138. löggjafarþing — 119. fundur,  7. maí 2010.

heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ.

320. mál
[12:42]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta er hið gagnmerkasta mál. Við sjálfstæðismenn erum hlynntir þessari fjárfestingu en vegna þess hvernig meðferðin hefur verið á málinu og með fyrirvörum sem eru þarna inni munum við sitja hjá núna við atkvæðagreiðslu og óska eftir að málið verði kallað til nefndar á milli 1. og 3. umr.