Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. maí 2020. Útgáfa 150b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Orkustofnun
2003 nr. 87 26. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 10. apríl 2003 en komu til framkvæmda 1. júlí sama ár. Breytt með: L. 48/2007 (tóku gildi 3. apríl 2007). L. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008). L. 70/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 110/2014 (tóku gildi 1. jan. 2015). L. 112/2019 (tóku gildi 19. sept. 2019 nema a- og b-liður 6. gr. sem taka gildi 1. jan. 2020).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Orkustofnun er sérstök ríkisstofnun sem heyrir undir yfirstjórn [ráðherra]. 1) [Orkustofnun er sjálfstæð í ákvörðunum sínum þegar stofnunin sinnir raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum.] 2)
1)L. 126/2011, 375. gr. 2)L. 112/2019, 8. gr.
2. gr.
Hlutverk Orkustofnunar er:
1. að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um orkumál og önnur auðlindamál sem stofnuninni eru falin með lögum og veita stjórnvöldum ráðgjöf og umsagnir um þau mál,
2. að standa fyrir rannsóknum á orkubúskap þjóðarinnar, á orkulindum landsins og hafsbotnsins og á öðrum jarðrænum auðlindum þannig að unnt sé að meta þær og veita stjórnvöldum ráðgjöf um skynsamlega og hagkvæma nýtingu þeirra,
3. að safna gögnum um orkulindir og aðrar jarðrænar auðlindir, nýtingu þeirra og orkubúskap landsmanna, varðveita þau og miðla upplýsingum til stjórnvalda og almennings,
4. að vinna að áætlanagerð til langs tíma um orkubúskap þjóðarinnar og hagnýtingu orkulinda og annarra jarðrænna auðlinda landsins og hafsbotnsins,
5. að stuðla að samvinnu þeirra sem sinna orkurannsóknum og samræmingu á rannsóknarverkefnum,
6. að fylgjast í umboði ráðherra með framkvæmd opinberra leyfa sem gefin eru út til rannsóknar og nýtingar jarðrænna auðlinda og reksturs orkuvera og annarra meiri háttar orkumannvirkja,
7. að annast umsýslu Orkusjóðs.
Orkustofnun skal enn fremur annast önnur stjórnsýsluverkefni sem stofnuninni eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra.
Orkustofnun er heimilt að gera samninga við fyrirtæki eða stofnanir um framkvæmd skilgreindra verkefna, sbr. 2. og 3. tölul. 1. mgr. Leita skal staðfestingar ráðherra á samningum sem gerðir eru til lengri tíma en tveggja ára.
Orkustofnun er heimilt að hafa samvinnu við stofnanir eða fyrirtæki um þjónustustarfsemi, svo sem rekstur húsnæðis, símvörslu, tölvuþjónustu o.fl.
[Til að sinna hlutverki sínu skv. 3. tölul. 1. mgr. er Orkustofnun heimilt að krefjast gagna sem varða nýtingu á jarðrænum auðlindum, orkuframleiðslu og orkunotkun, þ.m.t. gagna um innflutning, geymslu og sölu á jarðefnaeldsneyti. Skylt er þeim sem stunda atvinnurekstur er varðar framangreint að afhenda stofnuninni nauðsynleg gögn innan frests sem hún tilgreinir. Í reglugerð 1) skal kveða nánar á um tegund gagna, gæði þeirra og skilafrest.
Sé gögnum ekki skilað innan tilgreinds frests er Orkustofnun heimilt að leggja dagsektir á viðkomandi fyrirtæki eða stofnun. Dagsektir geta numið 10–100 þús. kr. á dag. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt bréflega á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að. Ákvarðanir um að leggja á dagsektir eru aðfararhæfar. Innheimtar dagsektir skulu renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna.] 2)
1)Rg. 870/2013. Rg. 549/2015. 2)L. 48/2007, 1. gr.
3. gr. … 1)
1)L. 70/2008, 7. gr.
4. gr.
Orkustofnun skal gera framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í senn um þau verkefni sem stofnunin vinnur að skv. 2. og 3. tölul. 1. mgr. 2. gr. Skal hún endurskoðuð árlega og lögð fyrir ráðherra til staðfestingar.
5. gr.
Ráðherra skipar forstöðumann Orkustofnunar til fimm ára í senn. Nefnist hann orkumálastjóri. Orkumálastjóri fer með stjórn og daglegan rekstur Orkustofnunar. Orkumálastjóri ræður annað starfslið stofnunarinnar.
