Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 15. september 2015. Útgáfa 144b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild handa ríkisstjórninni til þess að afhenda þjóðkirkju Íslands Skálholtsstað
1963 nr. 32 26. apríl
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 15. maí 1963.
1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að afhenda þjóðkirkju Íslands endurgjaldslaust til eignar og umsjár jörðina Skálholt í Biskupstungum ásamt öllum mannvirkjum og lausafé, sem nú eru í eign ríkisins á staðnum, enda veiti biskup Íslands og kirkjuráð eign þessari viðtöku fyrir hönd þjóðkirkju Íslands, og hafi þar forræði um framkvæmdir og starfrækslu.
2. gr. Ríkissjóður skal árlega greiða kr. 1.000.000,00 í sjóð, sem vera skal til áframhaldandi uppbyggingar í Skálholti og rekstrarfé þeirrar starfrækslu, sem biskup og kirkjuráð koma þar upp.
Stjórn sjóðsins skipar kirkjuráð.
Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af ríkisendurskoðuninni, og skulu þeir birtir í Stjórnartíðindum.