Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2011. Útgáfa 139a. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um gjald af áfengi og tóbaki]1)
1995 nr. 96 28. júní
1)L. 149/2001, 3. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. september 1995. Breytt með l. 85/1996 (tóku gildi 19. júní 1996), l. 93/1998 (tóku gildi 1. júlí 1998), l. 104/2000 (tóku gildi 1. júlí 2000), l. 155/2000 (tóku gildi 1. jan. 2001), l. 149/2001 (tóku gildi 1. jan. 2002), l. 122/2002 (tóku gildi 29. nóv. 2002), l. 25/2004 (tóku gildi 1. júlí 2004), l. 118/2004 (tóku gildi 29. nóv. 2004), l. 85/2007 (tóku gildi 1. júlí 2007), l. 136/2008 (tóku gildi 12. des. 2008), l. 167/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 60/2009 (tóku gildi 30. maí 2009), l. 130/2009 (tóku gildi 30. des. 2009 nema 7.–9. gr. og 13.–42. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 164/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011 nema 2., 6., 22. og 26. gr. sem tóku gildi 31. des. 2010; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 29. gr.).
[I. kafli. Áfengisgjald.]1)
1)L. 149/2001, 1. gr.
1. gr. Greiða skal til ríkissjóðs sérstakt gjald, áfengisgjald, af áfengi samkvæmt lögum þessum.
Áfengi samkvæmt lögum þessum telst hver sá vökvi sem í er meira en 2,25% af vínanda að rúmmáli. Áfengismagn og áfengisinnihald skal ákveða við 20°C.
[Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skulu vörur sem innihalda meira en 2,25% af vínanda, en eru óhæfar til neyslu og ekki er hægt að gera neysluhæfar, undanþegnar áfengisgjaldi. Ráðherra getur með reglugerð ákveðið nánar hvaða vörur falla hér undir.] 1)
1)L. 93/1998, 1. gr.
2. gr. Gjaldskyldir samkvæmt lögum þessum eru allir þeir sem flytja inn eða framleiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu.
Gjaldskyldir eru enn fremur þeir sem flytja með sér til landsins áfengi til eigin nota, svo og þeir sem fá sent áfengi erlendis frá án þess að það sé til sölu eða vinnslu. Heimilt er með reglugerð að takmarka innflutning samkvæmt þessari málsgrein við ákveðnar vörutegundir, hámarksmagn eða hámarksverðmæti og að setja skilyrði fyrir því hverjir megi flytja inn samkvæmt henni.
3. gr. [Áfengisgjald skal vera sem hér segir á hvern sentilítra af vínanda í hverjum lítra hins áfenga drykkjar samkvæmt flokkun hans í tollskrá:
1. Af öli sem flokkast í vörulið 2203, svo og af vörum sem innihalda blöndur af öli og óáfengum drykk og flokkast í vörulið 2206: [86,90 kr.] 1) á hvern sentilítra umfram 2,25 sentilítra.
2. Af víni sem flokkast undir vöruliði 2204 og 2205, svo og af gerjuðum drykkjarvörum í vörulið 2206 sem ekki hafa verið blandaðar annarri gerjaðri drykkjarvöru eða óáfengri drykkjarvöru, enda sé varan að hámarki 15% að styrkleika og innihaldi eingöngu vínanda sem myndast við gerjun, án hvers kyns eimingar: [78,15 kr.] 1) á hvern sentilítra umfram 2,25 sentilítra.
3. Af öðru áfengi: [101,74 kr.] 1)
[4. Af áfengi sem selt er í tollfrjálsum verslunum sem falla undir ákvæði 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005: 10% af áfengisgjaldi skv. 1.–3. tölul.] 1)
Gjald skv. 1. mgr. skal reiknast hlutfallslega á brot af sentilítra af vínanda og brot af lítra hins áfenga drykkjar.
Ef umbúðir vöru greina ekki magn eða styrkleika áfengis sem aðilar sem tilgreindir eru í 2. mgr. 2. gr. flytja til landsins eða fá sent erlendis frá er tollyfirvöldum heimilt að meta magn eða styrkleika áfengis og ákvarða gjald samkvæmt því.] 2)
[Geri ferðamaður, skipverji eða flugverji grein fyrir áfengi á tollafgreiðsluhliði sem er umfram tollfrjálsar heimildir skv. 5.–7. tölul. 6. gr. ber honum einungis að greiða mismun áfengisgjalds skv. 1.–3. tölul. og skv. 4. tölul. 1. mgr., enda framvísi hann greiðslukvittun sem sýni fram á að áfengið hafi verið keypt í tollfrjálsri verslun hér á landi.] 1)
1)L. 164/2010, 11. gr. 2)L. 93/1998, 2. gr.
