143. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2013.

rannsókn á ákvörðunum stjórnvalda vegna innstæðna Landsbanka Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu.

40. mál
[16:04]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil eingöngu koma hingað og þakka hv. þm. Birgittu Jónsdóttur fyrir að taka undir málflutningi minn hvað þetta mál varðar. Við unnum saman í þeirri nefnd sem skipuð var forðum ásamt þáverandi þingmanni Hreyfingarinnar, Margréti Tryggvadóttur, og við eigum væntanlega áfram samleið í því að leiða þetta mál til lykta með þeim hætti sem hér hefur verið rætt.