145. löggjafarþing — 1. fundur, 8. sept. 2015.
tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.
Stefnuræða forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, samanber 62. gr. þingskapa, verður flutt í kvöld og hefst umræðan kl. 19.40. Samkomulag er um að fyrirkomulag umræðunnar verði þannig að umferðir verði þrjár, 12 mínútur, sex mínútur og fimm mínútur, en forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu.