141. löggjafarþing — 113. fundur, 28. mars 2013.
kísilver í landi Bakka.
632. mál
Virðulegi forseti. Það er með sérstakri ánægju sem ég greiði atkvæði um þau tvö næstu mál sem marka upphafið að uppbyggingu á Bakka í Þingeyjarsýslum. Þetta er mín síðasta ræða hér í þinginu og ég er sérstaklega ánægður með að þessi framkvæmd skuli vera núna í bígerð og vona að þetta verði íbúum í Þingeyjarsýslum og okkur Íslendingum öllum til heilla. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)