151. löggjafarþing — 1. fundur, 1. okt. 2020.
úrsögn úr þingflokki.
Forseta hefur borist svohljóðandi bréf frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur, 3. þm. Suðvest., dagsett 17. september sl.:
„Ég tilkynni hér með að í dag hef ég sagt mig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Ég mun starfa á Alþingi utan þingflokka.
Virðingarfyllst,
Rósa Björk Brynjólfsdóttir.“