Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 15. október 2021. Útgáfa 151c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um réttindi danskra ríkisborgara á Íslandi
1944 nr. 18 24. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 16. júní 1944. Breytt með: L. 85/1946 (tóku gildi 11. okt. 1946).
1. gr.
[Þeir, er danskan ríkisborgararétt hafa öðlast samkvæmt þeim reglum, er giltu fyrir 9. apríl 1940, eða öðlast hann síðar eftir sömu reglum og búsettir voru á Íslandi 6. mars 1946 eða hafa verið þar búsettir einhvern tíma á síðustu 10 árunum fyrir þann tíma, skulu, þegar þeir dvelja hér á landi, njóta þess jafnréttis við íslenska ríkisborgara, er þeim var áskilið í 6. gr. sambandslaga Íslands og Danmerkur 30. nóvember 1918.] 1)
1)L. 85/1946, 1. gr.