138. löggjafarþing — 104. fundur, 13. apr. 2010.
rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða, skýrsla nefndar skv. lögum nr. 142/2008.
Ég þakka hv. þingmanni þetta svar. Mig langar að nota þetta tækifæri til að skora á þá fulltrúa í viðskiptanefnd sem hér eru að bæta verklagið í nefndinni og sameinast um þau verkefni sem fyrir nefndinni liggja og vinna saman eins og fólk.