Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 20. september 2019. Útgáfa 149c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra
2006 nr. 162 21. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 2007 en ákvæði laganna um prófkjör tóku gildi 1. júní 2007. Breytt með: L. 99/2009 (tóku gildi 8. sept. 2009). L. 119/2010 (tóku gildi 1. okt. 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 139/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 15. gr.).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Markmið.
[Tilgangur laga þessara er að kveða á um framlög til frambjóðenda í kjöri til embættis forseta Íslands, til Alþingis og til sveitarstjórna, opinber og almenn fjárframlög til stjórnmálasamtaka og stjórnmálastarfsemi og draga úr hættu á hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi í fjármálum.] 1) Markmið laganna er að auka traust á stjórnmálastarfsemi, [tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði og gagnsæi stjórnmála]. 2)
1)L. 119/2010, 1. gr. 2)L. 139/2018, 1. gr.
2. gr. Skilgreiningar.
Í lögum þessum hafa eftirfarandi orð og hugtök merkingu sem hér segir:
1. Stjórnmálasamtök: Flokkar eða samtök sem bjóða fram í kosningum til Alþingis eða sveitarstjórna.
2. Prófkjör: Kosningar sem stjórnmálasamtök halda til að velja fulltrúa á framboðslista við kosningar til Alþingis eða sveitarstjórna.
3. [ Frambjóðendur: Þátttakendur í persónukjöri í forsetakosningum, kosningum til Alþingis og kosningum til sveitarstjórna og þátttakendur í prófkjörum stjórnmálasamtaka.] 1)
4. Framlög: Framlög til starfsemi stjórnmálasamtaka eða frambjóðenda eða kosningabaráttu, hvort heldur eru bein fjárframlög eða önnur gæði sem metin verða til fjár, án tillits til þess hvaðan þau koma eða hvers eðlis þau eru. Til framlaga í þessum skilningi teljast allir afslættir af [vörum og þjónustu sem veittir eru af markaðsverði og standa öðrum viðskiptamönnum ekki til boða], 2) ívilnanir og eftirgjöf, þar með taldir afslættir af markaðsverði auglýsinga, eftirgjöf eftirstöðva skulda, óvenjuleg lánakjör o.s.frv., [sem og sala stjórnmálasamtaka á vörum og þjónustu á yfirverði]. 1) Ef afsláttur hefur verið veittur af markaðsverði skal mismunur markaðsverðs og raunverðs tilgreindur sem framlag í reikningum. Önnur framlög, svo sem endurgjaldslaust lán vinnuafls, aðstöðu eða búnaðar, skulu metin til peningaverðs á gangverði eða markaðsverði á hverjum tíma og tilgreind í reikningum á því verði.
5. [ Tengdir aðilar:
a. Lögaðilar þar sem svo háttar til að annar aðili er í raun undir stjórn hins þar sem sá síðarnefndi á meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í þeim fyrrnefnda, sbr. einnig 2. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, 2. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, og 4. tölul. 2. gr. laga um ársreikninga, nr. 3/2006, um skilgreiningu á móðurfélagi og dótturfélagi.
b. Lögaðilar þar sem svo háttar til að einstaklingur á meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í báðum eða öllum lögaðilunum.] 2)
6. Endurskoðendur: Löggildir endurskoðendur samkvæmt ákvæðum laga um endurskoðendur.
7. Þingflokkar: Samtök þingmanna sem uppfylla skilyrði þingskapa til að teljast þingflokkur.
1)L. 119/2010, 2. gr. 2)L. 139/2018, 2. gr.
II. kafli. Framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi.
3. gr. Framlög til stjórnmálasamtaka úr ríkissjóði.
[Stjórnmálasamtök sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn á Alþingi í næstliðnum alþingiskosningum eiga rétt á 12 millj. kr. grunnrekstrarframlagi úr ríkissjóði á ári hverju. Ný stjórnmálasamtök sem fá mann kjörinn á Alþingi eiga rétt á greiðslu styrks fyrir kosningaárið hlutfallslega miðað við kjördag.