[4. gr.]1) Þeir sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skulu ótilkvaddir senda tilkynningu um starfsemi sína til [ríkisskattstjóra]. 2) Þeir sem hefja gjaldskylda starfsemi skulu senda tilkynningu áður en starfsemin hefst.
Í tilkynningu skal tilgreina nafn, firmanafn, heimili og kennitölu rekstraraðila og hvers konar framleiðslu eða innflutning sé um að ræða.
[Ríkisskattstjóri skal] 2) halda skrár yfir alla þá sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. laga þessara.
Fjármálaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um upplýsingaskyldu þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr., svo og skyldu þeirra til að halda framleiðslu- og birgðabókhald.
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)L. 93/1998, 4. gr.
[5. gr.]1) [Gjald af innfluttu áfengi skal greitt við tollafgreiðslu þess.
Af áfengi, sem framleitt er innan lands til sölu þar, reiknast gjald við sölu eða afhendingu vörunnar frá verksmiðju eða framleiðanda til kaupanda og skiptir ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla fer fram.
Þeir sem skyldir eru til að innheimta gjald skv. 2. mgr. skulu ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs í umdæmi því þar sem þeir eru heimilisfastir áfengisgjald sem þeim ber að standa skil á. Greiðslu skal fylgja skýrsla á þar til gerðu eyðublaði um hina gjaldskyldu sölu.
Fjármálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð 2) nánari ákvæði um innheimtu gjalds, þar á meðal að veita allt að tveggja vikna greiðslufrest og er þá hvert uppgjörstímabil tvær vikur, frá 1. til 15. hvers mánaðar og frá 16. til loka hvers mánaðar. Gjalddagi er annar virkur dagur eftir lok uppgjörstímabils.] 3)
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)Rg. 390/1999, sbr. 898/1999 og 433/2005. 3)L. 25/2004, 1. gr.
[5. gr. a. Sé áfengisgjald ekki greitt á gjalddaga, sbr. 5. gr., skal aðili sæta álagi til viðbótar því gjaldi sem honum ber að standa skil á. Sama gildir ef framleiðandi áfengis hefur ekki skilað áfengisgjaldsskýrslu eða henni verið ábótavant og áfengisgjald því áætlað, nema hann hafi greitt fyrir gjalddaga upphæð er til áætlunar svarar eða gefið fyrir lok kærufrests fullnægjandi skýringu á vafaatriðum.
Álag skv. 1. mgr. skal vera 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.
Sé áfengisgjald ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Dráttarvextir skulu reiknaðir frá og með gjalddaga.
Verði vanskil á greiðslu áfengisgjalds skal tollstjóri synja innflytjanda eða framleiðanda áfengis um frekari greiðslufrest meðan vanskil vara.
Ef um er að ræða ítrekuð eða stórfelld vanskil á greiðslu áfengisgjalds, álags skv. 2. mgr. eða dráttarvaxta skv. 3. mgr. getur tollstjóri án fyrirvara stöðvað tollafgreiðslu á öðrum vörum til skuldara eða látið lögreglu stöðva atvinnurekstur skuldarans, m.a. með því að setja starfsstöðvar, skrifstofur, útsölur, tæki og vörur undir innsigli þar til full skil eru gerð, enda telji tollstjóri hagsmuni ríkissjóðs ekki verða tryggða með öðrum hætti.] 1)
1)L. 25/2004, 2. gr.
[6. gr.]1) [Áfengisgjald skal fellt niður eða endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:] 2)
1. Við sölu áfengis úr landi.
2. [Við innflutning og sölu á áfengi til tollfrjálsra verslana og tollfrjálsra forðageymslna, [sbr. þó 4. tölul. 1. mgr. 3. gr.] 3) Jafnframt af áfengi sem áfengisgjald hefur verið reiknað eða greitt af en er síðar sent til útlanda, í tollfrjálsa verslun, í tollvörugeymslu, í tollfrjálsa forðageymslu eða á frísvæði eða er fargað undir eftirliti tollyfirvalda.] 4)
3. Við innflutning og sölu á áfengi til aðila sem njóta skattfrelsis hér á landi samkvæmt alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og aðila sem ríkisstjórn ákveður.
