Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 3. maí 2019. Útgáfa 149b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um viðauka við 1. gr. laga nr. 29 16. desember 1885, um lögtak og fjárnám án undangengins dóms eða sáttar
1915 nr. 31 3. nóvember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 28. janúar 1916.
Gjöld til kirkjufélaga utan þjóðkirkjunnar, er fengið hafa sér löggiltan prest eða forstöðumann, má taka lögtaki, enda sé niðurjöfnun á gjöldunum eða gjaldskrá staðfest af stjórnarráðinu.