Árlega skal úthluta fé úr ríkissjóði til starfsemi stjórnmálasamtaka sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn á Alþingi eða hlotið hafa a.m.k. 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum samkvæmt ákvörðun í fjárlögum hverju sinni. Árleg heildarfjárveiting til stjórnmálasamtaka skal koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með hliðsjón af breytingum á vísitölum verðlags og launa. Heildarfjárhæðinni skal úthlutað til stjórnmálasamtaka í hlutfalli við atkvæðamagn fyrir 25. janúar ár hvert.] 1)
[[Stjórnmálasamtök sem bjóða fram í þremur kjördæmum eða fleiri í kosningum til Alþingis geta að loknum kosningum sótt um sérstakan fjárstyrk úr ríkissjóði til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu, að hámarki 750.000 kr. fyrir hvert kjördæmi sem boðið er fram í.] 1) Umsóknum um fjárstyrk vegna kosningabaráttu skal beint til [ráðuneytisins] 2) og skulu umsóknir berast eigi síðar en þremur mánuðum eftir að kosningar fóru fram. Umsóknum skal fylgja afrit reikninga fyrir kostnaði sem fjárstyrk er ætlað að mæta. [Ráðuneytið] 3) getur sett nánari reglur um form umsókna og fylgigagna sem og um það hvaða kostnaður geti talist kostnaður við kosningabaráttu.
[Skilyrði fyrir úthlutun á fé úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka skv. 1. og 2. mgr. er að viðkomandi samtök hafi áður uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda skv. 8. og 9. gr. og að ríkisendurskoðandi hafi birt ársreikning viðkomandi samtaka.] 1)] 4)
1)L. 139/2018, 3. gr. 2)L. 126/2011, 444. gr. 3)L. 162/2010, 188. gr. 4)L. 119/2010, 3. gr.
4. gr. Framlög til þingflokka úr ríkissjóði.
Árlega skal úthluta fé úr ríkissjóði til starfsemi þingflokka á Alþingi samkvæmt ákvörðun á fjárlögum hverju sinni. Greiða skal jafna fjárhæð fyrir hvern þingmann og nefnist hún eining. Að auki skal greiða eina einingu fyrir hvern þingflokk. Því til viðbótar skal úthluta fjárhæð sem svarar tólf einingum til þingflokka þeirra stjórnmálasamtaka sem eiga ekki aðild að ríkisstjórn og skiptast þær einingar hlutfallslega milli þeirra. Forsætisnefnd Alþingis getur sett nánari reglur um greiðslur samkvæmt þessari grein.
5. gr. Framlög til stjórnmálasamtaka frá sveitarfélögum.
[Sveitarfélögum er skylt að veita stjórnmálasamtökum sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í sveitarstjórn eða hlotið a.m.k. 5% atkvæða í næstliðnum sveitarstjórnarkosningum árleg fjárframlög til starfsemi sinnar. Ákvörðun um slík framlög tekur sveitarstjórn samhliða samþykkt fjárhagsáætlunar ár hvert. Fjárhæðinni skal úthlutað ár hvert í hlutfalli við atkvæðamagn. Skilyrði úthlutunar á fé frá sveitarstjórnum er að viðkomandi stjórnmálasamtök hafi áður uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda.] 1)
[Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga [setur] 1) viðmiðunarreglur til að stuðla að samræmdri framkvæmd á greiðslum framlaga frá sveitarfélögum til stjórnmálasamtaka samkvæmt þessari grein. [Reglurnar skal taka til endurskoðunar árlega.] 1) Á því ári sem sveitarstjórnarkosningar eru skal úthlutun framlaga fara fram á þann hátt að stjórnmálasamtök fái framlög fyrir síðari hluta þess árs í samræmi við kjörfylgi í nýafstöðnum kosningum.] 2)
1)L. 139/2018, 4. gr. 2)L. 119/2010, 4. gr.
III. kafli. Almenn framlög til stjórnmálastarfsemi.
6. gr. Móttaka framlaga.
Stjórnmálasamtökum og frambjóðendum er heimilt að taka á móti framlögum til starfsemi sinnar eða til kosningabaráttu með þeim takmörkunum sem leiðir af 2.–5. mgr. þessarar greinar og ákvæðum 7. gr.
Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá óþekktum gefendum. [Berist stjórnmálasamtökum eða frambjóðanda framlag frá óþekktum gefanda skal skila framlaginu í ríkissjóð enda hafi ekki gefist tækifæri til að hafna móttöku þess.] 1)
Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá fyrirtækjum að meiri hluta í eigu, eða undir stjórn, ríkis eða sveitarfélaga.
Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá opinberum aðilum sem ekki rúmast innan ákvæða II. kafla.
Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá erlendum ríkisborgurum, fyrirtækjum eða öðrum aðilum sem skráðir eru í öðrum löndum. Bann þetta tekur þó ekki til framlaga frá erlendum ríkisborgurum sem njóta kosningaréttar hér á landi skv. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 5/1998, um kosningar til sveitarstjórna.
1)L. 119/2010, 5. gr.
7. gr. [Hámarksframlög og kostnaður vegna kosningabaráttu.]1)
[Stjórnmálasamtökum er óheimilt að taka á móti hærri framlögum frá lögaðilum en sem nemur 550.000 kr. á ári. Stjórnmálafélögum innan samstæðu stjórnmálasamtaka er þó heimilt að taka á móti framlögum frá lögaðilum umfram þá fjárhæð, samtals að hámarki 100.000 kr. Frambjóðendum er óheimilt að taka á móti hærri framlögum frá lögaðilum en sem nemur 400.000 kr. á ári. Undanþegnir hámarki framlaga eru afslættir af vörum og þjónustu sem veittir eru af markaðsverði og standa öðrum viðskiptamönnum almennt til boða og slíkir afslættir séu sérgreindir í reikningum. Lögaðilar sem inna af hendi framlög til stjórnmálasamtaka eða frambjóðenda skulu sérgreina heildarfjárhæð slíkra framlaga í ársreikningum sínum. Telja skal saman framlög tengdra aðila.] 1)
[Stofnframlög, þ.e. framlög frá lögráða einstaklingum og lögaðilum sem eru veitt í beinum tengslum við stofnun stjórnmálasamtaka, mega að hámarki nema sem svarar til tvöföldu hámarksframlagi [skv. 1. málsl. 1. mgr.] 1)] 2)
[Stjórnmálasamtökum er heimilt að taka á móti framlögum frá lögráða einstaklingum sem nemur allt að 550.000 kr. á ári. Stjórnmálafélögum innan samstæðu stjórnmálasamtaka er þó heimilt að taka á móti framlögum frá einstaklingum umfram þetta, samtals að hámarki 100.000 kr. Frambjóðendum er heimilt að taka á móti framlögum frá lögráða einstaklingum sem nemur allt að 400.000 kr. á ári.] 1)
Heildarkostnaður frambjóðenda [af kosningabaráttu í kosningum til Alþingis eða sveitarstjórna] 2) má ekki vera hærri en sem nemur [2 millj. kr.], 1) að viðbættu álagi sem hér segir:
Á kjörsvæði með fleiri en 50.000 íbúa, 18 ára og eldri, [140 kr.] 1) fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 40.000–49.999 íbúa, 18 ára og eldri, [185 kr.] 1) fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 20.000–39.999 íbúa, 18 ára og eldri, [230 kr.] 1) fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 10.000–19.999 íbúa, 18 ára og eldri, [275 kr.] 1) fyrir hvern.
Á kjörsvæði með færri en 10.000 íbúa, 18 ára og eldri, [320 kr.] 1) fyrir hvern.
[Heildarkostnaður frambjóðanda í forsetakosningum af kosningabaráttu má ekki vera hærri en sem nemur tvöfaldri þeirri fjárhæð sem tiltekin er í 4. mgr. á hvern íbúa á kjörskrá fyrir landið allt.] 2)
1)L. 139/2018, 5. gr. 2)L. 119/2010, 6. gr.
IV. kafli. Reikningsskil og upplýsingaskylda stjórnmálasamtaka.
8. gr. Reikningsskil stjórnmálasamtaka.