4. Við innflutning og sölu á áfengi til framleiðslu á vörum sem eru gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum til framleiðenda sem hafa leyfi til að selja áfengi skv. 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. áfengislaga.
5. [Af áfengi sem ferðamenn hafa meðferðis til landsins sem hér segir:
a. 1 lítra af sterku áfengi og 1 lítra af léttvíni, eða
b. 3 lítra af léttvíni, eða
c. 1 lítra af sterku áfengi eða 1,5 lítra af léttvíni og 6 lítra af öli.
6. Af áfengi sem skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila hafa meðferðis eftir að hafa verið 15 daga eða lengur í ferð, sem hér segir:
a. 1,5 lítra af sterku áfengi og 3 lítra af léttvíni, eða
b. 1,5 lítra af sterku áfengi eða léttvíni og 24 lítra af öli.
Ef sömu aðilar hafa verið skemur en 15 daga í ferð skulu þeir njóta að hálfu réttinda samkvæmt þessum lið. Skipstjóra, yfirstýrimanni, yfirvélstjóra og bryta, svo og matsveinum á farþega- og vöruflutningaskipum, er jafnframt heimilt að taka gjaldfrjálst aukalega til risnu um borð jafnstóran skammt og þeir mega hafa gjaldfrjálst samkvæmt þessum lið.
7. Af áfengi sem flugverjar, þ.m.t. flugverjar í aukaáhöfn, hafa meðferðis, eftir að hafa verið 15 daga eða lengur í ferð, sem hér segir:
a. 1 lítra af sterku áfengi og 0,75 lítra af léttvíni, eða
b. 1 lítra af sterku áfengi eða 0,75 lítra af léttvíni og 6 lítra af öli.
Hafi ferð varað skemur en 15 daga er sömu aðilum heimilt að hafa meðferðis gjaldfrjálst:
a. 0,375 lítra af sterku áfengi og 0,75 lítra af léttvíni, eða
b. 0,375 lítra af sterku áfengi eða 0,75 lítra af léttvíni og 3 lítra af öli.] 5)
[[8. ] 5) Af áfengi, sem talið er upp í lyfjaskrá, til lækna og lyfsala til sölu sem lyf.
[9. ] 5) Af áfengi til iðnþarfa samkvæmt nánari skilgreiningu fjármálaráðherra.] 2)
… 4)
[Fjármálaráðherra setur með reglugerð 6) nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar, m.a. um skilyrði niðurfellingar eða endurgreiðslu.] 2)
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)L. 93/1998, 5. gr. 3)L. 164/2010, 12. gr. 4)L. 104/2000, 15. gr. 5)L. 167/2008, 9. gr. 6)Rg. 630/2008, sbr. 634/2008.
[7. gr.]1) [Af innheimtu áfengisgjaldi þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skal 1% renna í Forvarnasjóð. 2) Tilgangur sjóðsins skal vera að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu. Styrki skal veita úr sjóðnum til forvarnastarfa á verkefnagrundvelli. Áfengis- og vímuvarnaráð gerir tillögur til [velferðarráðherra] 3) um veitingu styrkja úr Forvarnasjóði.
… 4)] 5)
1)L. 93/1998, 3. gr. 2)Rg. 537/1995. 3)L. 162/2010, 65. gr. 4)L. 85/2007, 28. gr. 5)L. 93/1998, 6. gr.
[II. kafli. Tóbaksgjald]1)
1)L. 149/2001, 2. gr.
[8. gr. Greiða skal til ríkissjóðs sérstakt gjald, tóbaksgjald, af tóbaki sem flutt er hingað til lands eða er framleitt hér á landi.
Tóbak telst samkvæmt lögum þessum vera sérhver vara sem flokkast í 24. kafla í viðauka I við tollalög, nr. 55/1987, með síðari breytingum.] 1)
1)L. 149/2001, 2. gr.
