Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 10. janúar 2020. Útgáfa 150a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli
2006 nr. 176 20. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 30. desember 2006. Breytt með: L. 34/2008 (tóku gildi 31. maí 2008 nema ákvæði til bráðabirgða sem tók gildi 8. maí 2008). L. 76/2008 (tóku gildi 19. júní 2008). L. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra eða utanríkisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Markmið og yfirstjórn.
Markmið laga þessara er að kveða á um skipan mála til bráðabirgða á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli í kjölfar samnings um skil Bandaríkjanna á svæðinu til íslenskra stjórnvalda og þar til varanlegri skipan er komið á. Um ytri mörk og skiptingu svæðisins í flugvallarsvæði (svæði A), öryggissvæði (svæði B) og starfssvæði Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. (svæði C) vísast til uppdráttar í fylgiskjali [sem [ráðherra er fer með umbreytingu varnarsvæða í borgaraleg not] 1) birtir með auglýsingu]. 2)
[Ráðherra] 1) fer með yfirstjórn mála, þ.m.t. skipulagsmála, á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli uns [ráðherra er fer með umbreytingu varnarsvæða í borgaraleg not] 1) gefur út auglýsingu 3) um að landsvæðið, að hluta eða í heild, hafi verið tekið til annarra nota, sbr. þó ákvæði 3. mgr. 3. gr. laga nr. 92/1989, um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, sbr. lög nr. 46/2006. Í slíkri auglýsingu er heimilt að ákveða að [ráðherra] 1) fari til bráðabirgða áfram með yfirstjórn tiltekinna málaflokka á slíku svæði þótt að öðru leyti gildi um það almennar reglur.
1)L. 126/2011, 445. gr. 2)L. 76/2008, 13. gr. 3) Augl. 38/2007. Augl. 1263/2007. Augl. 519/2010.
2. gr. Flugvallarsvæði.
Flugvallarsvæði, þ.e. flugbrauta- og flugverndarsvæði, Keflavíkurflugvallar, sbr. lög nr. 34/2006, um Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar, er afmarkað sem svæði A í fylgiskjali.
[Ráðherra] 1) skal að höfðu samráði við [ráðherra er fer með samgöngumál] 1) skipa fimm manna nefnd sérfræðinga sem hafi það hlutverk að undirbúa snurðulausa færslu á stjórnun og rekstri Keflavíkurflugvallar, samkvæmt þessari grein, yfir til samgönguyfirvalda. Nefndin skal ljúka störfum og leggja fram tillögur sínar um framkvæmd yfirfærslunnar fyrir febrúarlok 2007.
1)L. 126/2011, 445. gr.
3. gr. Öryggissvæði.
[Ráðherra] 1) fer með yfirstjórn öryggissvæðis sem afmarkað er sem svæði B í fylgiskjali. Öryggissvæðið er ætlað til varnarþarfa, þ.m.t. heræfinga og eftir atvikum friðargæsluæfinga, m.a. á vegum Bandaríkjanna eða annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins.
… 2)
1)L. 126/2011, 445. gr. 2)L. 34/2008, 30. gr.
4. gr. Starfssvæði Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf.
Heimilt er að fela Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf. að annast í umboði ríkisins umsýslu fasteigna á svæði sem koma á hið fyrsta í arðbær borgaraleg not og merkt er sem svæði C í fylgiskjali.
Enn fremur er heimilt að fela félaginu umsýslu tiltekinna fasteigna á flugvallarsvæði og önnur verkefni sem tengjast framtíðarþróun og umbreytingu flugvallarsvæðis og starfssvæðis.
[Sá ráðherra er fer með eignir ríkisins] 1) fer með hlutafé ríkisins í félaginu.
1)L. 126/2011, 445. gr.
5. gr. Opinber gjöld.
Fasteignir ríkisins og mannvirki sem Bandaríkin eða Atlantshafsbandalagið hafa skilað til eignar, á svæðum sem tilgreind eru í 2. gr. og 1. mgr. 4. gr., eru undanþegin öllum opinberum gjöldum og skyldutryggingu fasteigna. Sú undanþága fellur niður er þeim hefur verið ráðstafað með leigu eða sölu enda sé ekki sérstaklega mælt fyrir um undanþágu frá slíkum gjöldum í öðrum lögum. Undanþágan gildir einnig þótt gefin sé út auglýsing um svæðin skv. 2. mgr. 1. gr.
… 1)
1)L. 34/2008, 30. gr.
6. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Reglugerðir, reglur og önnur stjórnvaldsfyrirmæli, sem sett hafa verið á grundvelli laga nr. 106/1954 og 10. gr. laga nr. 82/2000, skulu halda gildi sínu uns nýjar reglugerðir og stjórnvaldsfyrirmæli hafa verið gefin út.
7. gr. …
Fylgiskjal. …1)
1)Sjá Stjtíð. A 2006, bls. 787.