149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

stéttarfélög og vinnudeilur.

770. mál
[19:13]
Horfa

Frsm. velfn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, aðsetur Félagsdóms.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín gesti. Umsagnir bárust frá ASÍ og BSRB.

Með frumvarpinu er lagt til að aðsetur Félagsdóms geti verið annars staðar en í höfuðstað landsins.

Í umsögnum um málið kom fram það sjónarmið að óhagkvæmt kynni að vera fyrir þá sem reka mál fyrir Félagsdómi hafa dómstólinn utan höfuðborgarsvæðisins. Frumvarpið gengi nokkuð langt þar sem aðsetur dómstólsins gæti með breytingunni verið hvar sem er á landinu. Dómurinn yrði að hafa fastan stað og best færi á því að hann væri á höfuðborgarsvæðinu. Þá væru þau mál sem fyrir dóminn kæmu oft þess eðlis að mikilvægt væri að geta boðað til þinghalda með skömmum fyrirvara. Flestir þeir aðilar sem reka mál fyrir dómstólnum væru með aðsetur á höfuðborgarsvæðinu og það gæti valdið óþarfadrætti á meðferð mála ef dómstóllinn væri staðsettur utan þess. Einnig var bent á að þeir dómarar sem sitja í dómnum hefðu þau störf ekki að aðalstarfi og því væri rétt að taka tillit til þess.

Hins vegar kom fram það sjónarmið að dómstóllinn þjónaði öllu landinu og ætti sem slíkur að geta verið hvar sem er á landinu.

Nefndin telur að hagkvæmnissjónarmið mæli með því að Félagsdómur verði í höfuðstað landsins eða í grennd við hann. Hins vegar kunni að vera vandkvæðum bundið að setja slíka takmörkun í lög. Bendir nefndin í því sambandi á að höfuðborgarsvæðið er í daglegu tali talið samanstanda af sveitarfélögunum sem teljast til þriggja kjördæma í þingkosningum, þ.e. Reykjavíkurkjördæmis norður og suður og Suðvesturkjördæmis. Í seinni tíð hefur hins vegar verið bent á að mörk höfuðborgarsvæðisins kunni að vera víðari, þ.e. er atvinnusvæði sem samanstendur af kjördæmunum þremur, Suðurnesjum, syðsta hluta Vesturlands og vestasta hluta Suðurlands einnig. Þannig hefur oft verið talað um svæðið frá Hvítá til Hvítár. þ.e. svæði sem afmarkast af Hvítá í Borgarfirði og Hvítá í Árnessýslu og Ölfusá.

Nefndin telur að þrátt fyrir að brottfall áskilnaðar um að Félagsdómur skuli vera í höfuðstað landsins gæti gefið tilefni til að ætla að dómstóllinn geti verið hvar sem er á landinu verði að líta svo á að hagkvæmnissjónarmið, sem m.a. segir í greinargerð að líta skuli til, tryggi að dómstólinn verði áfram staðsettur í Reykjavík eða í nágrenni hennar. Nefndin telur þetta hagkvæmnissjónarmið vera skýrt og því ekki ástæða til þess að skilgreina nákvæmlega í lögunum hvar dómstóllinn eigi að vera staðsettur.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þm. Guðjón S. Brjánsson skrifar undir álitið með fyrirvara.

Undir álitið rita að öðru leyti hv. þingmenn Halldóra Mogensen formaður, Ólafur Þór Gunnarsson framsögumaður, Ásmundur Friðriksson, Andrés Ingi Jónsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halla Signý Kristjánsdóttir og Vilhjálmur Árnason.