6. gr. … 1)
1)L. 110/2014, 1. gr.
7. gr.
Ef ráðist er í orkuframkvæmdir sem undirbúnar hafa verið með rannsóknum og áætlunargerð sem kostaðar hafa verið með fé ríkisins skal framkvæmdaraðili endurgreiða Orkustofnun þann kostnað þegar honum er veitt virkjunar- eða nýtingarleyfi. Kostnaðarliðir skulu framreiknaðir með vísitölu neysluverðs til gjalddaga. Orkustofnun skal leggja fram rökstudda greinargerð um endurgreiðslukröfu í hverju tilviki. Rísi ágreiningur um greiðsluna skal hann lagður í gerð þriggja manna að kröfu annars aðila eða beggja á grundvelli laga nr. 53/1989, um samningsbundna gerðardóma. Endurgreiðslu skal að fullu lokið eigi síðar en sjö árum eftir að leyfi hefur verið gefið út. Endurgreiddu fé skal varið til að fjármagna rannsóknir á orkulindum landsins sem gerðar eru skv. 2. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga þessara.
8. gr.
Orkusjóður er eign ríkisins og ber það ábyrgð á skuldbindingum hans. Yfirumsjón með sjóðnum er í höndum [ráðherra]. 1) Orkustofnun annast daglega umsýslu Orkusjóðs.
Hlutverk Orkusjóðs er að stuðla að hagkvæmri nýtingu orkulinda landsins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða er miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Þetta skal gert með því:
1. að veita lán til að leita að jarðvarma þar sem hagkvæmt þykir til að draga úr kostnaði þjóðfélagsins við upphitun húsnæðis,
2. …, 2)
3. að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði hagkvæmrar orkunotkunar, þ.m.t. til fræðslu og upplýsingastarfsemi,
4. að veita styrki til verkefna sem stuðla að nýtingu á innlendri orku í stað jarðefnaeldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu um slík verkefni.
Orkusjóði er ekki heimilt að veita Orkustofnun styrki eða lán af fé sjóðsins.
Tekjur Orkusjóðs eru:
1. vextir af fé sjóðsins,
2. fé það sem veitt er í fjárlögum hverju sinni.
Heimilt er að semja við aðila, sem hafa leyfi til fjárvörslu lögum samkvæmt, um umsjón og trygga vörslu á fé sjóðsins.
[Ráðherra skipar þrjá menn í ráðgjafarnefnd Orkusjóðs til fjögurra ára, þar af skal einn skipaður formaður. Ráðgjafarnefndin skal gera tillögur til ráðherra um lánveitingar og einstakar greiðslur úr Orkusjóði samkvæmt fjárhags- og greiðsluáætlun sjóðsins.] 2)
Í reglugerð 3) skal mæla nánar fyrir um skilyrði fyrir framlögum úr Orkusjóði, undirbúning úthlutunar, lánveitingar, þ.m.t. um vexti og önnur útlánakjör, greiðslur, eftirlit með framkvæmdum sem Orkusjóður veitir fé til og heimildir til að fella niður endurgreiðsluskyldu lántaka.
1)L. 126/2011, 375. gr. 2)L. 110/2014, 2. gr. 3)Rg. 185/2016.
9. gr.
Ráðherra getur í reglugerð 1) mælt nánar fyrir um starfsemi Orkustofnunar og framkvæmd laga þessara.
1)Rg. 400/2009.
10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi en koma til framkvæmda 1. júlí 2003.
…
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Iðnaðarráðherra ákveður í samráði við Orkustofnun og Íslenskar orkurannsóknir hvaða eignir og skuldir Orkustofnunar skuli tilheyra hvorri stofnun. Þó skulu allar rannsóknaniðurstöður og gagnasöfn sem fjármögnuð hafa verið með opinberu fé áfram vera eign Orkustofnunar.
[II.
Starfsemi vatnamælinga Orkustofnunar lýtur yfirstjórn umhverfisráðherra frá 1. janúar 2008. Umhverfisráðherra skal vinna að sameiningu Veðurstofu Íslands og vatnamælinga Orkustofnunar í eina stofnun eigi síðar en 1. janúar 2009. Orkustofnun annast starfsemi vatnamælinga, undir yfirstjórn umhverfisráðherra, þar til ný stofnun tekur til starfa.] 1)
1)L. 167/2007, 33. gr.