138. löggjafarþing — 132. fundur,  7. júní 2010.

samúðarkveðjur.

[10:33]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill greina frá því að Alþingi hefur sent fjölskyldu Péturs Sigurgeirssonar biskups samúðarkveðjur við fráfall hans sem bar að 3. júní sl. Samstarf Alþingis og þjóðkirkjunnar á biskupsárum Péturs Sigurgeirssonar var mikið og bæði farsælt og ánægjulegt.