150. löggjafarþing — 129. fundur, 29. júní 2020.
aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
665. mál
Hæstv. forseti. Við munum sitja hjá í þessu máli. Það fjallar um framlengingu á bráðabirgðaákvæði sem við vonumst að sjálfsögðu til að verði að veruleika núna loksins, þetta hefur staðið yfir í a.m.k. fjögur ár. Ég vona að í þetta sinn náist að klára málið því það er mjög brýnt. En ég treysti því ekki.