Stjórnmálasamtök skulu halda samstæðureikning fyrir allar einingar sem undir þau falla, svo sem sérsambönd, kjördæmisráð, eignarhaldsfélög og tengdar sjálfseignarstofnanir. Heimilt er að halda flokkseiningum utan samstæðureikningsskila ef tekjur þeirra eru undir [550.000 kr.] 1) á ári. Við gerð ársreikninga skal farið að efnisreglum laga um ársreikninga eins og við á. [Í ársreikningi skulu tekjur sundurliðaðar eftir uppruna þannig að greint sé á milli ríkisframlags, framlaga frá sveitarfélögum, framlaga frá lögaðilum, félagsgjalda og framlaga frá einstaklingum. Meðal meginflokka gjalda skal tilgreina kostnað vegna alþingiskosninga og sveitarstjórnarkosninga, eftir atvikum. Í skýringum skal kostnaður vegna alþingiskosninga og sveitarstjórnarkosninga sundurliðaður samkvæmt nánari leiðbeiningum ríkisendurskoðanda. Greina skal sérstaklega alla móttekna afslætti frá markaðsverði sem almennt standa öðrum viðskiptamönnum ekki til boða, virði framlaga sem veitt eru í öðrum gæðum en fjárframlögum sem og sölu á þjónustu, vöru eða eignum á yfirverði. Ríkisendurskoðandi gefur út frekari leiðbeiningar um reikningsskil stjórnmálasamtaka.] 1)
Stjórnmálasamtök skulu fela endurskoðendum að endurskoða reikninga sína. Endurskoðendur skulu starfa eftir leiðbeiningum [ríkisendurskoðanda] 2) og sannreyna að samstæðureikningurinn sé saminn í samræmi við ákvæði laga þessara og almennar reikningsskilareglur og staðfesta það álit með áritun á reikninginn. [Ríkisendurskoðandi] 2) getur hvenær sem er kallað eftir öllum gögnum til að staðreyna [reikninga og] 3) að framlög einstaklinga og lögaðila séu innan þeirra marka sem greinir í III. kafla.
1)L. 139/2018, 6. gr. 2)L. 139/2018, 7. gr. 3)L. 119/2010, 7. gr.
9. gr. Upplýsingaskylda um reikninga stjórnmálasamtaka.
[Stjórnmálasamtök skulu fyrir 1. nóvember ár hvert skila ríkisendurskoðanda reikningum sínum fyrir síðastliðið ár, sbr. 8. gr., árituðum af endurskoðendum. Ríkisendurskoðandi skal í kjölfarið, eins fljótt og unnt er, birta ársreikning stjórnmálasamtaka. Auk þess skal ríkisendurskoðandi birta nöfn allra lögaðila sem veita framlög til stjórnmálastarfsemi sem og fjárhæð þeirra. Einnig skal birta nöfn einstaklinga sem veitt hafa framlög sem eru metin á meira en 300.000 kr.] 1)
1)L. 139/2018, 8. gr.
V. kafli. Reikningsskil og upplýsingaskylda í persónukjöri.
10. gr. Reikningsskil frambjóðenda í persónukjöri.
[Frambjóðendur skulu gera uppgjör fyrir kosningabaráttu sína þar sem greint er frá öllum framlögum og útgjöldum vegna hennar í samræmi við almennar reikningsskilareglur og skal uppgjörið áritað af endurskoðanda eða bókhaldsfróðum skoðunarmanni. [Tekjur skulu sundurliðaðar eftir uppruna þannig að greint sé á milli ríkisframlags, framlaga frá sveitarfélögum, framlaga frá lögaðilum, félagsgjalda og framlaga frá einstaklingum og einnig greint frá helstu stærðum í efnahagsreikningi. Greina skal sérstaklega alla móttekna afslætti frá markaðsverði sem almennt standa öðrum viðskiptamönnum ekki til boða, virði framlaga sem veitt eru í öðrum gæðum en fjárframlögum sem og sölu á þjónustu, vöru eða eignum á yfirverði.] 1) Miða skal uppgjörstímabil við það tímamark þegar kosningabarátta frambjóðanda hefst. Þegar um prófkjör er að ræða skal miða uppgjörstímabil við það tímamark þegar prófkjör er auglýst nema kosningabarátta frambjóðanda hafi hafist fyrr. Þegar um forsetakjör er að ræða skal miða uppgjörstímabil við það tímamark þegar framboði er skilað til [ráðuneytisins] 2) nema kosningabarátta frambjóðanda hafi hafist fyrr. Miða skal lok uppgjörstímabils við það tímamark þegar reikningum er skilað til [ríkisendurskoðanda] 3) skv. 11. gr. [Ríkisendurskoðandi] 3) gefur út leiðbeiningar um uppgjör fyrir kosningabaráttu og um upplýsingaskyldu um uppgjörið.
