Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um ráðstöfun andvirðis vatnsréttinda kristfjárjarðanna Merkis og Arnarhóls
2008 nr. 48 29. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 6. júní 2008. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við félags- og vinnumarkaðsráðherra eða félags- og vinnumarkaðsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs er heimilt að ráðstafa andvirði vatnsréttinda kristfjárjarðanna Merkis og Arnarhóls á Jökuldal til félagslegra framkvæmda í sveitarfélaginu.
Ráðstöfun andvirðis vatnsréttindanna skal háð samþykki [ráðuneytisins] 1) og vera samræmanleg hinum forna tilgangi kristfjárgjafa.
1)L. 126/2011, 479. gr.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.