142. löggjafarþing — 11. fundur, 24. júní 2013.
meðferð einkamála.
2. mál
Hæstv. forseti. Ég vil nota tækifærið til að þakka nefndinni fyrir góða vinnu kringum þetta mál og ég vil þakka stjórn og stjórnarandstöðu fyrir það og er þakklát fyrir að málið sé komið á þennan stað og vænti þess að við náum um það góðri samstöðu og það nýtist þeim sem helst þurfa á því að halda.