Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. nóvember 2017. Útgáfa 147. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um hefðbundinn herafla í Evrópu og samnings um opna lofthelgi
1994 nr. 90 9. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 3. júní 1994. Breytt með l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við utanríkisráðherra eða utanríkisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Eftirlitsmenn og flutningsáhafnir, sem starfa á grundvelli samnings frá 19. nóvember 1990 um hefðbundinn herafla í Evrópu og samnings frá 24. mars 1992 um opna lofthelgi, skulu njóta þeirrar friðhelgi, forréttinda og undanþágna hér á landi sem kveðið er á um í samningunum.
2. gr. [Ráðherra] 1) getur sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
1)L. 126/2011, 196. gr.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.