150. löggjafarþing — 118. fundur, 16. júní 2020.
fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
434. mál
Virðulegi forseti. Kannski fór ég ekki nægilega vel yfir þetta í ræðunni. Ég sagði að undantekningin væri PPP-verkefni og ég fór yfir það fyrirkomulag sem ég tel þurfa að vera til að PPP-verkefni séu tæk til framkvæmda. Að öllu öðru leyti tel ég veggjöld og innheimtu veggjalda vera óþarfa.