[Ríkisendurskoðandi] 3) getur hvenær sem er kallað eftir öllum gögnum til að staðreyna að kostnaður við kosningabaráttu og framlög einstaklinga og lögaðila til frambjóðanda séu innan þeirra marka sem greinir í III. kafla.
Frambjóðendur eru undanþegnir uppgjörsskyldu ef heildartekjur eða heildarkostnaður við kosningabaráttu er ekki umfram [550.000 kr.] 1)] 4)
1)L. 139/2018, 9. gr. 2)L. 126/2011, 444. gr. 3)L. 139/2018, 7. gr. 4)L. 119/2010, 9. gr.
11. gr. Upplýsingaskylda um reikninga yfir kosningabaráttu.
[Frambjóðendur skulu skila [ríkisendurskoðanda] 1) árituðum reikningum sínum eigi síðar en þremur mánuðum frá því að kosning fór fram. [Ríkisendurskoðandi] 1) skal í kjölfarið, eins fljótt og unnt er, birta [áritaðan reikning frambjóðenda]. 2) … 2) Birta skal nöfn allra lögaðila sem veita framlög til kosningabaráttu frambjóðandans sem og fjárhæð þeirra. Einnig skal birta nöfn einstaklinga sem veitt hafa framlög sem eru metin á meira en [300.000 kr.] 2) til kosningabaráttu frambjóðandans.
Ef uppgjör vegna kosningabaráttu sýnir jákvæða eða neikvæða fjárhagsstöðu skal frambjóðandi árlega skila nýju uppgjöri til [ríkisendurskoðanda] 1) eða allt þar til umframfjármunum hefur verið ráðstafað eða skuld verið greidd.] 3)
1)L. 139/2018, 7. gr. 2)L. 139/2018, 10. gr. 3)L. 119/2010, 10. gr.
VI. kafli. [Gagnsæi í stjórnmálabaráttu, viðurlög og gildistaka.]1)
1)L. 139/2018, 13. gr.
[12. gr. Bann við nafnlausum áróðri.
Stjórnmálasamtökum, kjörnum fulltrúum þeirra og frambjóðendum, sem og frambjóðendum í persónukjöri, er óheimilt að fjármagna, birta eða taka þátt í birtingu efnis eða auglýsinga í tengslum við stjórnmálabaráttu nema fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra.] 1)
1)L. 139/2018, 11. gr.
[13. gr.]1) Viðurlög.
[Hver sem tekur við framlögum, eða jafnvirði þeirra, sem óheimilt er að veita viðtöku skv. 6. gr. eða hærri framlögum en heimilt er skv. 7. gr. skal sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
Hver sem skilar ekki upplýsingum eða skýrslum samkvæmt ákvæðum laga þessara til [ríkisendurskoðanda] 2) innan tilgreindra tímamarka skal sæta sektum. Sama gildir séu veittar upplýsingar ekki í samræmi við settar reglur.
[Stjórnmálasamtök, kjörnir fulltrúar þeirra og frambjóðendur, sem og frambjóðendur í persónukjöri, sem taka þátt í að fjármagna eða birta efni eða auglýsingar í tengslum við stjórnmálabaráttu án þess að fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra, sbr. 12. gr., skulu sæta sektum.] 3)
Gera skal lögaðilum sekt fyrir brot á [1.–3. mgr.] 3)
Refsa skal fyrir brot samkvæmt þessari grein séu þau framin af ásetningi eða gáleysi.
Tilraun og hlutdeild í brotum samkvæmt þessari grein er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga.
Heimilt er að gera upptæk til ríkissjóðs framlög sem tekið er við án heimilda eða umfram heimildir samkvæmt lögum þessum eftir því sem segir í VII. kafla A almennra hegningarlaga.] 4)
1)L. 139/2018, 11. gr. 2)L. 139/2018, 7. gr. 3)L. 139/2018, 12. gr. 4)L. 119/2010, 11. gr.
[14. gr.]1) Gildistaka og brottfall lagaákvæða.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2007. Ákvæði laganna um prófkjör taka þó ekki gildi fyrr en 1. júní 2007.
…
1)L. 139/2018, 11. gr.
VII. kafli. …
Ákvæði til bráðabirgða.
I. …1) 1)L. 139/2018, 14. gr.
[II. …1)]2) 1)L. 139/2018, 14. gr. 2)L. 99/2009, 1. gr.