bráðaaðgerðir til að efla leigumarkað á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. velferðarnefnd fyrir afgreiðslu þessarar tillögu. Í umfjöllun nefndarinnar er tekið undir meginþætti efnistillögunnar. Hæstv. húsnæðisráðherra nefndi í fyrri umr. um málið að hún væri efnislega sammála flestum þáttum tillögunnar. Ég þykist sjá líka áhrif þessara tillagna í nýframkomnum tillögum verkefnisstjórnar á sviði húsnæðismála. Ég fagna því og bind vonir við að ríkisstjórnin nýti þær tillögur til góðs. Ég hefði viljað fá þessa tillögu afgreidda fyrr enda mikill vandi á leigumarkaði og brýnt að bæta þar úr. Ég þakka fyrir afgreiðsluna hér og nú.