132. löggjafarþing — 121. fundur,  3. júní 2006.

samningur um tölvubrot.

692. mál
[03:35]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Magnús Stefánsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég geri grein fyrir nefndaráliti á þskj. 1286 um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu samnings um tölvubrot.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að fullgilda samning um tölvubrot sem gerður var í Búdapest 23. nóvember 2001 og undirritaður af Íslands hálfu 30. nóvember sama ár.

Samningur um tölvubrot er gerður á vegum Evrópuráðsins og er fyrsti alþjóðasamningurinn sem fjallar um glæpi sem framdir eru um alnetið eða önnur tölvunet. Nær efni hans sérstaklega til höfundaréttar, fölsunar og svika sem tengjast tölvum, barnakláms og brota gegn öryggi tölvukerfa, tölvuneta og tölvugagna.

Dómsmálaráðherra hefur þegar lagt fram frumvarp til laga um breyting á almennum hegningarlögum til að aðlaga ákvæði íslenskrar löggjafar efni samningsins og er það frumvarp á þskj. 609.

Nefndin ræddi ítarlega skilgreiningu á hugtakinu barnaklám sem er að finna í 2. mgr. 9. gr. samningsins og þá heimild sem aðildarríkjunum er veitt til að gera undanþágur frá b- og c-lið 2. mgr. 9. gr. Í nefndinni kom fram það sjónarmið að ekki skyldi nýta heimild til fyrirvara við b- og c-lið 2. mgr. 9. gr. Össur Skarphéðinsson, Steingrímur J. Sigfússon og Þórunn Sveinbjarnardóttir rituðu undir nefndarálitið með fyrirvara varðandi það atriði.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Að þessu nefndaráliti standa hv. þingmenn Halldór Blöndal, Drífa Hjartardóttir, Jónína Bjartmarz, Bjarni Benediktsson, Magnús Stefánsson, Össur Skarphéðinsson, með fyrirvara, Steingrímur J. Sigfússon, með fyrirvara og Þórunn Sveinbjarnardóttir, með fyrirvara.