150. löggjafarþing — 110. fundur, 29. maí 2020.
stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
811. mál
Forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessari tillögu, þekkjandi ekki nógu vel hvað í henni er fólgið og hverju hún breytir. En ég treysti því að hv. efnahags- og viðskiptanefnd setjist yfir þessi mál nú þegar hún tekur málið til sín á milli umræðna og skoði sérstaklega þessi skilyrði með skattaskjól.