149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

lengd þingfundar.

[09:33]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Það er tillaga forseta að fundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. — Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um það mál. Það er á mörkunum að fundur sé enn orðinn ályktunarhæfur þannig að forseti bíður augnablik með þessa atkvæðagreiðslu. Hún verður að afloknum umræðum um störf þingsins. Þá fer fram atkvæðagreiðsla um tillögu forseta um lengd þingfundar.