[9. gr. [Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins leggur á og innheimtir tóbaksgjald af tóbaksvörum sem hafa verið fluttar hingað til lands eða framleiddar hér á landi.] 1)
Fjárhæð tóbaksgjalds skv. 1. mgr. skal vera sem hér segir:
1. Vindlingar: [347,90 kr.] 2) á hvern pakka (20 stk.).
2. Neftóbak: [4,12 kr.] 2) á hvert gramm eða hluta úr grammi vöru.
3. Annað tóbak: [12,45 kr.] 2) á hvert gramm eða hluta úr grammi vöru.
[4. Af tóbaki sem selt er í tollfrjálsum verslunum sem falla undir ákvæði 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005: 40% af tóbaksgjaldi skv. 1.–3. tölul.] 2)
Uppgjörstímabil tóbaksgjalds samkvæmt þessari grein er einn mánuður. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er fimmti dagur næsta mánaðar eftir lok þess. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal greiða tollstjóranum í Reykjavík innheimt gjald eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils.
[Geri ferðamaður, farmaður eða aðrir grein fyrir tóbaki á tollafgreiðsluhliði sem er umfram tollfrjálsar heimildir skv. 2. mgr. 10. gr. ber honum einungis að greiða mismun tóbaksgjalds skv. 1.–3. tölul. og skv. 4. tölul. 2. mgr., enda framvísi hann greiðslukvittun sem sýni fram á að tóbakið hafi verið keypt í tollfrjálsri verslun hér á landi.] 2)] 3)
1)L. 25/2004, 3. gr. 2)L. 164/2010, 13. gr. 3)L. 149/2001, 2. gr.
[10. gr. Af tóbaki sem ferðamenn, farmenn og aðrir hafa með sér til landsins til einkanota eða er sent hingað til lands án þess að um innflutning í atvinnuskyni sé að ræða skal við tollafgreiðslu greiða tóbaksgjald sem hér segir:
1. Vindlingar: [437,00 kr.] 1) á hvern pakka (20 stk.).
2. Annað tóbak: [21,85 kr.] 1) á hvert gramm eða hluta úr grammi vöru.
[Tóbak sem ferðamenn eða farmenn hafa meðferðis, [sbr. þó 4. tölul. 2. mgr. 9. gr.], 1) til landsins skal undanþegið gjaldi skv. 1. mgr. að því hámarki sem hér segir:
1. 100 vindlingar eða 125 g af öðru tóbaki sem flugverjar er hafa verið skemur en 15 daga í ferð hafa meðferðis.
2. 200 vindlingar eða 250 g af öðru tóbaki sem ferðamenn, skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila er hafa verið skemur en 15 daga í ferð hafa meðferðis og flugverjar, þ.m.t. flugverjar í aukaáhöfn, er hafa verið 15 daga eða lengur í ferð hafa meðferðis.
3. 400 vindlingar eða 500 g af öðru tóbaki sem skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila er hafa verið 15 daga eða lengur í ferð hafa meðferðis.] 2)] 3)
1)L. 164/2010, 14. gr. 2)L. 167/2008, 10. gr. 3)L. 149/2001, 2. gr.
[III. kafli. Almenn ákvæði.]1)
1)L. 149/2001, 1. gr.
[11. gr. Úrskurður tollstjóra um niðurfellingu eða endurgreiðslu áfengis- og tóbaksgjalds skv. 6. gr. og 2. mgr. 10. gr. sætir kæru til fjármálaráðherra í samræmi við 102. gr. tollalaga, nr. 55/1987. Þá skulu ákvæði tollalaga gilda að því leyti sem lög þessi kveða ekki á um gjaldskyldu, gjaldfrelsi, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, álagningu, innheimtu, lögvernd, viðurlög, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjald af innfluttu áfengi og tóbaki.
Að því leyti sem ekki eru ákvæði í lögum þessum um álagningu, innheimtu, tilhögun bókhalds, framtöl, eftirlit, stöðvun atvinnurekstrar, viðurlög, sektir, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjald samkvæmt lögum þessum af áfengi og tóbaki, sem er framleitt eða unnið að einhverju leyti hér á landi, skulu gilda eftir því sem við getur átt ákvæði laga um virðisaukaskatt og ákvæði reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim lögum, svo og ákvæði laga um vörugjald.] 1)
1)L. 149/2001, 2. gr.
[12. gr. Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð 1) nánari fyrirmæli um framkvæmd ákvæða laga þessara um áfengisgjald og tóbaksgjald.] 2)
1)Rg. 505/1998, sbr. 527/2000 og 437/2005. Rg. 1082/2004. 2)L. 149/2001, 2. gr.
[13. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. september 1995.
1)L. 149/2001, 2. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. …