlits samkvæmt lögum þessum:
1. Fóðurnefnd, skipuð þremur mönnum, [einum tilnefndum af Bændasamtökum Íslands], 3) einum tilnefndum af [Landbúnaðarháskóla Íslands] 4) og dýralækni tilnefndum af [Matvælastofnun]. 1) Ráðherra skipar formann nefndarinnar.
2. Sáðvöru- og áburðarnefnd, skipuð þremur mönnum, [einum tilnefndum af Bændasamtökum Íslands], 3) einum tilnefndum af [Landbúnaðarháskóla Íslands] 4) og einum skipuðum af [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 1) án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar.
1)L. 167/2007, 67. gr. 2)L. 76/2005, 19. gr. 3)L. 73/1996, 30. gr. 4)L. 76/2005, 21. gr.
II. kafli. [Matvælastofnun.]1)
1)L. 167/2007, 67. gr.
4. gr. [Matvælastofnun] 1) skal halda skrá yfir þá aðila sem framleiða hér á landi eða flytja inn þær vörur sem lög þessi taka til. Óheimilt er að skrá framleiðanda eða innflutningsaðila sem ekki sýnir fram á fullnægjandi aðstöðu fyrir þá starfsemi sem tilkynnt er um.
1)L. 167/2007, 67. gr.
5. gr. Óheimilt er að flytja til landsins, framleiða eða pakka hér á landi vörum sem lög þessi taka til nema tilkynna þær fyrst og láta skrá hjá [Matvælastofnun] 1) sem staðfestir skráningu vörunnar. [Matvælastofnun] 1) skal aðeins skrá vörur er þeim hefur verið lýst á fullnægjandi hátt.
[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 1) ákveður með reglugerð, að höfðu samráði við sérfræðinga [Landbúnaðarháskóla Íslands] 2) og ráðunauta [Bændasamtaka Íslands], 3) hvaða upplýsingar skylt er að láta fylgja vörum sem lög þessi ná yfir. Enn fremur skal kveðið á um merkingar og lýsingu á notkun einstakra vöruflokka.
1)L. 167/2007, 67. gr. 2)L. 76/2005, 21. gr. 3)L. 73/1996, 30. gr.
6. gr. [Matvælastofnun] 1) skal með sýnatökum fylgjast með að vörur þær, sem skráðar hafa verið, séu í samræmi við gildandi vörulýsingar. [Matvælastofnun] 1) skal hafa aðgang að eftirlitsskyldum vörum hvar og hvenær sem þess er óskað. Kaupandi vöru getur óskað eftir því að fram fari sérstök athugun á vegum [Matvælastofnunar] 1) vegna gruns um að varan sé ófullnægjandi. Kostnað af ítrekuðum tilefnislausum rannsóknum greiðir kaupandi samkvæmt reikningi.
Komi í ljós að vara uppfylli ekki uppgefnar vörulýsingar getur [Matvælastofnun] 1) krafist stöðvunar á dreifingu og sölu vörunnar.
1)L. 167/2007, 67. gr.
7. gr. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 1) setur með reglugerð 2) nánari ákvæði um sýnatöku og önnur atriði er varða framkvæmd [Matvælastofnunar], 1) svo og ákvæði um merkingar vöru og pökkun hennar og ákvæði um hámark óæskilegra efna eða bann við notkun þeirra.
1)L. 167/2007, 67. gr. 2)Rg. 301/1995, sbr. 202/1996, 783/2001, 352/2002, 678/2002, 784/2003, 300/2004, 386/2004, 514/2005, 659/2006, 895/2006, 919/2006, 422/2007, 991/2007, 1328/2007, 399/2008 og 818/2008; rg. 398/1995, sbr. 499/1996, 579/1999, 785/2001 og 301/2004; rg. 340/2001, sbr. 381/2001, 497/2001, 755/2001, 871/2001, 281/2002, 594/2002, 202/2003, 264/2003, 647/2003, 735/2003, 740/2003, 888/2003, 302/2004, 387/2004, 887/2004, 501/2005, 502/2005, 979/2005, 657/2006, 729/2006, 800/2006, 801/2006, 1018/2006, 1068/2006, 41/2007, 365/2007, 951/2007, 122/2008, 123/2008, 195/2008, 354/2008, 444/2008, 699/2008, 700/2008, 823/2008, 952/2008 og 1128/2008; augl. 690/2001, rg. 630/2007, sbr. 986/2007, 116/2008 og 1087/2008; rg. 820/2007, sbr. 679/2008 og 930/2008; rg. 672/2008, sbr. 1089/2008.
III. kafli. Eftirlitssjóður.
8. gr. Til að standa straum af kostnaði við framkvæmd [Matvælastofnunar] 1) skal innheimta eftirlitsgjald sem miða skal við raunkostnað við eftirlit með vörum þeim sem lög þessi ná til. Sértækt eftirlitsgjald skal greiða eftir reikningi.
Eftirlitsgjald af innfluttum vörum skal innheimt við tollafgreiðslu vörunnar. Af innlendri framleiðslu skal greiða gjaldið samkvæmt söluskýrslum sem skila ber tvisvar á ári. [Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 1) setur með reglugerð 2) nánari ákvæði um innheimtu á eftirlitsgjöldum, upphæð þeirra, álagningu, gjalddaga og annað er lýtur að framkvæmd á innheimtu gjaldanna. Eftirlitsgjöld má taka fjárnámi.
1)L. 167/2007, 67. gr. 2)Rg. 340/2001, sbr. 381/2001, 497/2001, 755/2001, 871/2001, 281/2002, 594/2002, 202/2003, 264/2003, 647/2003, 735/2003, 740/2003, 888/2003, 302/2004, 387/2004, 887/2004, 501/2005, 502/2005, 979/2005, 657/2006, 729/2006, 800/2006, 801/2006, 1018/2006, 1068/2006, 41/2007 og 365/2007.
IV. kafli. Refsiákvæði, gildistaka o.fl.
9. gr. Brot gegn lögum þessum og reglugerðum, sem settar verða samkvæmt þeim, varða sektum nema þyngri refsing liggi við að öðrum lögum.
… 1)
1)L. 88/2008, 233. gr.
10. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. …